Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 22
200 LÆKNABLADID This report describes a patient with myoclo- nus and an isolated frontal lobe lesion. As far as I am aware this association has not been reported. Ársæll Jónsson, M.R.P. Hall. Department of Geriatric Medicine, Southampton General Hospital, England. Sjúklingar með Parkinsonsveiki á sviði öldrunarlækninga Lýst er kliniskri rannsókn á sjúklingum með Parkinsonsveiki, sem vísað var til öldrunar- lækningadeildar við háskólasjúkrahús í Suður- Englandi yfir sex mánaða tímabil. Skoðaðir voru 43 sjúklingar (14 karlar og 29 konur) og var meðalaldur sjúklinganna 77,8 ár og höfðu þeir þjáðst af Parkinsonsveiki í 6,1 ár að meðaltali. Aðrir sjúkdómar voru algengir meðal hóps- ins en 74 % þeirra reyndust hafa aðra meiri háttar sjúkdóma og helmingur sjúklinga voru með háþrýsting (Bþ.> 160/90) við skoðun. 18 sjúklingar (42 %) þörfnuðust meðferðar á legudeild og 6 sjúklingar (15 %) dóu á tíma- bilinu. Algengasta tengund Levodopa í notkun var Sinemet og meðal skammtur 510 mg á dag. Þrátt fyrir smáa lyfjaskammta voru aukaverk- anir algengar eða 44 %. Um þriðjungur sjúk- linga reyndust hafa marktæka heilabilun (De- mentia) og þrátt fyrir meiri fötlun, höfðu þeir haft Parkinsonsveiki skemur en hinir. Bendir það til að um sérstakan sjúkdóm geti verið að ræða. Fötlunarstaðall (Barthel’s Index Score) mældist 79 stig fyrir allan hópinn. Lág giidi höfðu litla fylgni með hækkandi aldri (r= 0,31) og gefa til kynna fötlun vegna sjúkdóms. Ragnar Danielsen* 1), Þórir Helgason1), Friðbert Jónasson2) Sjónuskemmdir (retinopathy) hjá insúlínháðum sykursjúkum (IHSS) á íslandi. Áhrif ýmissa klíniskra þátta Orsakir sjónuskemma hjá sykursjúkum telja nú flestir að rekja megi til fjölþættra efna- skiptatruflana sjúkdómsins.1 Upphaf og þróun sjónuskemmda er einstaklingsbundið og má því ætla að ýmsir þættir geti haft hvetjandi eða letjandi áhrif. Áður hefur verið fjallað um tengsl HLA-gerðar og ættarsögu við sjónu- skemmdir.2 Hér verður einkum rætt um áhrif blóðsykurstjórnunar, aldurs við greiningu og blóðþrýstings. Þessir þættir voru kannaðir með samanburði á IHSS (Teg. 1), með eða án sjónuskemmda, eftir sambærilegan sjúkdóms- tíma. Alls var 149 sjúklingum skipt í 3 hópa eftir lengd sjúkdómstíma. Niðurstöður voru metnar með T-prófi. / 5-9 ára sjúkdómstímahópnum, staðfestist, að sjónuskemmdir koma yfirleitt ekki fram fyrr en eftir 7.7 ára sjúkdómstíma (P<0.05). Sjúklingar með sjónuskemmdir voru mark- tækt eldri við greiningu, 30.9 ±13.0 ár á móti 19.5± 13.1 ár (P<0.03). Af 9 sjúklingum með sjónuskemmdir voru 6 karlar. / 10-19 ára sjúkdómstímahópnum, var einn- ig tilhneiging hjá þeim er höfðu sjónuskemmd- ir til að vera eldri við greiningu (P<0.10). Sjúklingar með sjónuskemmd mættu mark- tækt verr til eftirlits (P<0.05) og höfðu að jafnaði hærri meðaltalsblóðsykra þó ekki væri það marktækt. Tilhneigingu í fylgni sjónu- skemmda við þessa 2 þætti var einnig að finna í 5-9 ára sjúkdómstímahópnum. Blóðþrýsting- ur / 10-19 ára sjúkdómstímahópnum var að meðaltali hærri í systolu og diastolu hjá sjúklingum með sjónuskemmd og nálgaðist munurinn hefðbundna marktækni (P<0.10). Hærri blóðþrýstingur gæti allt eins verið afleiðing sem orsök smáæðaskemma, þó ekki verði það metið í þessari rannsókn. / um og yfir 20 ára sjúkdómstímahópnum, notuðu sjúklingar án sjónuskemmda mark- tækt minna insulin, (P<0.05). Þetta bendir til nokkurrar eigin insulinframleiðslu hjá sjúkl- ingunum og minni eyjavefsskemmda, er gefur betri blóðsykursstjórnun. Sömu sjúkling voru marktækt eldri við greiningu, um og yfir 30 ára og 7 af 10 voru konur. Fjórir sjúklingar voru með staðfestan/grunaðan sjálfsónæmis- sjúkdóm (autoimmune) og 1 sjúklingur að auki systkinabarn eins þeirra. Fjórir sjúklinganna voru HLA-B15 jákvæðir, þar af 3 með stað- festa/grunaða sjáfsónæmistilhneigingu. Rannsókn þessi var styrkt af vísindasjóði Landspítalans og Rannsóknarst. Hásk. 1) Göngudeild sykursjúkra, Landspítalanum 2) Augndeild Landakotsspítala.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.