Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.02.1985, Blaðsíða 33
LÆKNABLADID 19 Leif Bárðarson í Læknablaðinu febrúar 1980. »Greinargerð um framhaldsnám í almenn- num lyflækningum á íslandi«, höfundar Bjarni Þjóðleifsson, Sigurður B. Þorsteins- son og Eiríkur Benmjamínsson, Lækna- blaðið apríl 1980. Einnig sendu 3 læknir í Bretlandi »námslýsingu fyrir framhaldsnám í meinafræði á íslandi«, og birt var í Lækna- blaðinu i júlí 1978. Um áramótin 1975-1976 beitti L.í. sér fyrir viðræðum við menntamálaraðuneytið, heil- brigðismálaráðuneytið og læknadeild Há- skóla íslands um framhaldsmenntunina, og skiluðu fulltrúar þessara aðila tillögum í janúar1977. Lítil hreyfing var á málinu næstu árin eins og ályktanir aðalfunda L.í. bera með sér. Húsavíkurfundurinn 1980 skoraði á forseta læknadeildar og ráðuneytisstjóra heilbrigð- isráðuneytis að beita sér fyrir því í samráði við nefnd L.í. um framhaldsmenntun að koma á framhaldsmenntun lækna. Á aðalfundinum í Stykkishólmi 1982 var eftirfarandi tillaga frá stjórn L.í. samþykkt eftir miklar og fjörugar unræður: »Aðalfundurinn telur brýnt að koma á sem allra fyrst skipulögðu framhaldsnámi lækna á fslandi. Aðalfundurinn heimilar stjórn félags- ins að greiða laun, allt að þrem eyktum sérfræðings, lækni, sem ráðinn yrði til að vinna að framgangi málsins. Þessi ákvörðum skal koma til endurskoðunar á næsta aðal- fundi félagsins.« í fundargerð aðalfundarins 1982 segir m.a.: »Læknadeild Háskóla íslands hefur haft þetta framhaldsmenntunarmál lækna á íslandi undir höndum í allmörg ár og ekkert raunhæft hefur gerst í málinu enn sem komið er. Þess vegna er ástæða til, að einhver annar aðili, og þá læknasamtökin, taki málið í sínar hendur. Það er ljóst, að stjórnir stóru spítal- anna í Reykjavik ásamt yfirmönnum deilda þessara spítala verða að fjalla um málið og komast að samkomulagi um það, hvernig framhaldsmenntunin eigi að vera í smá- atriðum. Þegar hefur verið lögð fram töluverð vinna í þetta mál af hendi lækna á spítölunum, sbr. greinargerðir þar að lútandi, sem birst hafa í Læknablaðinu á undanförnum árum. Þessi undirbúningsvinna, sem þegar hefur verið unnin, er nauðsynleg, til þess að hægt sé að halda áfram með þessi mál, og því ber ekki að líta svo á, að tímanum hafi verið til einskis varið hingað til. Víða erlendis, bæði austan hafs og vestan, eru framhaldsmenntunarmál og -skilyrði í höndum sérgreinafélaga lækna, en háskólaspítalar (fyrst og fremst) veita þessa menntun. Þannig eru það læknasamtökin, sem eiga framkvæðið í framhaldsmenntun lækna, en ekki háskóladeildir. Nú veit ég ekki, hvort raunhæft er eða æskilegt að taka forræði málsins undan læknadeild. Til þess þyrfti m.a. lagabreyt- ingu, en því er ekki að leyna, að dugleysi deildarinnar í framhaldsmenntunarmálinu hefur verið með ólíkindum, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Stjórn L.í. notfærði sér ekki heimild þá, sem fólst í samþykki aðalfundarins 1982 um að ráða lækni í hlutastarf, en kom á samvinnu við yfirlækna lyfjadeilda spítalanna þriggja í Reykjavík og skipaði þá í nefnd, ásamt tveim fulltrúm aðstoðarlækna, til að standa fyrir hálfsdags námskeiðum, þar sem fluttir voru fyrirlestrar um afmörkuð efni og gert ráð fyrir því, að þátttakendur hefðu starfað sem aðstoðarlæknar á lyflæknisdeildum í 1-2 ár og hyggðu á sérnám í lyflæknisfræði. í fyrravetur urðu námskeiðin 2, en 3 í vetur sem leið. Aðalfundur Félags ungra lækna í nóvem- ber 1982 samþykkti áskorun til heil- brigðisráðherra um að koma á fót fram- haldsnámi fyrir lækna hér á landi. í framhaldi af því skipaði ráðherra í marz 1983 5 manna nefnd í málið, þá Guðjón Magnússon, aðstoðarlandlækni, formann nefndarinnar, Árna Gunnarsson, skriftstofustjóra í mennt- amálaráðuneytinu, Þorstein Svörfuð Stefánsson frá læknadeild, Þorvald Veigar Guðmundsson frá L.í. og Finnboga Jakobs- son fulltrúa F.U.L. Nefndin skilaði ráðherra áliti sínu fyrir nokkrum dögum, og með leyfi formanns nefndarinnar ætla ég nú að skýra frá helztu niðurstöðum hennar. í almenna kaflanum segir, að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu, að brýnt sé, að skipulegt sérnám hérlendis hefjist sem allra fyrst, en eftir sem áður muni þó megin þorri íslenzkra lækna þurfa að fara til annarra landa í sérnám. Stefnt skuli að því, að sérnámið hérlendis í upphafi verði 1-2 ár. Það sem mælir með því, að sérnámið sé tekið upp hérlendis er m.a. eftirfarandi: 1. íslendingar eru tilneyddir að taka þessi mál
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.