Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1985, Síða 34

Læknablaðið - 15.02.1985, Síða 34
20 LÆK.NABLADID föstum tökum vegna vaxandi erfiðleika á aðalvinnumörkuðum okkar erlendis, sem stafa af auknum fjölda þarlendra lækna. 2. Sérnámið mun brúa það bil, sem nú er á milli sérfræðinga og aðstoðarlækna, fag- legur metnaður eykst milli deilda og það ýtir undir vísindavinnu. 3. Sumar sérgreinar eru þess eðlis (t.d. heim- ilislækningar), að heppilegt er að stunda þær í heimalandinu! 4. Sérnámið eykur á sjálfstæði símennt- unar lækna hér heima og gerir hana ekki eins háða öðrum löndum og nú er. 5. Læknir, sem lokið hefur hér hluta sérnáms, bætir með því samkeppn- isaðstöðu sína við stöðuumsóknir ytra. 6. Sérnámið hérlendis mun draga úr þeirri félagslegu röskun, sem fylgir framhalds- námi erlendis. Á meðal yngri lækna af báðum kynjum er aukinn áhugi á að stunda hluta sérnáms hér heima, þar sem því fylgir minni fjölskylduröskun en ella. Að mati nefndarinnar eru helztu ókostir við að taka upp sérnám hérlendis eftirfarandi: 1. Aðalstyrkur íslenzkrar læknastéttar hefur verið, hversu víða læknarnir eru mennt- aðir og koma heim með ólíkan bakgrunn og mismunandi aðferðir. Sérnám hér mun að einhverjum hluta draga úr þessu. 2. Sú hætta er fyrir hendi, að of mikið verði blínt á nám í aðalgreinum hér á landi, en erfiðara að fá tíma í hliðargreinum. 3. Sérnámi fylgir óhjákvæmilega kostnað- arauki fyrir heilbrigðiskerfið, sem þó verður óverulegur skv. áliti nefndarinnar, þar sem allar forsendur séu þegar fyrir hendi, þ.e. námsstöður og kennslukraf- tar. Nefndin Ieggur ríka áherzlu á, að samningar náist við erlendar heilbrigðisstofnanir um framhald á sérnámi. Nefndin gerir að tillögu sinni, að stefnt skuli að sérnámi í eftirtöldum greinum: 1. Heimilislækningum. 2. Lyflæknisfræði. 3. Skurðlæknisfræði. 4. Geðlæknisfræði. Einn kafli álitsins fjallar um skipulagningu, stjórnun og eftirlit með sérnámi: Lagt er til, að heilbrigðisráðuneytið skipi þriggja manna nefnd -SÉRNÁMSNEFND LÆKNA. Ráðherra skipi formann án tilnefningar, einn sé tilnefndur af læknadeild og einn af L.í Hlutverk sérnámsnefndar verði yfirstjórn, samhæfing og eftirlit með sérnámi hérlendis. Sérnámsnefndin á að veita deildum og heilsugæzlustöðvum í hverju tilviki leyfi til að auglýsa stöður sem sérnámsstöður eða námsstöður á viðurkenndum stofnunum. Þær stöður einar, sem auglýstar eru með leyfi sérnámsnefndar, má viðurkenna til sérnáms. Gert er ráð fyrir, að ráðinn verði kennslustjóri sérnáms í hlutastarf, að stofnaður verði sérgreinahópur í hverri sérgrein, sem kennd verður með nánari ákvæðum um, hvernig hann skuli samansettur. Nefndin telur, að engar breytingar þurfi að gera á gildandi lögum eða reglugerðum, til að sérnámið geti hafist. í áliti nefndarinnar er síðan nánari úfærsla á fyrirkomulagi sérnáms í hverri grein fyrir sig, og ætla ég ekki að rekja það hér. Nefndin telur, að skipan sérgreinahóps innan heimilis- lækninga ætti að hafa forgöngu. Gert er ráð fyrir, að námi í heimilislækningum verði lokið að fullu hér heima og felist það í 1 ári á heilsugæzlustöð (sem uppfylli ákveðin skil- yrði), 1 ár á lyfjalæknisdeild, 6 mánuði á geðdeild og 6 mánuði á kvensjúkdómadeild, 1 ár á barnadeild og 6 mánuði á skurðdeild. Ég held, að það fari ekki á milli mála, að þessi greinargerð fimmmenninganna er áhugamönnum um sérnám á í slandi fagnaðar- efni og ákaflega mikilvægur áfangi í fram- haldsmenntunarmálinu. Vafalaust koma fram einhverjar athuga- semdir við miðurstöður nefndarinnar, og er ég viss um, að þeir nefndarmanna, sem hér eru á fundinum, munu fúsir að veita frekari skýringar, sé þess óskað. Nefndin leggur til, að stefnt skuli að sérnámi í 4 greinum, þ.e. heimilislækningum, lyflæknisfræði, skurðlæknisfræði og geðlæ- kningum. í þessari upptalningu sakna ég kvenlægninga, en alkunnugt er, að kvenna- deild Landspítalans hefur á síðustu árum lagt áherzlu á að undirbúa aðstoðarlækna sína sem bezt undir áframhaldandi sérnám er- lendis. Aðstoðarlæknar á augndeild Landa- kotsspítala fá 1-2 ár þar viðurkennd í sérnámi í augnlækningum. Á undanförnum árum hafa aðstoðarlæknar á röntgendeild Borgar- spítalans aflað sér mikilsverðrar undirb- úningsmenntunar þar fyrir frekara sérnám ytra, og e.t.v. má nefna fleiri dæmi. Ég vil undirstrika þá áherzlu, sem nefndin

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.