Læknablaðið - 01.12.1976, Page 56
198
LÆKNABLAÐIÐ
Hér verður skýrt frá 5 ára ferilrannsókn
á 50 konum, sem reyndust með RW-titerS'
1:10 eða AFT-titer^RiO í 1. áfanga Hóp-
rannsóknar Hjartaverndar 19 68-’69. Til-
gangur rannsóknarinnar var að kanna
breytingar á RF-titer og fylgjast með klín-
iskum einkennum einkum m. t. t. iktsýki.
AÐFERÐIR
Hóprannsókn Hj artaverndar á höfuð-
borgarsvæðinu hófst haustið 1967. Sem
þátttakendur voru valdir úr þjóðskrá 1.
des. 1966 16 árgangar karla á aldrinum
34-61 árs og 16 árgangar kvenna úr þjóð-
skrá 1. des. 1967, sem á árinu 1968 töldust
á aldursbilinu 34-61 árs. Hóprannsóknin er
almenn heilsufarsrannsókn, þó einkum með
tilliti til hjarta- og æðasjúkdóma og fram-
kvæmd sem ferilrannsókn.1) 012
1) Ferilrannsókn: e. Follow-up study.
TAFLA 1
Hóprannsókn Hjartaverndar á höfuðborgarsvæðinu 1968-’69. Áfangi I, —
konur.
Fjöldi kvenna (þátttakenda), sem boðið var til rannsóknar, og mæting
þeirra.
Fæðingar- ár Aldur 1969 Fjöldi þáttt. Mæting (%) Mæting „leiðrétt"1)
1908 61 155 67.7 68.6
1911 58 174 77.0
’ 13 56 165 74.5 76.0
1915 54 162 73.5
’ 17 52 202 78.7
’ 18 51 179 75.4 76.5
’19 50 187 76.5
1920 49 193 75.1
’21 48 196 76.5 76.8
’22 47 208 74.5
’23 46 195 79.0
1925 44 195 73.8
’27 42 221 80.0 76.0
’29 40 236 71.6
1932 37 214 79.4 80.1
1935 34 211 75.4 76.4
Heildarfjöldi 3093 75.7% 76.3%
1) Mæting eftir að fj. látinna og þeirra, sem flutzt hafa til útlanda á tímabilinu
1/12 '67-30/11 ’68 samkv. þjóðskrá 1/12 1968, hefur verið dregin frá.