Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.02.1985, Qupperneq 24

Læknablaðið - 15.02.1985, Qupperneq 24
16 LÆKNABLAÐIÐ 1985;71:16-17 VIÐ ÞURFUM VERÐSKYN Á HEILBRIGÐISMÁL Á Vesturlöndum tekur heilbrigðisþjónustan sífellt stærri skerf af þjóðartekjum. Til þess liggja margar eðlilegar ástæður svo sem hærri meðalaldur og fleira. Þó er enginn vafi, að þar sem heilbrigðisþjónusta er »ókeyp- is«, sem þýðir að hún er greidd úr sameiginleg- um sjóðum borgaranna að öllu leyti fremur en af einstökum neytendum, þar verður kostn- aðarauknungin hraðari en jafnframt versnar þjónustan við einstaklingana og þeir hafa sífellt minna val um það hvað fáanlegt er. í mörgum Iöndum hafa komið upp tvöföld heilbrigðiskerfi, hið opinbera og almenna sem kostað er af ríkinu og sagt er að eigi að tryggja öryggi allra, og hins vegar einkaþjónusta svipað og nú er í Englandi, sem er dýrari, fljótvirkari og sumir segja miklu öruggari. Einkaþjónustan er eðlileg Ieið framhjá opin- beru kerfi sem er lamað af fjárskorti og seinagangi. Stundum skortir einnig á að neytandinn finni, að hann sé virtur eins og venjulegur viðskiptavinur — traustið getur stundum farið forgörðum í hinu opinbera kerfi. Eftirfarandi hugmyndir eru settar hér fram sem tillögur til úrbóta á því ástandi, sem ríkir á íslandi, og jafnframt tillögur til að gera verðmætamatið i heilbrigðisþjónustunni mun skýrara og auka ábyrgð einstaklingsins án þess að taka frá honum mikilvægustu trygg- ingar. Von mín er að slíkt gæti komið í veg fyr- ir óþarflega dýrt heilbrigðiskerfi, sem kannski er jafnframt ófullnægjandi. 1. Neytendur almennrar heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa skulu greiða þekkt hlut- fall af þeirri þjónustu sem þeir fá, hvort sem um er að ræða lyf, læknaviðtöl, rannsóknir, hjúkrun eða annað. Kæmi þetta í stað hinna föstu gjalda sem nú eru. Neytandi fengi þá skýra hugmynd um raunverulegan kostnað. Þetta hlutfall yrðu stjórnvöld á hverjum tfma að ákveða t.d. milli 10 og 50%. Aldrað fólk, öryrkjar og umfram allt börn ættu að greiða minna gjald t.d. hálft eða þaðan af minna. 2. Sjúklingur sem útskrifast af sjúkrahúsi færsundurliðaðanreikningyfirallankostn- að við sjúkrahusdvöl sina. Um það hef- ur verið deilt, hvort fólk eigi að greiða mat sinn eða eitthvað meira dveljist það á sjúkrahúsum. Ef greiðslurkoma til greina ættu þær að vera lágar, að minnsta kosti til reynslu, í byrjun t.d. 5% fyrir venjulegt fullorðið fólk, 3% fyrir aldraða, 2% fyrir öryrkja, 1% fyrir börn. Er þá jafnframt sann- girnismál að öryrkjar og aldraðir missi ekki tryggingabætur sínar eftir þriðja mánuð á sjúkrastofnun eins og nú er. í dag eru þessir tveir hópar þeir einu sem verða að sjá af tekjum sínum til að greiða sjúkrahúsdvöl. 3. Um áramót skal hver samlagsmaður fá yfirlit frá Tryggingastofnun/Sjúkrasam- lagi yfir kostnað við heilsugæslu sina eða barna sinna yfir árið. Þar þarf að sundur- liða annars vegar óhjákvæmilegan kostn- að við heilsugæslu hvers borgara án tillits til þess hvort hann hefur notað heilsugæsl- una eða ekki og hins vegar það sem hann kann að hafa notað sjálfur með þvi að leita lækna, nota lyf og svo framvegis. Á þessu yfirliti skal einnig koma fram hversu mikið samlagsmaður hefur greitt í heilbrigðis- trygginguna með sköttum sínum eða öðru móti. 4. Áfast ofangreindum reikningi fá þeir sam- lagsmenn nokkra fjárupphæð sem ekkert hafa notað heilsugæsluna síðasta ár. Sú upphæð mætti vera á bilinu 2-5 þúsund krónur. Þeir sem hafa notað innan við t.d. 10 þúsund krónur úr hinum sameiginlega sjóði fái fálfu minna. Aðrir fái ekkert annað en reikning sinn greiddan og kvitt- aðan og fá þeir greinilega mest. Þessi upphæð má ékki vera svo mikil að

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.