Læknablaðið - 15.05.1985, Síða 60
154
LÆKNABLAÐIÐ
uppákomum, þar sem læknar fluttu tónlist,
samda af læknum og sungu lög eftir lækna.
Tónlistarstjóri var Magnús Jóhannsson og
söngstjóri Hallgrímur Magnússon.
Að kvöldi 20. október bauð heilbrigð-
isráðherra til kokdillis að Borgartúni 6 í
samkomusal ráðuneytisins. Þar var síðan
haldið afmælishóf L.R. og stóð það frameftir
nóttu. Veizlustjóri var Örn Smári Arnalds-
son.
Ávörp fluttu formaður L.R., Matthías
Bjarnason heilbrigðisráðherra, Davíð Odds-
son, borgarstjóri, formaður L.Í., Þorvaldur
Veigar Guðmundsson, sem færði að gjöf frá
L.í. málverk eftir lækna, annað eftir
Guðmund Bjarnason, en hitt eftir Nikulás
Sigfússon. Sigursteinn Guðmundsson, færði
blóm frá Læknafélagi Norðvesturlands,
Úlfur Ragnarsson flutti kvæði fyrir minni
kvenna og Brynleifur H. Steingrímsson færði
L.R. málverk frá Læknafélagi Suðurlands.
Ýmsar fleiri gjafir og kveðjur bárust, sem ekki
verða raktar hér.
Páll Ásmundsson söng snjallan afmælis-
brag. Gunnar Herbertsson og Hrafnkell
Óskarsson fluttu læknabrag í »kántrístíl«.
Að loknu borðhaldi var stiginn dans. Hófið
sóttu um 230 manns. Alla afmælishátíðina
var húsfyllir.
Listaverkasýningin í Domus Medica var
opin almenningi sunnudaginn 21. október og
var vel sótt, þrátt fyrir að verkföll hömluðu
kynningu.
Páll Kolka tók að sér á sínum tíma að skrifa
sögu L.R. og var kominn í nokkurn gang með
gagnasöfnun, þegar hann lézt. Fjölskylda
Páls hefur tekið því vel, að reynt verði að hafa
upp áþessumgögnum. Örn Smári Arnaldsson
hefur tekið að sér ritstjórn á sögu félagsins,
sem reynt verður að gefa út á árinu 1985.
Árshátíð L.R. Árshátíð L.R. var haldin að
Hótel Sögu, Lækjarhvammi, þann 19. janúar
1985, og var húsfyllir. Heiðursgestir voru
heiðursfélagar L.R. og kandidatar frá 1940,
þeir Ólafur Bjarnason, Þórarinn Guðnason
og Þórður Oddsson. Veizlustjóri var Örn
Bjarnason. Gjaldkeri L.R., Guðmundur I.
Eyjólfsson flutti ávarp. Ræðumaður kvölds-
ins var Þórarinn Guðnason.
Læknar af Borgarspítala, þeir Ásgeir
Böðvarsson, Einar Thoroddsen og Gestur
Þorgeirsson sungu. Að lokum var stiginn
dans. Þótti þetta hin ágætasta skemmtun.
Móttaka fyrir lœknakandidata. Móttaka
fyrirlæknakandidata var haldin30. maí 1984.
Sú hefð hefur skapast á undanförnum árum,
að stjórnir L.í. og L.R. hafa efnt til móttöku
fyrir nýútskrifaða læknakandidata frá
Háskóla íslands. Formenn L.Í., L.R. og
F.U.L. og framkvæmdastjóri hafa kynnt
starfsemi félaganna og sjóða á þeirra vegum.
Jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna
L.R. og Lyfjafræðingafélags íslands var
haldin 27. desember og tókst hið bezta.
Önnur mál
Heilsugœziustöðvar í Reykjavík. Tvívegis
hefur verið ákveðinn svonefndur D-dagur,
þegar breytt skyldi yfir í kerfi heilsugæzlu-
stöðva í Reykjavík í samræmi við heil-
brigðislög. Seinast var D-dagur ákveðinn 1.
janúar 1984, en jafnframt skyldi þeim heimil-
islæknum, sem þess óskuðu, gert kleift að
starfa á eigin stofum.
í samningi um heimilislæknishjálp utan
heilsugæzlustöðva, frá 10. apríl 1984 var
númerakerfið fellt niður. Læknar fengu fast-
ar greiðslur svipaðar launum heilsugæzlu-
lækna og styrk til að reka stofu, en skyldu
nota taxta heilsugæzlulækna.
Mikil óvissa ríkir um framtíð heimilislækna
i Reykjavík. Breyttir pólitískir vindar blása,
og mikil umræða er um að skapa læknum
tækifæri til að reka eigin stofur.
Heilsugæzlulæknar eru mjög óánægðir
með kjör sín, og hafa 90% þeir sagt lausum
stöðum sínum. Um 60% heimilislækna utan
heilsugæzlustöðva hafa sagt upp störfum
sínum fyrir sjúkratryggingar.
Heimilislæknislausir eru 20 þúsund íbúar
Stór-Reykjavíkursvæðisins. Nánast engin
nýliðun hefur orðið í heimilislækningum í
Reykjavík á undanförnum árum, og talar það
sínu máli. Fáist ekki skjót og róttæk bót á
kjörum og aðstöðu þeirra, sem heimilis-
lækningar stunda, stefnir í algert óefni. Það er
siðferðileg skylda allra lækna styðja baráttu
heimilislækna á allan hátt. Þetta er barátta
okkar allra.
Cerðardómsmál. Vorið 1983 opnaði Hrafn
V. Friðriksson lækningarannsóknastofu í
sérgrein sinni, meinalífeðlisfræði (klinisk fy-
siologi). Meðal annarra rannsókna voru
gerðar lungna-, hjarta- og blóðrásar-
rannsóknir við stigvaxandi áreynslu. í fyrstu