Læknablaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ
81
Ræktanir voru teknar frá 66 stöðum á
legudeildum í aðalbyggingu Landspítalans og í
byggingu kvennadeildar og fannst Legionella á 44
stöðum í mismiklum mæli.
Könnuð var útbreiðsla Legionella í byggingu geð-
og taugadeilda á Landspítalalóð. Tekin voru sýni
úr 27 sturtuhausum og þremur handlaugakrönum
og voru öll neikvæð.
Á tímabilinu frá 15.10. 1986 til 26.2. 1987 voru
sex sinnum tekin sýni úr kaldavatnstanki í
ketilhúsi Landspítalans, þaðan sem vatni er dælt
inn á spítalann. Voru þau sýni frá 1000 - 4000 ml,
en ekki tókst að rækta Legionellu úr þeim.
Legionella spp. á Borgarspítala. Tekin voru 27
sýni dagana 11.2. og 11.3. 1987: 22 sýni úr
sturtuhausum á legudeildum spítalans og 5 sýni úr
hitaböðum á rannsóknardeild. Einungis var tekið
einu sinni á hverjum stað. Bakterían ræktaðist úr
öllum hitaböðum og úr 5 sturtuhausum.
Legionella spp. á Landakotsspítala. Þann 18.3.
1987 voru tekin 11 vatnssýni á Landakotsspítala,
Table III. The NationaI University Hospital
(Landspítalinn). Hot and cold water inlets to sinks.
Date Room Inlet No. of colonies 10 til 1 ml filter
House staff cold í -100 nc*)
med. dpt. C&D hot 0 1 0
30/10 cold 0 34 nc
hot 0 0 nr**)
House staff cold 14 nc nc
surgical dpt. hot 0 0 0
30/10 cold 1 50 nr
hot 0 0 nr
House staff cold 13 nc nc
med. dpt. A&B hot 0 0 0
30/10 cold 0 1 nr
hot 0 0 nr
House staff cold 25 nc nc
pediatric dpt. hot 0 0 0
30/10 cold 0 1 nr
hot 0 0 nr
30/10 Office II cold 0 17 nr
hot 0 0 0
30/10 room 26 ward 11 E í"0^ 0 0 nr
not 0 0 nr
30/10 room 10 ward 11 E not 0 0 2 0 nr nr
*) Too numerous to count.
**) Not readable (overgrowth at Bacillus spp. or moulds).
úr sturtuhausum á legudeildum og óx L.
pneumophila, serótýpa 1 frá 4 stöðum á
jafnmörgum deildum. Einnig voru tekin sýni úr 4
hitaböðum á rannsóknadeild, en ekki tókst að
rækta Legionella úr neinu þeirra.
Legionella spp. á íslandi utan sjúkrahúsa. í
upphafi rannsóknarinnar voru tekin þrjú sýni úr
Tjörninni í Reykjavík, eitt úr stóru Tjörninni,
annað úr litlu Tjörninni og loks það þriðja úr
gosbrunninum sem prýðir litlu Tjörnina.
Legionella ræktaðist ekki. Dagana 23. og 24.10.
1986 var safnað vatni úr sturtuhausum á 16
heimilum hjá starfsfólki sýkladeildar Landspítala
í Reykjavík og Kópavogi en hvergi fannst
Legionella.
UMRÆÐA
Legionellur eru útbreiddar í náttúrunni og hafa
ræktast frá vötnum og tjörnum með hitastig allt
frá 5 til 60°C (4). Aðal uppsprettur
legionellusýkinga hafa hins vegar verið hitunar-
og dreifikerfi neysluvatns, loftræstikerfi og
kæliturnar.
Aðferð okkar til að einangra Legionella úr
vatnssýnum er mjög einföld. í mörgum
rannsóknum af þessu tagi hefur verið beitt
nákvæmari og flóknari aðferðum til að auka
afraksturinn (5-9). Þrátt fyrir þetta fannst
bakterían víða í kaldavatnsleiðslum Landspítala.
í erlendum rannsóknum hefur Legionella oftast
fundist í heitavatnskerfum, en ekki í
kaldavatnsleiðslum eins og á Landspítala. Líkleg
skýring er, að heita vatnið í Reykjavík er mun
heitara (70-75°C) en víðast hvar erlendis, þar sem
vatnið er hitað upp í stórum geymum á einum eða
fleiri stöðum í kerfinu. Algengur hiti á slíkum
kerfum er um 45-50°C og þegar þar við bætist sú
útbreidda sparnaðarráðstöfun að slökkva á
hitageymunum á kvöldin og um helgar vænkast
enn hagur Legionella, sem gjarnan blómstrar í
botnfalli slíkra hitageyma. Ekki tókst að finna
legionellu í kaldavatnstanki Landspítala í
ketilhúsi, þó vatn úr kaldavatnsinntökum
handlauga sjúkrahússins og handlaugakrönum
væri oftast jákvætt. Þetta er í samræmi við
reynslu annarra (10), og bendir til að
blöndunartæki og sturtuhausar séu aðal
gróðrarstíurnar (sbr. töflur II og III). Bakterían
virðist einnig geta borist í loftræstikerfi.
Legionella fannst einnig á Borgarspítala og
Landakotsspítala, en útbreiðslan þar var aðeins
könnuð mjög lauslega. Ekki fannst Legionella við
lítilsháttar leit í heimahúsum starfsfólks, en Ijóst