Læknablaðið - 01.12.1976, Blaðsíða 68
206
LÆKNABLAÐIÐ
bót höfðu fengið ákveðna RA. Tvær þeirra
fullnægðu tveimur NY-skilmerkjum og hin-
ar þremur. Þessar 7 RA-konur eru merkt-
ar á mynd 1 og 2 með A. Mat á meðal
árlegu nýgengi RA verður því 2.3% meðal
RW-jákvæðra kvenna á umræddu aldurs-
bili. Þegar binomial dreifing er notuð
verða 95%-vikmörk fyrir árlegt nýgengi
0.7 %-4.7%.
Fjórar konur voru látnar, þegar áfangí
II hófst, allar RW- og AFT-jákvæðar. 5
ára dánartölur verða því 8% í RW-jákvæða
hópnum og 13% í AFT-jákvæða hópnum.
Þrjár þeirra, sem létust, voru meðal þeirra
kvenna, sem höfðu hæstan títer í áfanga
I hvort heldur var RW-títer eða AFT-
títer (sjá mynd 1 og 2).
Þessar fjórar konur voru:
1. Kona fædd 1915 með RW-títer 1:2560
og AFT-títer 1:81920, sem var með-
höndluð vegna cancer mammae 1967,
og dó 1973 vegna meinvarpa í lungum.
2. Kona fædd 1925 með RW-titer 1:320 og
AFT-títer 1:5120, sem dó 1973 úr
lungnakrabba.
3. Kona fædd 1908 með RW-títer 1:320 og
AFT-títer 1:2560, sem dó 1970 vegna
myocardial infarction. Hún uppfyllti
NY-skilmerki 1.
4. Kona fædd 1911 með RW-títer 1:40 og
AFT-títer 1:160, sem dó snögglega 1971.
Hún var þekktur drykkjusjúklingur og
hafði verið meðhöndluð við cancer
mammae 1970.
SKIL
Þátttakendur í 1. áfanga Hóprannsóknar
Hjartaverndar voru valdir kerfisbundið úr
þjóðskrá þannig, að þeir gæfu rétta mynd
af aldursbilinu 33-60 ára a. m. k. á höfuð-
borgarsvæðinu, þar sem rúmur helming-
ur þjóðarinnar bjó þá. Þar eð mikill flutn-
ingur fólks úr öllum landshlutum til höf-
uðborgarsvæðisins hefur átt sér stað und-
anfarna áratugi má ætla að íbúar höfuð-
borgarsvæðisins gefi allgóða mynd af þjóð-
inni í heild a. m. k. innan þeirra aldurs-
marka er hér um ræðir.
Hóprannsókn Hjartaverndar var kynnt
sem almenn heilsufarsskoðun en þó með
sérstakri áherzlu á hjarta- og æðasjúkdóma.
Hins vegar var ekki minnzt á gigtarsjúk-
dóma sérstaklega, hvorki í fréttakynn-
ingum eða boðsbréfi til þátttakenda.9 Við
höfum því enga ástæðu til að ætla, að
heimtur kvenna með gigtareinkenni séu
umfram það er algengi meðal íbúa svæðis-
ins segir til um. Á hinn bóginn er rétt að
benda á, að heimtur voru mjög háðar
hjúskaparstétt og voru mun lægstar meðal
fráskildra kvenna eða um 45%. Áhrif þessa
á niðurstöður t. d. við mat á algengi og
nýgengi meðal kvenna þjóðarinnar vitum
við ekki. Heildarmæting (heimtur) varð
76%, og er það svipað og fékkst við hóp-
rannsókn í Sudbury (78%) og vikið verð-
ur að.3
Eins og fram kom í kaflanum um að-
ferðir, var reynt að beita sömu vinnu-
TAFLA 11
Hóprannsókn Hjartaverndar á höfuðborgarsvæðinu.
Samanburður vorið 1974 á AFT-títer og RW-títer í 46 konum, sem höfðu
fundizt RF-jákvæðar 5 árum áður þ. e. 1968-’69 (áfangi I).
Próf Akryl-fixation próf (AFT)
Þynning 10 10 20 40 80 160 320 640
10 11 1 1
10 4 1
20 4 1 1 2 1
Rose- 40 1 1 3 3 1
Waaler 80 1 1 4
próf 160 1 1
(RW) 320
640
1280
2560
2560
1