Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Page 15
DV Sport þriðjudagur 17. apríl 2007 15 Sport þriðjudagur 17. apríl 2007 sport@dv.is Guðmundur Guðmundsson þjálfari Fram er hættur með liðið Tyson Patterson, leikmaður KR, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar. Missti aldrei trúna Eftir leik KR og Njarðvík í gær var tilkynnt að Tyson Patterson, leikmaður KR, hafi verið valinn verðmætasti leikmaður úrslita- keppninnar. Hann átti frábæran leik í Njarðvík á laugardaginn þar sem hann skoraði 31 stig. Patterson skoraði ellefu stig í leiknum í gær, gaf ellefu stoðsendingar og hirti sex fráköst. Patterson sagði að tilfinning- in að vinna Íslandsmeistaratitilinn væri ótrúlega góð. „Þetta er ólýs- anlegt. Öll vinnan sem við höfum lagt í þetta borgaði sig í dag. Nú á ég skilið gott frí. Ég er búinn að leggja mikið á mig fyrir liðið og nú er kominn tími til að slaka á. Þetta er búið,“ sagði Patterson eftir leik- inn í gær. Hann sagði að vel gæti farið svo að hann verði áfram hjá KR á næsta tímabili. „Ég held að ég verði hér áfram en annars veit ég það ekki. Núna vil ég bara njóta sigursins,“ sagði Patterson. Þrátt fyrir að vera undir mest all- an tímann í gær sagði Patterson að hann hafi aldrei misst trúnna. „Að- all liðsins er að við berjum mikið og leggjum mikið á okkur allt til leiks- loka. Þar til flautan gellur berjumst við mikið og reynum að spila góða vörn,“ sagði Patterson að lokum. dagur@dv.is Verðmætasti leikmaðurinn Tyson patterson var valinn verðmæt- asti leikmaður úrslitakeppninnar. Íslandsmeistari 2007 NBAAllt um leiki næturinnar í NBA KR fagnaði sigRi á njaRðvíK í gæR í dRamantísKum leiK. KR vaR aldRei yfiR í leiKnum nema í fRamlengingunni og hRósaði sigRi. bls 16-17 KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.