Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2007, Síða 9
arða króna í arð. Það er 46 prósent af stofnfé eftir að það hafði verið end- urmetið á 19,5 milljarða króna. Fyr- ir endurmatið var innborgað stofnfé 9,5 milljarðar króna, litlu hærra en arðurinn. Í ársskýrslu SPRON segir að við- skipti með stofnfé hafi verið lífleg á árinu. Verð stofnfjár hækkaði, stofn- fjáreigendum fjölgaði um 46 prósent og viðskipti með stofnfé námu 2,4 milljörðum króna, það er meira en tvöfalt meira en árið áður. Gullkálfurinn er óstöðvandi Meðal þeirra sem vöruðu við þróuninni með sparisjóðina á þingi var Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann segir að nú sé komið í ljós það sem menn óttuð- ust, að stofn- fjárhafar seilist í eig- ið fé sjóð- anna þó þeir eigi í raun ekki tilkall til þeirra. „Í þessu til- viki er ver- ið að greiða arðgreiðsl- ur til stofn- fjárhafa af eigin fé sem þeir eiga í raun ekki.“ Lúðvík og Einar Odd- ur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lögðu fram tillögu þar sem tak- markanir voru settar fyrir möguleikum stofnfjárhafa til að nýta sjóði sparisjóðanna í eigin þágu. Þetta var sam- þykkt á þingi en varð ekki til þess að hamla því að rekstur sparisjóðanna breyttist. „Gull- kálfurinn er óstöðvandi,“ seg- ir Lúðvík og segir ljóst að þeg- ar gullkálfurinn sé annars vegar séu engir veggir eða hlið nógu há til að menn komist ekki yfir. DV Fréttir fimmtudagur 15. mars 2007 9 Tugmilljarða arður Hluthafar FL Group hafa ástæðu til að gleðjast þessa dagana. Þeir fá greidda saman- lagt fimmtán milljarða króna eftir þrjár vik- ur. Þá greiðir félagið út arð til hluthafa vegna hagnaðar félagsins á síðasta ári sem er sá mesti í sögu FL Group. Hannes Smárason Eignin í fL group skilar Hannesi þrjá milljarða króna í arðgreiðslur vegna hagnaðar á síðasta ári. Kauphöllin Hluthafar félaga í Kauphöllinni fá 64 milljarða króna í arð. greiðslurnar geta reyndar átt eftir að hækka því þrjú fyrirtæki hafa ekki enn birt ársreikninga. „Við hjálpum þeim að aðlagast. Við kennum þeim íslensku og börn- in fá fræðslu á þeirra tungumáli því við teljum það vera mjög mikilvægt til að halda tengslum við þeirra eigin menningu,“ segir Árni Gunnarsson, formaður flóttamannanefndar. Ís- lensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka á móti allt að 30 flóttamönnum í ár. Konur í neyð „Við ákváðum í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna að gerast aðilar að verk- efninu „Kona í neyð,“ segir Árni Gunnarsson, formaður flóttamanna- nefndar. Verkefnið felst meðal ann- ars í því að aðstoða konur á átaka- svæðum sem annaðhvort hafa misst eiginmenn sína eða þeir finnast ekki. Oftast kemur konan með börn sín og alla fjölskyldu. Flestir af þeim flóttamönnum sem komu hér síðast fengu vinnu. Sum- ir þeirra hafa haldið áfram í námi og enn aðrir hafið nám. Mikilvægast er, að sögn Árna, að gera fólkið sjálf- bjarga sem fyrst. Öllum flóttamönn- um sem koma til Íslands er boðið að vera hér eins lengi og þeim líkar. „Ofbeldið á átakasvæðum Kólumbíu er skelfilegt og ekki víst að þetta fólk vilji fara aftur,“ segir Árni. Stuðningur við hverja fjöl- skyldu „Ég var í sendinefndinni sem fór út að sækja flóttamennina,“ seg- ir Katla Þorsteinsdóttir frá Reykja- víkurdeild Rauða krossins. Reykja- víkurborg útvegar samtökunum íbúðir sem þau síðan gera að heim- ilum. Hver flóttamannafjölskylda fær stuðningsfjölskyldu og var lítið mál að manna þann hóp. „Sextíu ís- lenskar fjölskyldur og um þrjátíu út- lendingar störfuðu með þeim 24 ein- staklingum sem komu hér árið 2005,“ segir Katla og er hæstánægð með fjöldann. Reynt var að hafa tvær ís- lenskar fjölskyldur með hverri flótta- mannafjölskyldu auk einstaklings af erlendu bergi brotnu. Oftar en ekki hafði þetta fólk tengsl við Suður- Ameríku eða Spán og sumir töluðu spænsku. Katla benti á að stuðnings- fjölskyldur verði að ganga í gegnum ferli sem þau setja saman. „Ekki get- ur hver sem er valist í þennan hóp og við reynum með viðtölum og nám- skeiðum að velja rétta fólkið,“ segir Katla. skorri@dv.is Flóttamenn sumir hafa komið frá átakasvæð- um eða flóttamannabúðum. Tökum á móti allt að 30 flóttamönnum í ár: Hjálpsamir við flóttamenn Rúmlega átján þúsund Íslend- ingar hafa farið í áfengismeðferð hjá SÁÁ frá árinu 1977. Aðsókn í Krýsuvík og á Fjórðungssjúkrahús- ið á Akureyri hefur aukist lítið eitt en dregið hefur úr innlögnum á Landspítalann. Annars staðar hef- ur fjöldi þeirra sem hafa leitað sér hjálpað haldist stöðugur. Þetta er meðal þess sem kem- ur fram í svari Sivjar Friðleifsdótt- ur heilbrigðisráðherra við fyrir- spurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Þar kemur fram að aðeins tvær stofn- anir geti sinnt áfengismeðferð fyrir áfengissjúklinga, það eru áfengis- og vímuefnadeild á geðsviði Land- spítalans og Vogur. Áfengismeðferð er þá skilgreind sem skipulögð og einstaklingsbundin áætlun und- ir handleiðslu fagmenntaðs fólks. Langflestir sem hafa leitað sér hjálpar hafa leitað til SÁÁ. Þang- að hafa rúmlega 18 þúsund manns leitað. Við þetta bætist að 15 þúsund manns hafa leitað á göngudeildina á Landspítalanum. Í einhverjum tilfellum er þó um tvískráningu að ræða þar sem einstaklingar hafa leitað til beggja stofnana. Í upplýsingum frá Samhjálp kemur fram að á síðustu árum hafi sá hópur sem stríðir við bland- aða fíkn, áfengis og vímuefna, far- ið mjög vaxandi en þeim að sama skapi fækkað hlutfallslega sem stríða eingöngu við áfengisfíkn. skorri@dv.is Mörgum ofviða 18 þúsund hafa leitað á Vog og 15 þúsund á göngu- deild á Landspítalanum vegna alkóhólisma. Margir leita meðferðar við áfengissýki: 33 þúsund í meðferð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.