Fréttatíminn - 10.12.2010, Side 76
Þ
etta er málið, að koma
til Hafnarfjarðar og fá
jólastemninguna beint
í æð,“ segir Ásbjörg
Una Björnsdóttir, verk-
efnastýra hjá skrifstofu menning-
ar og ferðamála í Hafnarfirði, um
Jólaþorpið í miðbæ Hafnarfjarðar.
Jólaþorpið er risið í sjöunda sinn og
nýtur mikilla vinsælda. Áætlað er
að um tíu þúsund manns hafi litið
inn í þessu þorpi tuttugu smáhýsa
á Thorsplani helgina sem opnað var
fyrir hálfum mánuði og um liðna
helgi voru litlu færri, að sögn Ás-
bjargar Unu. Jólaveðrið hefur leikið
við Hafnfirðinga og gesti þeirra og
þeir búast við ekki síðri aðsókn í
þorpið nú um helgina.
„Í Jólaþorpinu er boðið upp á
alls konar handunnið jólaskraut úr
tré, leirvörur, skartgripi, handgerð
púsluspil úr tré, jólakort og margt
fleira, auk þess sem nunnurnar eru
hér með handgerðu kertin sín,“ seg-
ir Ásbjörg en í þorpinu er að finna
gjafavöru, heimilisiðnað, handverk
og hönnun, eitthvað við allra hæfi.
„Síðan erum við með alls konar veit-
ingar; kökur, sælgæti, pönnukökur,
vöfflur og heitt kakó. Fólk getur því
komið og notið þess að vera hér, það
kostar ekkert inn en í boði eru, auk
varningsins, fjölbreytt skemmtiat-
riði,“ segir Ásbjörg og nefnir að á
morgun, laugardag, leiki félagar úr
Lúðrasveit Hafnarfjarðar jólalög,
grínistinn Ari Eldjárn skemmti,
sem og Lalli töframaður. Mikki ref-
ur og Lilli klifurmús leika listir sín-
ar fyrir börnin og fleira er á dagskrá
fyrir þau en Ásbjörg segir að meðal
annars sé lesið upp úr barnabók í
rými þar sem börnin geti sest inn,
rétt við Jólaþorpið. Það er opið kl.
13-18 bæði laugardag og sunnudag
en á sunnudag klukkan 15 verður
úti-jólaball þar sem Jólasveinaband-
ið heldur uppi stuðinu. „Þeir eru frá-
bærir, Jólasveinabandið fær krakk-
ana til að syngja með og dansa í
kringum jólatréð,“ segir Ásbjörg.
Hafnarfjarðarbær sér um skipu-
lagningu Jólaþorpsins en það nýtur
stuðnings Rio Tinto Alcan, að sögn
Ásbjargar Unu. Smáhýsaþyrping-
in fékk nýlega einkarétt á nafninu
Jólaþorp.
Hafnfirðingar og gestir þeirra
geta einnig tekið þátt í hátíð Ham-
arskotslækjar á morgun, laugar-
daginn 12. desember, en þá er þess
minnst að þann dag árið 1904 var
kveikt fyrsta rafljósið í Hafnarfirði –
og raunar á Íslandi. Hátíðin minnir
á mikilvægi Lækjarins í Hafnarfirði
og ljóssins með ratleik við Hamars-
kotslæk og nágrenni klukkan 10
og Kaldárhlaupi, 10 kílómetra víða-
vangshlaupi, kl. 13.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Jólastemningin
beint í æð
Jólaþorpið á Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar nýtur mikilla
vinsælda. Þar geta gestir notið veitinga og skemmtiatriða og
keypt ýmiss konar heimilisiðnað og handverk sem er í boði í
tuttugu smáhýsum.
Jólaveina-
bandið
fær krakk-
ana til að
syngja með
og dansa
í kringum
jólatréð.
Þúsundir manna hafa sótt Jólaþorpið í Hafnarfirði heim undanfarnar helgar. Búist er við fjölmenni um helgina. Ljósmynd/Guðni
náttúrulega
góð jólagjöf
100% náttúrulegar snyrtivörur unnar úr lífrænt ræktuðum jurtum
Þú færð mikið úrval af skemmtilegum
jólagjafaöskjum frá Dr.Hauschka
Dr.Hauschka snyrtivörur fyrir húðina
Dr.Hauschka fæst í Yggdrasil, Heilsuveri,
Fjarðarkaupum og Maður lifandi.
HELGARBLAÐ
Fékkstu ekki Fréttatímann heim?
Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar-
svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita
með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is
Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is
76 jól Helgin 10.-12. desember 2010