Læknablaðið - 01.06.1977, Page 66
118
LÆKNABLAÐIÐ
Námsferill í samantekt:
A sjúkradeildir 19.5 mán.
B heilsugæzlustöðvar 19.5 mán.
D frjálst val 5 mán.
C polyklinik, vaktir: samtímis ofan-
greindu.
VI. 5. Framkvæmd
a) Stofnanir
A hluti: Heimilislækninganefndin stofni
til samstarfs við sérsta'kar sjúkrahúsdeild-
ir, þar sem sérfræðingar þekkja, skilja og
viðurkenna markmið og eðli námsbrautar
í heimilislækningum. Hafi hver deild hlot-
ið samþykki sérfræðiráðs til þess.
Þar sem námslæknar hafa yfirleitt
skyldum að gegna á heilsugæzlustöðvum
jafnframt starfi á deild og þurfa oft að
leita þangað, er nauðsynlegt að afmarka
vinnukvöð á sjúkrastofnunum. Má það ger-
ast með því að para t.d. 2 námslækna í 1
stöðu (eða 3 í 2 stöður) ef mögulegt er
Geta þeir skipt með sér verkum og verk-
efnum, svo og athygli að undirfögum.
B hluti: Æskilegt er, að ein heilsugæzlu-
stöð sé miðstöð framhaldsnáms í heimilis-
lækningum, a.mJk. til að byrja með. Þar
fari fram formleg kennsla, hugsanlega í
tengslum við kennslu læknastúdenta.
Námslæknar geta þó starfað á öðrum
stöðvum. Þurfa þær eins og aðalstöðin að
uppfylla vissan staðal, sem settur er af
heimilislækninganefnd (Sjá nánar tillögur
um kennslu á heilsugæzlustöðvum 1975).
C hluti: Námslæknar sinni vaktþjónustu
samkvæmt skipulagi á hverjum stað og
tíma, hvar sem þeir eru staddir í námi.
b) Kennslukraftar
A hluti: Á sjúkrahúsum 'hafi sérstakir
deildarlæknar kennsluskyldu gagnvart
námslæknum, og sjái þeir einnig um fyrir-
lestra og seminör í sínum fögum sam-
kvæmt samræmdri námsskrá.
Sérfræðingar í einstökum undirfögum
geri námslæknum kleift að fylgja sér eftir
í stofustarfi ákveðinn tíma (t.d. augnlækn-
ir á göngudeild augnlækninga).
Bezt væri, að barnalæknir og kvensjúk-
dómalæknir störfuðu að verulegu leyti á
aðalheilsugæzlustöð, einkum með tilliti til
heilsuverndarstarfs í þeim greinum.
B hluti: Á aðalstöð í Reykjavík starfi
námsstjóri. Þar séu helzt allir heimilis-
læknar með sérlaunaða kennsluskyldu
(25—50%). Fái þeir ákveðna námslækna
og verði þeim til halds og trausts við nám-
ið. Vinni þeir saman að ákveðnum sjúk-
lingahópi. Myndist um þann sjúklingahóp
afmarkað vinnuteymi stjúplæknis (tutors)
— seniors — juniors — (stúdents).
Á öðrum heilsugæzlustöðvum á Reykja-
víkursvæðinu og stöðvum úti á landi sé
svipað skipulag.
Val kennara
Kennarar séu
1) sérfræðingar á deildum 2) sérfræði-
legir ráðgjafar á heilsugæzlustöðvum, 3)
sérfræðingar í heimilislækningum og 4)
heimilislæknar samkvæmt meðmælum
heimilislæknafélagsins. Þarf um það sam-
þykki heimilislækninganefndar.
Gerðar séu af hálfu heimilislæknafélags-
ins og heimilislækninganefndar ákveðnar
kröfur um sannað viðhald þekkingar hjá
kennurum.
Ýmsir aðrir séu fengnir til kennslu, svo
sem hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar,
kerfisfræðingar og forstöðumenn heil-
brigðis og líknarstofnana, svo að einhverj-
ir séu nefndir.
Leggja ber áherzlu á, að framhaldsnámið
verði ekki einangrað frá háskóla- og grunn-
námi, heldur eigi öll námsstig sér stað sam-
hliða og samtímis. Kennslulið læknadeild-
ar (prófessorar, dósentar, lektorar) skyldi
því ávallt vera snar og virkur þáttur í
framlhaldsmenntun heimilislækna, svo og
námslæknar í heimilislækningum í mennt-
un stúdenta.
VI. 6. Nánari gerð nánisferils (þrenging
markmiða)
A: Námsreynsla á spítaladeildum.
í hverju fagi sé gerð þröng markmiða-
lýsing um þá námsreynslu (lei'kni, þekk-
ingu, afstöðu), sem öðlast þarf í hverri
námsdvöl (kursus).
Slíkur listi sé gerður fyrir hvert fag af
námsstjóra og sérfræðingi í viðkomandi
grein að fengnu samþykki heimilislækn-
inganefndar.
í uppihafi sé hinni skilgreindu nauðsyn-
legu klinisku reynslu samkvæmt sérgrein-
um raðað á stofnanir og deildir (náms-