Fréttatíminn - 10.12.2010, Page 62
62 jólabaksturinn Helgin 10.-12. desember 2010
Hnetu- og
núggat smá-
kökur
250 g smjör
150 g sykur
1 egg
½ tsk. kanill
1 tsk. lyftiduft
200 g fínmalaðar
heslihnetur (nýmalaðar
í matvinnsluvél)
um 400 g hveiti
300 g mjúkt núggat
Smjör og sykur hrært
vel saman. Eggi, kanil,
lyftidufti og fínmöl-
uðum hnetum hrært
saman við og að síðustu
hveiti, nægilega miklu
til að auðvelt sé að
hnoða deigið slétt og
sprungulaust – ekki
víst að nota þurfi allt
hveitið. Deigið er síðan
geymt í kæli í a.m.k. 1
klst. og síðan flatt út í
um 2 mm þykkt (best að
fletja aðeins lítinn hluta
af deiginu út í senn).
Ofninn hitaður í 200°C.
Litlir hringir, um 4 cm
í þvermál, stungnir úr
deiginu og miðjan (um
1 cm hringur) stunginn
úr helmingi þeirra.
Kökurnar bakaðar efst
í ofni í 4-5 mínútur,
eða þar til þær eru rétt
að byrja að taka lit.
Fylgjast þarf vel með
þeim, þær eru fljótar
að brenna. Kökurnar
látnar kólna á rist og
á meðan er núggatið
brætt gætilega og um
hálf teskeið sett á
hverja heila köku.
Hringur lagður ofan á
og þrýst létt saman.
Kældar þar til núggatið
er stíft.
Jólailmurinn
Uppáhaldssmákökurnar
Þessar gómsætu smákökur – kryddaðar með kanil – eru upprunnar í Alsace. Þær eru einstaklega
góðar en galdurinn er að mala hneturnar nógu fínt – það dugir ekki að kaupa malaðar hnetur.
Þeytt í þrjá stundar fjórðunga – í hönd un um
Jólabaksturinn er ekki erfiður fyrir nútímafólk miðað við það sem áður var. Hér er uppskrift úr matreiðslubók
Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur frá 1858:
Möndlu
kökur
12 eggjablóm skal fyrst
þeyta fjórðung stundar,
og síðan ½ stund
ásamt ¾ pd af steyttu
hvítasykri, 3 lóðum af
smásteyttum bitrum
möndlum og 12 lóðum
af söxuðum sætum
möndlum. Svo skal
skera 12 lóð af sætum
möndlum í lengjur og
láta saman við. Síðan
skal láta smákekki af
deigi þessu á plötuna,
sem smjör skal borið á,
og baka hægt. Verða
um 60 kökur.
Allur ágóði sölunnar rennur óskertur
til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
SÖLUSTAÐIR
Casa - K r i ng lunn i og Ske i funn i
Epa l - Ske i funn i og Le i f ss töð
Kokka - Laugaveg i
L i s tasa fn Reyk jav íku r - Ha fna rhús inu
L í f og l i s t - Smára l i nd
Hafnarborg - Ha fna r f i rð i
Módern – H l í ða r smára
Blóma- og g ja fabúð in - Sauðá rk rók i
Norska hús ið - S tykk i shó lm i
Pó ley - Vestmannaey jum
Va l rós - Aku rey r i
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA OG FATL AÐ R A
SÖ
LU
TÍ
M
A
BI
L
4.
-1
8.
D
ES
EM
BE
R
FJARLÆGÐ eftir Katrínu Sigurðardóttur
2 0 1 0