Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ 1985;71:9-15 9 Leifur Jónsson FRÁ MOXÍBÚSTÍÓN TIL MÍKRÓKÍRÚRGÍU Léttvísindaleg ferðasaga með sögulegu ívafi AÐDRAGANDI í lok menningarbyltingarinnar 1976 tók Kína að opnast. Kínverjar sneru baki við Ráðstjórn- arríkjunum og leituðu samstarfs við þjóðir hins vestræna heims. Bandaríkjamenn þótt- ust nú heldur betur hafa eignazt bandamann gegn erkióvininum, auk þess sem þeir sáu í Kína nær ótakmarkaðan markað fyrir of- framleiðslu sína, svo og ódýrt vinnuafl. Kínverjar leituðu samstarfs við vestrænar þjóðir á breiðum grundvelli, en Bandaríkja- mönnum tókst að miklu leyti að einoka þetta samstarf fyrstu árin. Sameiginlegar ráðstefn- ur um ólíklegustu efni voru haldnar með þessum þjóðum og þegar nú leið að ráðstefnu um lýtalækningar, þótti Kínverjum nóg komið og kröfðust þess, að hún yrði ekki aðeins kínverskbandarísk, heldur alþjóðleg. Var ráðstefnan síðan auglýst sem »The Be- ijing International Conference on Plastic Surgery« og skyldi haldin í höfuðborg Kína, Beijing, dagana 4.-9. júní 1984. Ég frétti ekki af ráðstefnu þessari fyrr en allur umsóknarfrestur var útrunninn og þá af tilviljun, gegnum Árna kollega Björnsson, sem ætlaði að sækja ráðstefnuna ásamt konu sinni. Skrifaði ég nú af bjartsýni til Kína og hlaut svar að vörmu spori. Var á svarinu að skilja, að þeir hefðu beðið eftir bréfi mínu, og var ég hjartanlega velkominn ásamt minni frú. Skildi ég síðar, að Kínverjar lögðu mikla áherzlu á, að fá sem flestar þjóðir til að mæta og þar með undirstrika alþjóðlegt andrúms- loft ráðstefnunnar og minnka þannig, ef mögulegt væri, bandaríska svipinn. Varð og sú raunin á, að 16 þjóðir mættu til leiks. Formaður ráðstefnunnar var prófessor Ruy- ao-Song, yfirlæknir við lýtalækninga- sjúkrahúsið Ba-Da-Chu í Beijing, en vara- formaður bandarískur læknir af kínverskum ættum, dr. William W. Shaw. Yfir undirbúningi ráðstefnunnar hvíldi nokkur leynd, en víða kom fram, að Kínverj- um hefði þótt Bandaríkjamenn all ráðríkir við uppsetningu dagskrár. Til marks um það má nefna, að fyrirlesarar, sem Kínverjar buðu til ráðstefnunnar, m.a. frá Indlandi, komust ekki á mælendaskrá. Kínverjar áttu undir högg að sækja, því kostnaður var að einhverju Ieyti greiddur af ýmsum bandarískum mennt- unarsjóðum. Framkvæmd í Kína var að öðru leyti í höndum The China Association for Science and Technology (CAST). Að lokinni Kínaför er mér fyrst ljóst, hve litið við íslendingar í rauninni vitum um þetta stóra Iand og þjóðirnar, sem það byggja. Saga Kínverja undanfarna áratugi hefur heldur ekki verið auðlærð. Það sem hvítt var í gær, telst svart í dag og öfugt. Tel ég því nauðsyn- Iegt að fara nokkrum orðum um fortíðina, áður en nútíðin tekur við. KÍNA FYRR Á TÍÐ Saga Kínverjaer vel varðveitt rúmlega 4000 ár aftur í tímann og nýlega hefur verið grafinn upp 7000 ára gamall steinaldarbær í nágrenni Xian. Saga þeirra einkennist ýmist af fylkis- konungum, sem börðust við aðra álíka eða byggðu himinháa varnargarða kringum fylki sín. Árið 221 fyrir Kristsburð kom Haraldur hárfagri þeirra Kinverja til sögunnar og sameinaði flest fylkin og kallaði Miðríkið. Miklir múrar eru byggðir við norðurjaðar ríkisins og aðrir stubbar tengdir saman. Hver keisaraættin tók nú við af annarri og mikil mannvirki voru byggð, guðum og keisurum til dýrðar, en einnig landinu til varnar gegn villimannaþjóðflokkum að norðan og illvígum ám, svo sem Gulafljótinu. Ekki má heldur gleyma uppistöðulónum og áveitu- skurðum, sem byggðir voru löngu fyrir Kristsburð og Skurðurinn mikli frá Peking til Hanchow er þeirra frægastur, enda 1700 km langur, víðast skipgengur og að hluta notaður enn í dag. Öll þau mannvirki, sem þessi sístarfandi þjóð hefur skapað um aldir, undir ógnar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.