Fréttatíminn - 10.12.2010, Síða 22
H
ugmyndin á bak
við Moda Operandi
er einföld. Innan
48 klukkustunda
eftir að fatalína
hefur verið sýnd á tískusýningu
geta meðlimir vefsíðunnar moda
operandi.com pantað sér þau föt,
skó eða fylgihluti sem hugurinn
girnist. Þeir borga 50 prósent af
verðinu við pöntun og fá svo vör
urnar sendar um það bil fjórum
mánuðum síðar. Það er um það
bil tveimur mánuðum fyrr en nú
tíðkast því fatnaðurinn sem er til
sýnist á sýningarpöllunum fæst
yfirleitt ekki fyrr en hálfu ári síðar
í verslunum.
Hámenntaður lögfræðingur
Hugmyndafræðingur og einn af
eigendum Moda Operandi er Ás
laug Magnúsdóttir, sem býr og
starfar í New York. Áslaug er með
lögfræðigráður frá Háskóla Ís
lands og bandaríska háskólanum
Duke og MBAgráðu frá Harvard.
Hún starfaði um hríð fyrir Baug
í London, þar sem Mosaic Fas
hion var meðal helstu verkefna
hennar, en hefur verið í New York
frá 2006 þar sem hún hefur unnið
fyrir ýmis fyrirtæki tengd fram
leiðslu, markaðssetningu og sölu á
tískuvarningi
Áslaug segir að hún hafi lengi
haft áhuga á tískugeiranum og
hún hafi loks fengið tækifæri til að
sameina hann og viðskiptaáhug
ann þegar hún var hjá Baugi.
„Ég hef mjög gaman af að vinna
med hönnuðum og skapandi fólki
og tískuheimurinn gerir mér ein
mitt kleift að vera í nánu samstarfi
við marga ótrúlega hæfileikaríka
hönnuði.“
Áður en Áslaug stofnaði Moda
Operandi vann hún hjá Gilt Noire,
sem rekur meðal annars vefsíðu
þar sem ýmsar lúxusvörur eru til
sölu. Hún var líka um hríð ráð
gjafi hjá Marvin Traub Associates
og stofnaði með þeim fjárfest
ingarfyrirtækið TSM Capital, sem
Stofnar eigið
sprotafyrirtæki
í tískuheimi
New York
Áslaug Magnúsdóttir býr og starfar í New York. Í byrjun næsta
árs verður opnuð hjá nýju fyrirtæki hennar, Moda Operandi,
vefsíða þar sem hægt verður að panta hátískufatnað frá mörgum
af þekktustu hönnuðum heims innan við tveimur sólarhringum
eftir að hann birtist á tískusýningarpöllunum.
The Wall Street Journal
Birti stóra grein um Moda
Operandi og viðtal við Ás-
laugu í síðustu viku.
Meðal samstarfsfólks Áslaugar
Andre Benjamin
Þekktastur sem annar
helmingur Outkast.
Hefur verið einn af
best klæddu mönnum
tónlistarheimsins
um árabil. Setti eigin
fatalínu, Benjamin
Bixby, á markað fyrir
tveimur árum.
22 viðtal Helgin 10.-12. desember 2010