Læknablaðið - 01.12.1976, Side 24
180
LÆKNABLAÐIÐ
STARFSREGLUR STÖÐUNEFNDAR
í 33. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr.
56/1973 segir svo:
„33.1. Ráðherra skipar 3 lækna í nefnd.
er metur hæfni umsækjenda um stöðu
landlæknis, stöður yfirlækna, sérfræðinga,
héraðslækna og lækna heilsugæzlustöðva.
Nefndin skal þannig skipuð: 1 tilnefndur
af Læknafélagi íslands, 1 tilnefndur af
læknadeild Háskóla íslands og landlæknir,
og er hann jafnframt formaður nefndar-
innar. Sömu aðilar tilnefni varamenn.
Nefndin skal skipuð til þriggja ára. Um-
sögn nefndarinnar fer síðan til stjórnar-
nefndar viðkomandi sjúkrahúsa og heilsu-
gæzlustöðva. Þegar um er að ræða stöður
yfirlækna og sérfræðinga, hefur nefndin
heimild til að kveðja 2 sérfræðinga sér til
ráðuneytis. Nefndin skal hafa skilað rök-
studdu áliti innan fjögurra vikna, frá því
að umsóknarfresti lauk. — 33.2. Yfirlækn-
ar við sjúkrahús ríkisins og aðrar heil-
brigðisstofnanir skulu skipaðir af ráðherra
að fenginni umsögn nefndar, sbr. 33.1.,
og læknaráðs viðkomandi sjúkrahúss. Um
ráðningarkjör yfirlækna fer eftir samning-
um milli stéttarfélags lækna og viðkom-
andi stofnana eða samningum um kjör
opinberra starfsmanna. — 33.3. Yfirlæknar
annarra sjúkrahúsa skulu ráðnir af við-
komandi sjúkrahússtjórn að fenginni um-
sögn nefndar, sbr. 33.1., og læknaráðs við-
komandi sjúkrahúss, sé slíkt fvrir hendi.
— 33.4. Ráða má eða skipa hvern þann
iækni til starfa samkv. þessari grein, sem
hæfur hefur verið talinn. — 33.5. . . . “
Stjórn Læknafélags íslands hefur frá
byrjun lagt áherzlu á það sjónarmið að
nefnd þessi eigi að „skila rökstuddu áliti
og raða umsækjendum eftir hæfni“. Til
þess að tekið verði tillit til álitsgerðar
nefndarinnar er nauðsynlegt að hún hafi
fastar reglur að miða mat sitt við og jafn-
framt nauðsynlegt að læknar almennt
þekki þessar reglur.
Þetta er núverandi meðlimum stöðu-
nefndar vel Ijóst og hafa þeir á þeim tæpu
3 árum, er nefndin hefur starfað, lagt :
það mikla vinnu að skapa nefndinni starfs-
reglur, er stuðli að hlutlægum saman-
burði umsækjenda.
Tillögur stöðunefndar að starfsreglum
hafa verið_ kynntar rækilega á fundum
stjórnar L.f. með formönnum svæðafélaga
og á aðalfundi L.í. sl. sumar.
í umræðum hafa komið fram ýmsar
athugasemdir og breytingartillögur. Stjórn
L.f. hefur rætt reglurnar við stöðunefnd,
en ekki ennþá afgreitt formlegar breyting-
artillögur.
Þar sem mál þetta varðar alla lækna,
en allstór hluti þeirra virðist ennþá mál-
inu lítt eða ekki kunnugur, hefur stjórn
L.f. farið þess á leit við ritstjórn Lækna-
blaðsins, að tillögur nefndarinnar að starfs-
reglum verði birtar, og mælist stjórnin til
þess, að læknar skoði þær vandlega, ræði
í sínum hópi og skili athugasemdum eða
breytingartillögum til stjórnarinnar, sem
allra fyrst. T. Á. J.
Tillögur stöðunefndar að
eigin starfsreglum
I. LAGAÁKVÆÐI
Stöðunefnd er skipuð samkvæmt lögum
um heilbrigðisþjónustu nr. 56/1973 (sbr.
33. grein laganna, sem birt er í inngang-
inum),
II. STARFSREGLUR
II-l.
Þau gögn sem stöðunefnd leggur til
grundvallar mati á hæfni umsækjenda
eru: