Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Blaðsíða 8
þriðjudagur 3. apríl 20078 Fréttir DV Edda Rós Karlsdóttir telur að kosningaúrslit í Hafnarfirði komi ekki í veg fyrir frekari stór- iðju. Þau seinki hins vegar framkvæmdum og það sé gott fyrir hagkerfið. Hún telur að niður- staðan hefði verið önnur ef hér væri atvinnu- leysi. Hinir ríku hafi efni á umhverfisvernd. Umhverfisvernd er fyrir ríka fólkið Ákvörðun Hafnfirðinga að hafna stækkun álversins í Straumsvík er léttir fyrir íslenskt efnahags- líf og flýtir fyrir því að hægt verði að lækka vexti og verðbólgu. Þetta er mat greiningardeilda Glitnis og Landsbankans. Edda Rós Karls- dóttir, forstöðumaður greiningar- deildar Landsbankans, telur ekki að ákvörðun Hafnfirðinga komi í veg fyrir að raforkan verði nýtt til stóriðju af þessu tagi. Spurning- in sé frekar um tímasetningu og staðsetningu. „Ég er ekki að spá því að það verði aldrei af þessari stækk- un eða sams konar framkvæmd- um. Þessi ákvörðun Hafnfirðinga eykur sennilega líkurnar á því að Norðurál reisi álver í Helgu- vík. Kosturinn við það er að þær framkvæmdir hefjast ekki strax og koma þannig í kaldara hagkerfi,“ segir Edda Rós. Höfðu efni á því „Við höfum einfaldlega ekki mikið svigrúm í hagkerfinu akkúrat núna,“ segir Edda. Hún segir að út frá sjónarmiðum hagfræðinnar sé betra að fara út í stórframkvæmd- ir þegar meira svigrúm er fyrir hendi. Alvarlegustu afleiðingar af stórum framkvæmdum á röngum tíma komi niður á almenningi í verðbólgu, minnkandi kaupmætti og síðar atvinnuleysi. „Þessi nið- urstaða í Hafnarfirði verður liður í því að hægja á hjólum atvinnulífs- ins og það er mjög mikilvægt.“ Edda segir að niðurstaða kosn- inganna hefði sennilega orðið á annan veg ef hér ríkti atvinnu- leysi. „Fólk hefði væntanlega ekki sagt nei ef við værum í kreppu. Það eru ríku þjóðirnar sem hafa efni á því að vera umhverfisvæn- ar,“ segir Edda Rós. Of seint Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra hafði það á orði á sunnu- dag að kosningarnar í Hafnarfirði hefðu farið fram of seint í skipu- lagsferlinu. „Átta ára undirbún- ingi með tugmilljóna kostnaði er hér fleygt,“ segir Jón. Hann telur að ef notast eigi við íbúalýðræði af þessu tagi þá megi það ekki snúast um andlit fyrirtækis, held- ur um raunveruleg skipulagsmál. „Ég er mjög hrifinn af hugmynd- um um íbúalýðræði, en það verð- ur að vera alveg skýrt hvernig á að iðka það,“ segir hann. Edda Rós Karlsdóttir er sam- mála Jóni um það að ekki megi persónugera verkefni af þessu tagi. „Það skiptir ekki máli hvort við erum að tala um álframkvæmd- ir hjá einu fyrirtæki eða stórfram- kvæmdir af öðru tagi. Í þessu tilviki hefur fyrirtækið undirbúið verk- efnið í nokkur ár, það hefur farið að öllum leikreglum og því hefur ver- ið selt land undir starfsemina og svo er slegið á puttana á þeim. En svona er þetta,“ segir Edda Rós. Eldri kusu frekar Ásta Þorleifsdóttir hjá fyrirtæk- inu ProVist sá um rafrænar kjör- skár fyrir Hafnarfjarðarbæ í kosn- ingunum á laugardag. Hún segir það hafa komið sér mest á óvart að komast að því að kosningaþátt- taka var mest hjá fólki á aldrin- um sextíu til sjötíu ára, hátt í níu- tíu prósent. „Það athyglisverðasta að mínu mati er þessi mikli mun- ur á kosningaþátttöku á milli ald- urshópa,“ segir Ásta. Ásta segir að kosningaþátttaka þrjátíu ára og yngri hafi verið álíka mikil og hjá fólki á níræðisaldri, eða aðeins rúmlega sextíu prósent. Einnig kom í ljós að þátttaka kynjanna var hnífjöfn. „Með rafrænum kjör- skrám sjáum við alls kyns tölfræði um kosningarnar alveg um leið. Það eina sem við sjáum ekki er hver kaus hvað, enda er farið að lögum um persónuvernd.“ Sökuð um svindl Hafnarfjarðarbær lýsti því yfir í gær að íbúafjölgun í bænum hafi verið mjög mikil á undanförn- um árum og að á árinu 2006 hafi fjölgunin orðið meiri en áður hafi þekkst. Þessi yfirlýsing kemur í kjölfar frétta um að samtökin Hag- ur Hafnarfjarðar telji að kosninga- svindl hafi átt sér stað. Óeðlilega hafi fjölgað á kjörskrá bæjarins á síðustu fjórum mánuðum. Þegar tölur Hagstofunnar eru skoðaðar kemur í ljós að á síðustu fjórum mánuðum fjölgaði Hafn- firðingum um rúmlega 400. Það er í samræmi við fjölgunina í fyrra, eða um 100 manns á mánuði. Í yf- irlýsingu Hafnarfjarðarbæjar segir að starfsmenn þjónustuvers bæj- arfélagsins hafi fylgst náið með skráningum á lögheimili síðustu vikurnar fyrir lokun kjörskrár, og ekkert óeðlilegt hafi komið á dag- inn. Engin stækkun í Straumsvík Hafnfirðingar ákváðu að stækkun álversins í Straumsvík væri ekki tímabær. greiningardeildir telja að ákvörðunin sé góð fyrir hagkerfið og fyrr verði hægt að ná niður vöxtum og verðbólgu. „Fólk hefði væntan- lega ekki sagt nei ef við værum í kreppu. Það eru ríku þjóðirnar sem hafa efni á því að vera umhverfisvænar.“ SigtRygguR ARi jóHAnnSSOn blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is greiningardeildir Edda rós Karlsdóttir hjá landsbankanum segir að ríkar þjóðir hafi efni á því að vera umhverfisvænar. Hún telur líklegt að Hafnfirðingar hefðu kosið öðruvísi ef hér væri kreppa og atvinnuleysi. ProVist Ásta þorleifsdóttir hjá proVist hafði umsjón með rafrænum kjörskrám í Hafnarfirði. Hún segir athyglisvert að ungir Hafnfirðingar hafi síður kosið en þeir eldri. 85 prósent Hafnfirðinga á sjötugsaldri kusu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.