Læknablaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 21
LÆKNABLADID
199
Dánarorsök fékkst með athugun á dánar-
vottorðum og sjúkraskrám sjúkrahúsanna í
Reykjavík. Ellefu sjúklingar létust skyndilega.
Átta sjúklingar létust úr nýrri kransæðastíflu.
Tveir sjúklingar létust vegna thrombosis í
arteria mesenterica. Einn sjúklingur lést úr
hjartabilun og einn eftir kransæðaaðgerð.
Sigurður B. Þorsteinsson, lyfjadeild Landspitala og
Borgarspítala, Sigurður Hektorsson, barnadeild
Landakotsspítala, Árni V. Þórsson, barnadeild
Landakotsspitala
Toxic shock syndrome
Fyrsti sjúklingur á Islandi
Árið 1978 lýsti Todd et al. sjúkdómi, sem
tengdist staphylococca sýkingu og einkenndist
af háum hita, hypotensio, erythroderma á
iljum og lófum, sem síðan flagna. Var sjúkdóm-
urinn nefndur toxic shock syndrome (TSS).
Síðari sjúklingar hafa yfirleitt haft einkenni frá
mörgum líffærakerfum: uppköst, niðurgang,
nýrna- og/eða lifrarbilun, conjunctivitis, sár á
vörum, vöðvaverki, einkenni frá miðtaugakerfi
og fleira. Flestir sjúklingar hafa hækkað CPK
en lækkað kalcium og fosfór í blóði. Thrombo-
cytopenia er algeng.
Á síðasta ári hefur athygli beinst mjög að
þessum sjúkdómi vegna fjölda tilfella í Banda-
ríkjunum. Hafa par greinst tæplega 700 sjúk-
lingar á rúmu ári. 97.5 % þessara sjúklinga
hafa verið konur og oftast byrjar sjúkdómur-
inn á 2.-4. degi tíða. Flestar konurnar hafa
notað tíðatappa. Yfirgnæfandi hluti kvenn-
anna hafa staphylococcus aureus í fæðingar-
vegi, en blóðræktanir verið neikvæðar. Karl-
menn með TSS hafa allir haft staphylococcus
aureus sýkingu. Stungið hefur verið upp á að
sjúkdómurinn stafi af staphylococca toxini,
sem frásogist frá fæðingarvegi eða sýkingar-
stað. Slíkt toxin hefur þó ekki fundist enn með
neinni vissu.
Lýst er fyrsta íslenska TSS sjúklingnum,
ellefu ára dreng með staphyloccocca arthritis í
mjöðm og sepsis. Uppfyllti hann öll skilmerki
sjúkdómsins nema blóðþrýstingur var eðli-
legur. Verður sjúkrasögu hans lýst.
Jón Þorsteinsson, Alfreð Árnason, Helgi
Valdimarsson og Ingvar Teitsson, Lyfjadeild
Landspítalans, Blóðbankanum.
íslensk gigtarætt
Það hefur lengi verið vitað gigt er ættgeng.
Það hefur einnig fundist ákveðin fylgni á milli
HLA flokka og gigtsjúkdóma og er þekktust
fylgni milli HLA-B27 og AS og Reiter.
Við höfum skoðað 147 einstaklinga úr 5
ættliðum í einni þekktri gigtarætt. 130 hafa
verið HLA-flokkaðir og reyndust 76 B27
pósitifir.
í ættinni voru 16 þekktir AR sjúklingar og
10 til viðbótar reyndust grunsamlegir.
6 þekktir LED sjúklingar og 4 grunsam-
legir.
2 með AS og 2 Reiterssjúklingar.
1 Palindrome rheumatismus, líklega lupus.
1 Discoid lupus.
1 psoriasis arthritis.
Liðverkir og bakverkir eru algengir. RF og
ANF próf eru einnig oft jákvæð þótt sjúkl. sé
ekki með gigtarsjúkdóm.
Það er athyglisvert að flestir fengu þessa
gigtsjúkdóma eftir að þeir fluttu úr heima-
byggð sinni.
John Benedikz, M.R.C.P. (London),
taugalækningadeild Lanspítalans
Frontal lobe lesion and
myoclonus. A case report
Myoclonus may be described as a sudden
contraction of one or more muscles. Most
commonly it is arrhythmic, occurs irregularly,
but tends to be exaggerated or even initiated
by movement, excitement and concentration.
It disappears during sleep. Rhythmic myoclo-
nus is much less common and is due to a
segmental spinal or a focal brain lesion,
persisting in sleep. The biochemical aspects
are still elusive but serotonin and the 5 HT
pathway appear to play an important part.
The etiological factors include infective and
degenerative CNS disorders, various metabo-
lic disturbances and brain trauma. It may
accompany idiopathic epilepsy.