Læknablaðið - 15.03.1989, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ
111
komu gegn sýkingum af völdum ýmissa baktería
(streptókokka, gónókokka o.fl.), er áður leiddu
oft til dauða. Upphafsmaður þess, að farið var að
nota súlfónamíð við lækningar, var þýskur
læknir Gerhard Johannes Paul Domagk
(1895-1964), er var meinafræðingur og starfaði
lengi á vegum I. G. Farbenindustrie í Þýskalandi.
Við skulum fyrst víkja lítillega að
grundvallarrannsóknum hans (36).
Domagk og samverkamenn notuðu hemólýtíska
streptókokka með mikið sýkingarafl (einangraðir
úr manni, sem dó af völdum
streptókokkablóðeitrunar) til þess að framkalla
kviðarholsbólgu (peritonitis) í músum. Var
streptókokkum sprautað í kviðarhol músa og
hlutu þær í öllum tilvikum bana af.
»TilraunamódeI« þetta var því mjög gott og
vænlegt að nota við rannsóknir á sýkladrepandi
efnum. í fyrstu notuðu þeir gullsambönd.
Árangur var ekki góður, þar eð sambönd þessi
urðu ekki alltaf gefin í nægjanlegum skömmtum
til þess að varna því, að mýsnar dæju, nema af
hlytist jafnframt gulleitrun. Árið 1932 höfðu tveir
samverkamenn Domagks framleitt tiltekið
azósamband (-N = N-), er stundum nefnist
súlfakrýsóídín. Það er líkt og mörg azósambönd
rautt á lit og var skoðað sem litarefni. Það fékk
síðar sérheitið Prontosil (R)*. Domagk reyndi því
næst efni þetta í tilraunum með mýs, sem
sprautaðar höfðu verið með streptókokkum.
Prontosil hafði sárlega lítil lyfhrif í tilraunadýrum
(músum, kanínum, köttum) og það hafði enga
verkun á streptókokka in vitro. In vivo hafði
Prontosil hins vegar áður óþekkta verkun á
streptókokkasýkingar í músúm.
Um jólaleytið 1932 gerðu Domagk og félagar
tímamótatilraun, ef svo má að orði komast, með
* Prontosil var skráð i nafni Bayer (þýskrar lyfjaverksmiðju) til
inntöku (Prontosil rubrum) og innstungu (Prontosil solubile; er
vatnsleysanlegt salt af hinu fyrra). Síðar setti Bayer einnig á
markað súlfanilamið (undir heitinu Prontosil album). - Sjá
einnig myndir 9 og 10.
Mynd 8. Gerhard J.P. Domagk (1895-1964). Domagk var upphafsmaður þess, aðfarið var að nota súlfónamið á
árunum 1933-1936. Fyrsta lyfið, Prontosil (R), var raunar forlyf sem umbrotnar 1 likamanum í hið virka efni
súlfanilamíð. Öll siðari súlfónamíð eru afbrigði súlfanilamíðs. Myndin sýnir Domagk l rannsóknastofu sinni. Hún er
fengin frá þýsku lyfjaverksmiðjunni Bayer og er birt með góðfúslegu leyfi fyrirtœkisins fyrir tilstilli umboðsmanna
þess á íslandi (Pharmaco hf).