Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Qupperneq 32
Ábyrgðaryfirlýsing sem fyrrver- andi framkvæmdastjóri Verðbréfa- þjónustu sparisjóðanna Viggó Þórir Þórisson gaf út fyrir erlent fyrirtæki hljóðaði upp á tvö hundruð milljón- ir bandaríkjadala, eða þrettán millj- arða og fjörutíu milljónir íslenskra króna. Helgi Gunnar Magnússon, yf- irmaður efnahagsbrotadeild- ar Ríkislögreglustjóra, segir það meðal annars í rannsókn hvort fram- kvæmdastjórinn fyrrverandi teng- ist fyrirtæki sem ábyrgðaryfirlýs- ingin var gefin út fyrir. Fyrirtækið er bandarískt fjárfestingarfyrirtæki. Rannsókn efnahagsbrotadeildar- innar beinist einnig að því að kanna hvort ferkari samskipti hafi verið á milli framkvæmdastjórans og er- lenda fyrirtækisins. Eins verða önnur vinnubrögð Viggós rannsökuð. Ábyrgðaryfirlýsingin er trygging fyrir greiðslu láns á ákveðnu tímabili sem var rétt hafið og átti að standa yfir næstu tvö til þrjú árin. Ekkert bendir til þess að lánið hafi verið veitt og því hefur ekki reynt á greiðsl- ur af því. Helgi Magnús segir ekki hafa ver- ið ástæðu til að fara fram á gæslu- varðhald yfir Viggó en nauðsynlegt hafi verið að óska eftir farbanni til þess að tryggja veru hans hér á landi. Rannsókn er á frumstigi og málið er viðkvæmt. Býst Helgi Magnús við að nokkrir mánuðir geti verið í niður- stöður rannsóknarinnar því tengsl málsins við útlönd geri málið sein- legra í rannsókn. Viggó var þegar sagt upp störfum hjá Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna þegar þessi mistök í starfi hans voru ljós, eins og það er orðað í fréttatil- kynningu frá VSP. Þar kemur einnig fram að VSP muni ekki veita frekari upplýsingar um málið á meðan það er í rannsókn en málið sagt hvorki hafa áhrif á rekstur né fjárhagsstöðu fyrirtækisins. hrs@dv.is Reykjavíkurborg gaf Ungmennafé- lagi Íslands, UMFÍ, verðmæta lóð við Tryggvagötu 13 síðastliðið haust þrátt fyrir að aðeins tíu prósent að- ildarfélaga samtakanna séu skráð í borginni. Lóðin er metin á ríflega 80 millj- ónir hjá Fasteignamati ríkisins. Þar fyrirhuga samtökin að reisa fjöl- nota hús þar sem höfuðstöðvar þess verður að finna ásamt því að við- ræður standa yfir um að reka hótel í stórum hluta hússins. Búist er við að húsið verði tekið í notkun um mitt ár 2009. Leifur Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri fasteignasölunnar 101, telur mjög líklegt að söluand- virði lóðarinnar sé vel yfir fasteigna- matinu. „Verðmat byggir á mögu- legu byggingamagni og þarna er hægt að byggja nokkrar hæðir. Þetta er virkilega góð lóð og staðsetning- in mjög eftirsótt. Í mínum huga er þetta mjög góð söluvara og leikur einn að fá verð vel yfir mati,“ segir Leifur. Breyttar forsendur Svandís Svavarsdóttir, borgar- fulltrúi vinstri grænna og fulltrúi í skipulagsráði Reykjavíkurborgar, er hissa á því að UMFÍ stefni á að leigja út gistirekstur í húsinu í stað þess að sjá sjálft um reksturinn. Hún tel- ur forsendur fyrir ákvörðun borgar- innar breyttar. „Ég hef velt vöngum yfir því að svona ofsalega dýrmæt lóð í mið- bænum hafi verið afhent með þess- um hætti. Hér er um að ræða lands- samtök ungmennafélaga. Þetta var á sínum tíma fóðrað með því að um væri að ræða fjölbreytt „ungdóms- hús“ og svo virðist sem forsendurn- ar séu með þessu að breytast,“ segir Svandís. „Svo ekki sé tekið dýpra í árinni tel ég það mjög vafasamt að færa gistirekstur í hendur aðila sem hefur væntanlega gróðasjónarmið að leiðarljósi.“ Erum ekki að braska Sæmundur Runólfsson, fram- kvæmdastjóri Ungmennafélags Ís- lands, segir fyrirhugað að reisa fjöl- nota höfuðstöðvar samtakanna á lóðinni. Stór hluti hússins verð- ur leigður út til gistihúsarekstrar. Sæmundur vill ekki gefa upp við hvaða aðila samtökin eiga í við- ræðum. „Þetta verður svona hús fólksins. Í fyrsta lagi verður þarna þjónustumiðstöð fyrir félagsmenn ungmennafélaga hringinn í kring- um landið sem öll hafa mikil sam- skipti við jafnaldra sína á höfuð- borgarsvæðinu. Síðan er verið að vinna í því að leigja gistirekstur út til aðila sem kunna til verka í þeim efnum og við treystum fullkomlega,“ segir Sæmundur. „UMFÍ mun eiga bæði lóðina og húseignina og við erum ekki að braska neitt með það. Hótelrekstur er einn möguleiki og meirihluti húsnæðisins fellur und- ir þá hlið. Við erum ekki í bissness- hugleiðingum heldur viljum koma upp fjölnota húsi til að breyta ásýnd miðbæjarins.“ Hvorki náðist í Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, formann skipulags- ráðs Reykavíkurborgar, né Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson borgarstjóra þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. þriðjudagur 17. apríl 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910 Fréttaskot 5 1 2 7 0 7 0 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur. Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins. Laugavegur 53b • 101 Reykjavík • 5 11 3350 • www.hereford.is HerefordBorðapantanir í síma 511 3350 2 fyri r 1 á drykk jum hússi ns 17 -19 Íslenska nautakjötið klikkar ekki. Notum eingöngu sérvalið íslenskt nautakjöt á Hereford steikhúsi Rausnarskapur er þetta... Ungmennafélag Íslands byggir í Reykjavík. Stór hluti verður leigður út til hótelrekstrar: Wally er snúinn aftur Breski spéfuglinn Wally er snúinn aftur til Reykjavíkur. Hann skemmti vegfarendum í miðbæ borgarinnar síðasta sumar og er nú kominn aftur þó ekki sé enn komið sumar. Átta ára í drullufor Átta ára drengur festist í drullu í húsgrunni við Kríuás í Hafnarfirði í gær. Fólk sem komið hafði drengn- um til aðstoðar átti í stökustu vand- ræðum með að ná honum lausum og hafði bjástrað í um hálftíma við björgunina þegar tekið var á það ráð að leita eftir aðstoð slökkviliðs. Svo fastur var pilturinn í forinni að það tók vaska slökkviliðsmenn fimmtán mínútur að ná honum lausum. Þurftu þeir að grafa og toga í unga sveininn. Að sögn varðstjóra varð drengnum ekki meint af þess- um ævintýrum, en hann var ansi drullugur. Halda áfram að klippa Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hélt áfram átaki sínu varðandi óskoðaðar bifreiðar í borg- inni. Að þessu sinni voru límdar skoð- unarboðanir á tuttugu og fimm bifreiðar í nótt. Lögreglan límdir tilkynningar bæði á númerplötur og á rúðu bílstjóramegin. Eigend- ur bílanna hafa viku til að bregð- ast við og að þeim tíma liðnum klippir lögreglan númeraplötu af bílunum ef skoðun hefur ekki verið sinnt. Ölvuð í Hafnarfirði Tæplega þrítug kona var tekin ölvuð við stýri í Hafnarfirði í nótt. Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu hafði afskipti af henni eftir undarlegt aksturslag og var hún færð á lögreglustöðina til mæl- inga á blóði. Bifreiðin var kyrrsett og ökumaður bíður nú refsingar fyrir háttalagið. REYKJAVÍKURBORG GAF HÓTELLÓÐ Í MIÐBORGINNI trausti haFstEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Fiskifræðingar í heimi skrifræðis Stjórn Árborgar, félags smábáta- eigenda á Suðurlandi, skorar á sjáv- arútvegsráðherra að bæta nú þegar 20 til 30 þúsund tonnum við þorsk- kvóta yfirstandandi fiskveiðiárs og að kvóti næsta fiskveiðiárs verði ekki undir 280 þúsund tonnum. Segir í ályktun frá stjórn Árborgar að undanfarin misseri hafi þorskafli allt í kringum landið verið með eind- emum góður og það sé félaginu al- gerlega óskiljanlegt að Hafrannsókn- arstofnun skuli ekki verða vör við þessa miklu þorskgengd. „Svo virðist sem Hafrannsóknarstofnun hafi misst allt jarðsamband og lifi í lok- uðum heimi skrifræðis og vitlausra tölvulíkana varðandi þorskstofninn,“ segir meðal annars í ályktuninni. Spennt fyrir olíuhreinsunarstöð „Þegar menn tala um svona rosalega starfsemi og mikla upp- byggingu erum við spennt,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði. Uppi eru hugmynd- ir um að reisa olíubirgðastöð á Vestfjörðum sem myndi sjá meira en 500 manns fyrir vinnu. Vestfirðingar hafa lýst því yfir að þeir vilja hafa landshlutann stóriðjulausan og segir Halldór að þessi möguleiki verði skoðað- ur í því samhengi. „Þetta notar mjög lítið rafmagn, bara brota- brot af því sem álver notar. Meng- un er innan við tíu prósent af því sem kemur frá álveri,“ segir hann og bætir við að fullkomnar meng- unarvarnir yrðu settar upp ef af yrði. Þær myndu þá einnig nýtast ef sjóslys yrði út af Vestfjörðum. Halldór býst við að það geti skýrst á næstu vikum hvort af þessu verði. Tengsl framkvæmdastjórans við bandarískt fyrirtæki rannsökuð: Í ábyrgð fyrir þrettán milljarða Hafís nærri Horni Landhelgisgæslan fór nýverið í ískönnunarleiðangur útfrá Vestfjörð- um. Ísrönd fannst næst landi einum 27 sjómílum norðaustur af Horni. Litlar breytingar hafa verið á mæl- ingunum í apríl og lítið hefur dregið úr hafís á þessum slóðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.