Læknablaðið - 01.12.1976, Page 35
LÆKNABLAÐIÐ
187
□ ÍA.V'eNTRICL'U ^CA.OESOPHAQI [llllia CA. COU ET RECTI
Fig. 4. — Cancer of the digestive tract. Distribution by site.
tölur 28% á íslandi, en 22-29% í hinum
löndunum þrem.2
Á mynd 1 sést einnig, að cancer í colun
og rectum er algengast í Svíþjóð hjá báð-
um kynjum. Þar á eftir koma svo Noregui,
Island og Finnland og eru þessar hlut-
fallstölur hjá karlmönnum 1.8(S):1.3 (N):
1.1(1) :1(F) og hjá konum eru samsvarandi
tölur 1.5(S):1.2(N):1.1(Í):1(F).
Myndir 2 og 3 sýna2 tíðni þessara æxla
hjá körlum og konum eftir aldri. Þessar
samanburðartölur eru miðaðar við árin
1962-1966 í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi,
en á íslandi er miðað við árabilið 1957-
1966.
I þessari grein mun ég ekki gera frekari
samanburð á tíðni sjúkdómsins í hinum
ýmsu löndum, né fjalla um etiology hans,
heldur gera grein fyrir þeim sjúklingum
með þennan sjúkdóm, sem hafa vistazt á
handlæknisdeild Landspítalans frá 1952-
1971. Könnuð hafa verið nú þegar afdrif
þeirra sjúklinga, sem voru taldir radicalt
opereraðir á árabilinu 1952-1964 og verður
þeim athugunum haldið áfram og tekin
fyrir árin þar á eftir til og með 1968. Þeg-
ar þeim athugunum lýkur sést, hversu
margir lifa í 5 ár eða lengur eftir þessa
aðgerð.
Mynd 4 sýnir fjölda og dreifingu 1144
sjúklinga, sem teknir hafa verið til með-
ferðar á handlæknisdeild Landspítalans
1952-1971 með krabbamein í vélinda, maga,
ristli og endaþarmi.
Meirihluti sjúklinga af öllu landinu með
cancer oesophagi kemur til meðferðar á
handlæknisdeild Landspítalans, en láta
mun nærri að þriðji hver sjúklingur með
krabbamein í maga og colon og rectum
komi til meðferðar á okkar deild.
Á árabilinu 1955-1964 var dreifingar-
tíðni krabbameins í meltingarvegum hér á
íslandi þannig, að gegn einum sjúklingi
með cancer oesophagi, voru rúmlega tveir
með krabbamein í colon eða rectum og fyr-
ir hvern einn af þeim síðastnefndu voru
þrír sjúklingar með krabbamein í maga.
Tafla 2 sýnir, að á þessu árabili vistast
TABLE2
During the years 1952-1971, 238 patients
with cancer of the colon and rectum were
admitted to the surgical department of
the University Hospital, Landspítalinn in
Reykjavík.
Cancer coli 142 patients:
Males 65 Average age 61,9 years
Females 77 Average age 66,1 years
Cancer recti 94 patients
Males 59 Average age 65,4 years
Females 35 Average age 64,2 years
Cancer coli et recti 2 patients:
(Multiple laesions)
Females 2 Average age 44 years