Læknablaðið - 15.05.1985, Page 63
LÆKNABLAÐIÐ
155
greiddu T.R. og S.R. viðtöl ásamt rannsókn,
en haustið 1983 var hætt að greiða viðtölin og
skömmu síðar algerlega hætt að greiða reikn-
inga Hrafns. Af þessum sökum neyddist hann
til að loka stofu sinni vorið 1984.
Að áliti stjórnar L.R. var hér um gróft
samningsbrot að ræða af hálfu TR/SR. Reynt
var að ná samkomulagi og leit út á tímabili,
sem það væri í sjónmáli. í maí 1984 kom
tilboð til Hrafns frá TR/SR, þar sem T.R.
bauð endurgreiðslu á 44% af reikningunum,
en S.R. 46%. Að sjálfsögðu var ekki hægt að
fallast á slík tilboð, og var þess nú óskað, að
málið færi í gerðardóm.
Ýmissa ástæðna vegna dróst úr hömlu, að
dómurinn tæki til starfa, en úrskurðar mun
skammt að bíða nú.
Ágreiningur um túlkun númerasamnings. í
samningi um heimilislæknishjálp frá 1982 er
kveðið á um, að þegar verulegur heimilis-
læknaskortur sé, geti stjórnir S.R. og L.R.
sameiginlega ákveðið að úthluta nýjum
lækni, sem tekur upp heimilislækningar sem
aðalstarf, allt að 900 læknislausum sam-
lagsmönnum. Hefð hafði myndast um fram-
kvæmd, en í byrjun síðasta árs færðist stjórn
S.R. undan því að uppfylla þetta atriði
gagnvart Halldóri Jónssyni, sem þá hóf störf
sem heimilislæknir í borginni. Taldi stjórn
S.R., að ekki væri um heimilislæknaskort að
ræða í Reykjavík.
Tryggingaráð fór þess á bréflega við stjórn
S.R., að hún endurskoðaði afstöðu sína í
þessu máli. Eftir talsvert þóf náðust loks
sættir í málinu milli stjórna S.R. og L.R. í
nóvember 1984.
Örorkumatsnefnd. Að beiðni trygginga-
yfirlæknis hefur stjórn L.R. kynnt sér frum-
varp til laga um breytingu á almannatrygg-
ingalögum, þar sem gert er ráð fyrir málskots-
aðila varðandi örorkumat. Beðið var um
umsögn stjórnar L.R., sem hér fer á eftir:
»Mat á örorku hlýtur ávallt að vera
læknisfræðilegt og ekki á færi annarra en
lækna að framkvæma slíkt mat. Stjórn L.R.
telur þess vegna eðlilegt, að örorkumatsnefnd
sé skipuð læknum að meiri hluta. Fulltrúi
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis yrði
þannig að veralæknir. Hins vegar er sjálfsagt,
að heildarsamtök öryrkja hafi tilnefning-
arrétt í örorkumatsnefnd. Stjórn félagsins er
hlynnt því, að málskotsaðila eins og frum-
varpið gerir ráð fyrir sé komið upp, enda verði
meiri hluti skipaður læknum eins og að
framan greinir.«
Frumvarpið náði ekki afgreiðslu á seinasta
þingi, en mun væntanlegt í vetur.
Skólaskoðanir íKópavogi. Um langt skeið
hefur verið greitt samkvæmt samningi um
skoðanir á skólabörnum um allt land. Vorið
1984 voru niður felldar greiðslur fyrir þessar
skoðanir í Kópavogi einum staða. Yfirvöld
menntamála telja skólaskoðanir vera í verka-
hring heilsugæzlulækna og eigi ekki að
greiðast sérstaklega.
Þetta stangast á við hefð og umsamda
gjaldskrá og gildandi samning L.f. og
fjármálaráðherra. Greiðslur hafa verið
tryggðar fyrir yfirstandandi skólaár, en málið
er að öðru leyti hjá L.Í., sem ritaði ýtarlegt
bréf til ráðuneyta um þetta mál, án þess að
formleg svör hafi borist.
Mál Keflavíkur/ækna. Eftir að ný heilsu-
gæzlustöð tók til starfa í Keflavík vorið 1984,
voru felldar niður þær greiðslur, sem tíðkast
höfðu fyrir vaktir, svipað og í Reykjavik og
greitt fyrir eins og í héruðum út um land.
Læknar vildu ekki una þessu, og töldu þeir, að
um samningsrof væri að ræða og vísuðu til 9.
gr. samnings um heimilislæknishjálp. Þar
stendur: »Vaktafyrirkomulagi í Reykjavík og
nágrenni skal hagað með sama hætti og verið
hefur, þar til samningsaðilar hafa samið um
annað.«
Læknar í Keflavík lögðu niður vaktina 18.-
19. september, en frestuðu síðan frekari
aðgerðum, meðan samningar voru reyndir.
Framkvæmdastjóri læknafélaganna og for-
menn L.Í., L.R. og F.Í.H. sátu marga fundi
með fulltrúum T.R. og fjármálaráðuneytis.
Samkomulag náðist við T.R. um að greiða
læknum í Keflavík héraðsvaktir á sama hátt
og áður tíðkaðist til 1. desember 1984. Eftir 1.
desember skyldi greitt samkvæmt samningi,
sem læknafélögin gerðu við fjármálaráðu-
neyti. Lofað hefur verið óbreyttri greiðslu
fyrir desember, en nýr samningur hefur ekki
verið gerður.
Byggingamál Domus Medica. Stjórn Domus
Medica hefur á prjónunum áform um að
byggja frekar á lóðinni við Egilsgötu 3 og þá i
samvinnu við L.í. og L.R. Einnig eru uppi
áform um nýtingu lóðarinnar á horni
Egilsgötu og Snorrabrautar, en þeirri lóð