Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Page 17
DV Sport þriðjudagur 17. apríl 2007 17 ÍÞRÓTTAMOLAR Mourinho og AbrAMovich féllust í fAðMA Eftir að Chelsea höfðu tryggt sér farseðilin í úrslitaleikinn í Enska bikarnum féllust jose Mourinho og roman abramovich í faðma. þeir skiptust meira að segja á nokkrum setningum en það mun vera sjaldgæf sjón þessa síðustu mánuði. abramovch kom inní klefa hjá Chelsea eftir leikinn og óskaði leikmönn- um til hamingju með sigurinn. „Við hittumst og við föðmuðumst. Ég óskaði honum til hamingju og hann gerði slíkt hið sama. það er eðlilegt,“ sagði Mourinho. Chelsea getur unnið fernu á tímabilinu en þeir hafa nú þegar unnið deildarbikarinn, eru í úrslitum bikarsins þar sem þeir mæta Man. utd, eru í undanúrslitum Meistara- deildarinnar og eiga möguleika á að vinna Ensku deildina. EkkErt Er óMögulEgt lawrie Sanchez nýji stjóri Fullham trúir því að hann geti bjargað liðinu frá falli. Fullham er aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið og virðast hafa misst alla trú á sína eigin getu. En landsliðsþjálfari Norður-íra trúir því að allt sé hægt í fótbolta. „það var sagt að við gætum ekki unnið Spán, Svíþjóð hvað þá Englendinga. Ég hef sannað að hið ómögulega er mögulegt. þess vegna er ég hér.“ Sanchez sagði einnig að hann hefði tekið skýrt fram að í hálfleik í leiknum á móti reading hver réði á Craven Cottage. „leikmenn höfðu trú á Coleman og hans starfsliði.En þeir vita núna að það er ég sem ræð. Ég lét þá vita af því í hálfleik á móti reading,“ sagði ákveðinn Sanchez. brynjAr gæti spArAð rEAding pEning Steve Coppell, stjóri reading, segir að Brynjar Björn gunnarsson geti sparað félaginu mikinn pening í sumar ef hann nær að sýna að hann sé verðugur arftaki Steve Sidwells sem vill fara frá félaginu í sumar. „Ég verð að fá annan leikmann í staðinn, það er óhjákvæmanlegt. Ég vil að hann [Brynjar] og fleiri leikmenn spili fleiri leiki það sem eftir er tímabilsins til að sanna veru þeirra í byrjunarliðinu,“ sagði Coppell. Sidwell hefur líst yfir áhuga á að fara í stærra lið og allt virðist stefna í að hann skrifi undir samning við Newcastle á næstunni. EkkErt hEfur brEyst luis Figo var maðurinn á bak við endurkomu inter Milan gegn palermo á sunnudag. Figo lagði upp bæði mörkin sem adriano og julio Cruz skoruðu. „Ég er sáttur, sérstaklega af því við færðumst skrefi nær titlinum. En við getum enn tapað honum, við getum ekki fagnað strax. Ég hef spilað í mörg ár á hæsta plani og ekkert hefur breyst um að fara frá liðinu í lok tímabilsins.“ inter getur tryggt sér titilinn leggi þeir roma að velli á morgun í 15 sinn en í fyrsta sinn síðan 1989 sem þeir vinna titilinn á vellinum. inter fékk tvo titla að gjöf eftir að juventus var dæmt niður um deild í skandalnum sem skók ítalskan fótbolta í upphafi leiktíðarinnar. dAMljAnovic til fylkis Handboltakonan Natasa damljanovic hefur skrifað undir samning við Fylki. damljanovic gengur í raðir Fylkis frá gróttu. Árbæjarliðið mun á næsta tímabili tefla fram liði í úrvalsdeild kvenna í handbolta og félagið er stórhuga. guðríður guðjónsdóttir verður þjálfari liðsins. Tilnefningar til leikmanns ársins í ensku úrvalsdeildinni: Drogba og Ronaldo bítast um titilinn Didier Drogba, sóknarmaður Chelsea, og vængmaðurinn Cristia- no Ronaldo hjá Manchester United eru langlíklegastir til að hljóta titilinn leikmaður tímabilsins í ensku úrvals- deildinni sem valinn er af samtök- um knattspyrnumanna. United á tvo aðra leikmenn sem tilnefndir eru til titilsins en það eru reynsluboltarnir Ryan Giggs og Paul Scholes. Þá koma miðjumennirnir Cesc Fabregas, Ars- enal, og Steven Gerrard, Liverpool, til greina. Leikmennirnir sjálfir í deildinni sjá um valið. Þá verður einnig val- inn besti ungi leikmaður tímabilsins. Þar eru Ronaldo og Fabregas einnig tilnefndir. Sóknarmaðurinn Wayne Rooney hjá United kemur einnig til greina ásamt Aaron Lennon hjá Tot- tenham, Kevin Doyle hjá Reading og Micah Richards hjá Manchester City. Kosningin hefur þegar farið fram en úrslitin verða tilkynnt þann 22. apríl. Sókn- armaðurinn Drogba hefur skorað þrjátíu mörk fyrir Chelsea og á stóran þátt í því að liðið á enn möguleika á að ná sögulegum ár- angri með því að vinna fjórfalt. Hann og Ron- aldo eru taldir líkleg- astir til að hljóta tit- ilinn. Ronaldo er 22 ára og er þeg- ar talinn besti knattspyrnu- maður heims af mörgum spek- ingum. Hann hefur skorað 21 mark fyrir Manchester United sem trjónir á toppi ensku úrvals- deildarinnar. United á enn möguleika á að endurtaka afrek sitt frá 1999 þegar lið- ið vann þrefalt. Scholes, 32 ára, og Giggs, 33 ára, hafa einnig leikið lykilhlutverk með United á leiktíðinni. Arsenal hefur verið í vand- ræðum á tímabilinu en Fabregas þó haldið áfram að bæta sig sem knattspyrnumaður. Gerrard var valinn leikmaður tímabils- ins í fyrra og er fyrir- liði Liverpool sem setur stefnuna á að vinna Meistara- deildina á ný.  elvargeir@dv.is Þrír frá united Manchester united á þrjá af þeim sex sem tilnefndir eru. Hádramatískur endir á frábæru tímabili ekki glopra niður og voru farnir að hugsa út í hvenær oddaleikur- inn yrði. En KR-ingar voru sko al- deilis ekki búnir að gefast upp og hömpuðu Íslandsmeistaratitilin- um í leikslok. Jeremiah Sola, leikmaður KR, átti erfitt með að lýsa tilfinningum sínum eftir leikinn. „Þetta var ótrú- legt. Konan mín var á staðnum og nú fer ég heim sem sigurvegari,“ sagði Sola sem sagði framtíð sína óljósa. Sola sagði að leikmenn KR hafi alltaf haft trú á að þeir myndu vinna leikinn þrátt fyrir að vera undir lungan af leiknum. „Helmingurinn af þessu snýst um hugarfarið. Maður verður að hafa trú á því að hægt sé að vinna og berjast. Við misstum aldrei trúnna,“ sagði Sola að lokum. Hann var sti- ahæstur í liði KR í gær með 24 stig og tók þar að auki fimmtán fráköst. Igor Beljanski var besti leikmaður Njarðvíkur, skoraði 29 stig og tók nítján fráköst. Aldrei séð annað eins Skarphéðinn Ingason, leikmað- ur KR, sagði að hann hafi aldrei upplifað annað eins. „Ég held að mér hafi aldrei liðið betur. Ég er búinn að hugsa um þetta frá því að ég byrjaði að drippla körfubolta og horfa á hverja úrslitakeppnina á fætur annarri líða hjá. Þetta er ótrú- leg tilfinning.“ Skarphéðinn sagði að stuðn- ingurinn sem KR-ingar fengu frá stuðningsmönnunum hafi skipt sköpum. „Ég held að ég hafi aldrei séð annað eins á Íslandi.“ Skarphéðinn sagði að KR-ingar séu með nóg af mönnum sem geta klárað leiki á ögurstundu. „Við vorum að spila á fleiri mönnum og okkur fannst í síðustu leikjum að þeir væru þreyttir undir lokinn. Við misstum aldrei trúnna á því að við gætum klárað þetta. Við erum líka með menn sem geta klárað leiki, Brynjar, Tyson, Pálma, Sola, Fannar. Það eru bara of mörg vopn í liðinu til að hægt sé að stoppa okkur,“ sagði Skarphéð- inn. KR-ingar hafa farið erfiðu leið- ina í úrslitin. Þeir hafa lent und- ir í öllum einvígum sínum en allt- af staðið uppi sem sigurvegarar. Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR, sagði að það hafi gert þennan sigur enn sætari. „Við erum búnir að fara Krísu- víkurleiðina að þessum sigri. Við höfum verið tíu stigum undir trekk í trekk á lokamínútunum. Það ger- ist ekki ljúfara að taka þetta í fram- lengingu. Þetta er rosalegt,“ sagði Brynjar eftir leikinn. Friðrik Stefánsson, leikmaður Njarðvíkur, var fámáll eftir leikinn. „Þetta er drullufúlt og sárt. Þetta fer langt í sálina á manni. Við vorum með unnin leik en klúðruðum því bara. Við náðum ekki að klára fær- in okkar. Þetta er bara fúlt,“ sagði Friðrik. kr - njarðvík 83-81 Stig KR: Jeremiah Sola 24, Pálmi F. Sigurgeirsson 17, Tyson Petter- son 11, Edmund Azemi 9, Brynj- ar Björnsson 9, Baldur Ólafsson 5, Fannar Ólafsson 4, Skarphéðinn Ingason 4. Stig Njarðvíkur: Igor Beljanski 29, Jóhann Ólafsson 15, Brenton Birm- ingham 13, Jeb Ivey 10, Friðrik Stef- ánsson 7, Egill Jónasson 7. elvargeir@dv.is,dagur@dv.is bikarinn kysstur Edmond azemi kyssti bikarinn vel og innilega eftir leikinn. innilegur fögnuður Skarphéðinn ingason tók Tyson patterson á háhest eftir leikinn og dansaði með hann um salinn. dv Mynd dAníEl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.