Læknablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 18
174
LÆKNABLAÐIÐ
4. FLOKKUR:
Verkjalyf og giktarlyf, svo sem
magnyl, Bufferin, Indocid, Butazolidin,
Somadryl o. s. frv.
5. FLOKKUR:
Meltingarlyf, svo sem sýrueyðandi
meðul. Samsett lyf geta fallið í fleiri
en einn ákvörðunarflokk, t. d. Li’orax.
bæði í 5. og 11. flokk. Voru þau þá
flokkuð sem tvær ákvarðanir.
6. FLOKKUR:
Járn og vítamín.
7. FLOKKUR:
Anorexica: Preludin, Dobesin, Mira-
pront.
8. FLOKKUR:
Antiepileptica: fenemal, fenantoin,
Mysolin, Tridion, Tegratol.
9. FLOKKUR:
Hypnotica, svo sem Doriden, Mogadon
og barbituröt, þó ekki gegn flogaveiki.
10. FLOKKUR:
Psykosedativa major: Róandi lyf, sem
verka á geðsýki, svo sem chlorpromazin,
perfenazin, Anatensol, Taractan.
11. FLOKKUR:
Psykosedativa minor: Róandi lyf án
teljandi verkunar á geðsýki, einkum
Valium, Librium og meprobamat.
12. FLOKKUR:
Psykoanaleptica: Geðhvetjandi lyf,
sem verka á geðsýki, svo sem Tofranil,
Tryptizol og MAO-hemlandi lyf.
13. FLOKKUR:
Stimulantia: Geðhvetjandi lyf án
verkunar á geðsýki, Amfetamin og
Ritalin.
14. FLOKKUR:
Útvortis lyf, þar á meðal steroidar og
sýklaeyðandi smyrsl.
15. FLOKKUR:
Oflokkuð lyf, svo sem mixtúrur ýmis
konar, æðavíkkandi meðul, lyf notuð í
augu og eyru o. s. frv.
Einstakir lyfjaflokkar
Ávísun sýklaeyðandi lyfja jafngildir að
þau hafi fengið 18.8% allra þeirra er leit-
uðu læknis könnunartímabilið. Þetta er há
tala og væri full ástæða til að gera úrtaks-
könnun í héraðinu á notkun sýkialyfja
yfir árið, sundurgreina notkun eftir teg-
undum lyfja, kyni og aldri sjúklinga. Þá
væri ekki síður æskilegt að kanna að hve
miklu leyti sjúklingar taka inn sýklalyf,
sem þeim eru ávísuð. Oft kemur í Ijós að
þeir er fjarri búa frá miðstöð heilbrigðis-
þjónustu birgja sig upp af lyfjum og eiga
gjarnan nokkuð magn af fúkalyfjum 1il
þess að grípa til ef í nauðir rekur. Al-
menningur hefur einnig mikla trú á fúka-
lyfjum við öndunarfærasjúkdómum. Mesl
var ávísað af flokki 15, sem er eins konar
ruslakista. Þar falla undir ýmis lyf, sem
ekki flokkast annars staðar, mixtúrur ýrnis
konar, æðavíkkandi lyf, nef- og augndrop-
ar o. fl. Stór hluti þessara lyfja er symp-
tomatisk lyf og mörg eru placebolvf.
Geðlyf
Samtals var geðlyfjum, þ. e. flokkum
10, 11 og 12 ávísað 120 sinnum. Jafngildir
það að 9.6% sjúklinga er leituðu læknis
hafi verið ávísað geðlyfjum. Þessi tala er
þó væntanlega lægri þar eð sama sjúkl-
ingi er stundum ávísað fleiri en einni teg-
und geðlyfja. Við könnun í Hvammstanga-
héraði10 var 22.4% þeirra er leituðu lækn-
is ávísað samsvarandi lyfjum. Mest var
um notkun róandi lyfja án teljandi verk-
unar á geðsýki, einkum Valium og Libri-
um fl. 11, sem ávísað var til 5.9% þeirra
er leituðu læknis.
Verkja- og giktarlyf
í samræmi við tíðni sjúkdóma í stoð-
kerfi er ávísað verkja- og giktarlyfjum í
talsverðu magni. Er hér sérstaklega um
að ræða aldrað fólk með hrörnunarbreyt-
ingar í liðum. Hugsanlegt er að hægt sé
að draga eitthvað úr þessari notkun með
bættri aðstöðu til endurhæfingar.
Járn og vítamín
Mikið var ávísað af járni og vítamínum.
Vitað er að álit lækna á notkun vítamína
er mjög mismunandi og niðurstöður rann-
sókna um notagildi vítamíninndælinga