Læknablaðið - 01.12.1976, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ
177
TAFLA 10
Rannsóknir framkvæmdar á Sjúkrahúsi Skagfirðinga og sýni send annað.
Rannsóknir framkvæmdar á Sjúkrahúsi Skagfirðinga
Blóðrannsóknir: Þvagrannsóknir:
Hb. Hct, MCHC Hvít blóðkorn Sökk Deilitalning Rauð blóðkorn Na K Creatinine Blóðsykur Cholesterol 123 19 37 3 9 2 2 4 6 2 Alm. ranns. Smásjárskoðun Diagnex Gravindex RNT 72 66 5 3 5
Samtals 151
Annað Ræktun EKG Blóðgjöf 1 4 1
Samtals 207 Samtals 6
H^ildarfjöldi rannsókna = 364.
Send sýni:
PP mælingar 2 Þvagsýra 1
Blóðflokkun 4 Giktarpróf 1
Screen-test 4 t4 1
Lues 2 Fæces í ræktun 1
Alls send sýni 16.
vafasamt að þessar niðurstöður gefi rétta
mynd af ársmeðaltali.
Af þessum niðurstöðum má draga þá
áyktun að 365 röntgenrannsóknir séu fram-
kvæmdar á ári. Þetta jafngildir 0.09 rann-
sóknum á hvern íbúa á ári. Hér við bæt-
ast síðan rannsóknir sem framkvæmdar
eru utan héraðsins og á sjúklingum sem
vistaðir eru á sjúkrahúsinu.
SKIL
Lýst hefur verið framkvæmd og niður-
stöðum könnunar á heilbrigðisþjónustu í
Skagafirði. Af niðurstöðum má draga þá
ályktun að hver ibúi leiti læknis að jafnaði
4.4 sinnum á ári. í upphafi var tekið fram
að tilgangur könnunarinnar hefði verið að
fá tölulegar upplýsingar er komið gætu að
notum við endurskipulagningu heilbrigðis-
þjónustu í Skagafirði við tilkomu heilsu-
gæzlustöðvar. Neyzlukönnun af þessu tagi
gefur þó aldrei rétta mynd af þörf (need)
eða kröfum (demand) almennings til heil-
brigðisþjónustu. Þar koma til m. a. félags-
fræðilegar og einstaklingsbundnar ástæð-
ur sem þessi könnun endurspeglar ekki.
Könnunin mælir því eingöngu notkun al-
mennings á þeirri þjónustu sem í boði r>r.
Ef fá ætti skýrari mynd af þörfinni þyrtti
að gera úrtakskönnun, þar sem kannaðar
yrðu óskir almennings um heilbrigðisþjón-
ustu, gerð yrði leit að sjúkdómum í úrtaks-
hópnum og félagslegar aðstæður yrðu
kannaðar.
Þrátt fyrir þessa annmarka má draga
hagnýtar ályktanir af þeim niðurstöðum
sem fyrir liggja, en ýmsar niðurstöður verð-
ur þó að túlka með mikilli varúð vegna
smæðar sumra eininga og árstímabundinna
sveiflna, sérstaklega að því er varðar að-
sókn að læknum. Hefur komið í ljós í
Bretlandi5 að hlutfallslega leiti flestir til
lækna á fyrsta ársfjórðungi þ. e. á þeim
tíma er könnunin fór fram.
Mikill fjöldi símaviðtala og endurnýj-
unar lyfseðla segir sina sögu um aðstæð-