Læknablaðið - 01.12.1976, Page 82
216
LÆKNABLAÐIÐ
BREYTING Á LYFJANÆMI GONOKOKKA
AÐVÖRUN FRÁ SÝKLADEILD R.H.
Undanfarin ár hefur næmi gonokokka
(Neisseria gonorrhoae) fyrir verkun peni-
cillins farið minnkandi. Hér hefur þó verið
um hægfara stigbreytingar á ónæmi að
ræða og hafa sívaxandi skammtar penicill-
ins yfirleitt nægt til að lækna sjúkdóminn.
Nú hefur hins vegar Center for Disease
Control í Atlanta í Georgiu í U.S.A. lýst
stofnum af N.gonorrhoae, sem framleiða
B-lactamasa (penicillinasa) og eru því al-
veg ónæmir fyrir penicilliniA Stofnar þess-
ir ræktuðust frá sjúklingum, sem ekki
urðu einkennalausir þrátt fyrir að þeir
fengu þá meðferð, sem nú er mælt með eða
Mynd 1. — Stuðlarnir sýna fjölda já-
kvæðra sýna, er greind voru á sýkladeild
Rannsóknastofu Háskólans á fyrstu 11
mánuðum hvers árs.
177 199 224 270 308 268
92 108 89 131 125 94
’70 71 72 73 74 75
Mynd 2. — Heildarstuðlamir og efri tölu-
röðin, sem í þeim er, sýna fjölda sjúklinga,
sem skráðir voru með lekanda á landin’u
öllu. Neðri hluti stuðlanna og tölurnar í
þeim, sýna hins vegar fjölda jákvæðra
sýna er greind voru á sýkladeild Rann-
sóknastofu Háskólans.
4.8 mill. einingar penicillins.2 Þeir voru
síðan læknaðir með öðrum sýklalyfjum.
Af þessu tilefni teljum við ástæðu til að
vekja athygli íslenzkra lækna á eftirfar-
andi staðreyndum: Skv. heilbrigðisskýrsl-
um hefur tíðni lekanda farið vaxandi á ís-
landi undanfarin ár eins og sjá má á mynd
1. Síðastliðið ár, 1975, voru þó heldur
færri tilfelli skráð en árið áður. Til að fá