Læknablaðið - 01.12.1976, Side 42
190
LÆKNABLAÐIÐ
TABLE 10
Cancer coli and recti 238 cases
Analysis of history
First consultation within one
month from onset of
symptoms 81=34%
Of these admitted for treatment:
Within 1 month from first
consultation 41=50%
Within 2 months 9=12%
Within 4 months 14=17%
Within 6 months 5= 6%
Within 12 months 5= 6%
After a year or more 7= 9%
jafn mörgum dregst það lengur en eitt
ár að þeir komist inn á skurðdeildir.
Tafla 9 sýnir tímalengdina frá því sjúkl-
ingar fá einkenni þar til þeir vistast á
handlæknisdeild.
Það er athyglisvert, að hjá 70 sjúkling-
um, eða 29 af hverjum 100, líður meira
en eitt ár frá byrjun einkenna, þar til þeir
komast inn á spítala.
Tafla 10 sýnir afdrif þeirra sjúklinga,
sem leita læknis innan eins mánaðar frá
því að einkenni byrja. Á þessari töflu sézt,
að 34% sjúklinganna leita læknis innan
eins mánaðar frá því að einkenni byrjuðu,
sbr. töflu 7.
Helmingur þessara sjúklinga er kominn
inn á skurðdeild innan eins mánaðar frá
því þeir fyrst leita læknis og 62% innan
tveggja mánaða. Innan hálfs árs eru 85%
sjúklinganna komnir inn á sjúkrahús, en
hjá 15% dregst það enn lengur, hjá6% líða
6-12 mánuðir og hjá 9% sjúklinganna líð-
ur meira en 1 ár frá því þeir leita fyrst
læknis og þar til þeir vistast á handlæknis-
deild.
Með aukinni fræðslu fyrir almenning
ætti að vera kleift að stytta tímabilið frá
því að einkenni koma í ljós og þar til hlut-
aðeigandi leitar læknis.
Næsta tímabil, þ. e. a. s. þann tíma sem
líður frá fyrstu læknisvitjun og þar til
meðferð er hafin, ætti hjá langflestum
sjúklingum með krabbamein í ristli eða
endaþarmi að vera kleift að gera sem
stytztan eða sem svarar þeim tíma, sem
ítarleg rannsókn krefst. Að því er varðar
RIGHT COLON
LEFT COLON
RECTUM UPPER
PART (ABOVE 12 cm)
RECTUM LOWER PART
MULTIPLE LAESIONS
47
95
21
73
2
238
MULTIPLE LAESIONS
CANCER RECTI PLUS CANCER COLI SIGM.
CANCER RECTI PLUS 5Cffc OF CANCER COLI SIGM.
(DETECTABLE WITH RECTAL EXPLORATION AND
AN ORDINARY RECTOSIGMOIDOSCOPY)
142 PATIENTS = 59.6%
94 PATIENTS = 39.6%
2 PATIENTS = 0.8%
160 PATIENTS = 67 %
127 PATIENTS = 53 %
Fig. 6. — Cancer coli and recti, 238 patients. The distribution of tumors within the colon
and rectum.