Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 26

Læknablaðið - 15.11.1991, Blaðsíða 26
350 LÆKNABLAÐIÐ Erfðir: Ofnæmi er mjög ættgengt. Með því að leggja saman niðurstöður þriggja rannsókna á sambandi ofnæmis hjá foreldrum og bömum þeirra varð útkoman þessi: Ef báðir foreldramir höfðu ofnæmi fengu 47% bamanna ofnæmi. Ef annað foreldrið hafði ofnæmi fengu 29% bamanna ofnæmi. Ef hvorugt foreldra hafði ofnæmi fengu 13% bamanna ofnæmi (4). Ofnœmisvakar í umhverfi: Ofnæmi myndast ekki án snertingar við ofnæmisvaka. Blackley sýndi fyrstur manna fram á ofnæmi fyrir frjókornum árið 1873 (5), en listinn yfir ofnæmisvaka er sífellt að lengjast. Hættan á myndun ofnæmis er háð magni ofnæmisvaka í umhverfinu. Fleiri veikjast af frjónæmi á heitu og sólríku sumri, þegar mikið frjómagn er í loftinu, en þegar sumarið er kalt og rigningasamt (6). Rykmaurar mynda ekki ofnæmi nema fjöldi þeirra í ryki nái ákveðnu lágmarki (7,8). Alþjóðlegur starfshópur hefur komist að þeirri niðurstöðu að 100 rykmaura þurfi í einu grammi af ryki til að valda ofnæmi (9). Hins vegar þarf færri rykmaura til að valda einkennum hjá þeim sem á annað borð hafa rykmauraofnæmi. A síðasta áratug hafa nokkrar kannanir verið gerðar á sambandi fæðingarmánaðar og ofnæmis. Sýnt hefur verið fram á sérstaka hættu á ofnæmi fyrir þeim frjókomum sem em í andrúmsloftinu tveimur til þremur mánuðum eftir fæðinguna (10-14). Einnig hefur verið sýnt fram á samband milli fæðingarmánaðar og ofnæmis fyrir myglusveppum og rykmaurum (13,15). Ofnœmisglœðandi umhverjisþœttir: En nú vaknar sú spurning, hvort aukning hafi orðið í umhverfinu á ofnæmisvökum, sem hugsanlega geti valdið aukningu á ofnæmi. Einstök atvik eru kunn, þar sem slík aukning hefur orðið á afmörkuðum svæðum. Nýlegt dæmi er frá Barcelona á Spáni. Þar barst ryk af sojabaunum úr uppskipunargeymi yfir borgarhlutann næst höfninni og olli ofnæmi og faröldrum af astma þegar sojabaunum var skipað á land (16). í tengslum við nútímaiðnað hafa tugir nýrra ofnæmisvaka orðið til. Útbreiðsla þeirra er vanalega bundin við ákveðnar starfsgreinar eða atvinnusvæði. Þeir hafa því ekki veruleg áhrif á tíðni ofnæmis. Sýkingar: Ýmislegt bendir til þess að sýkingar í öndunarfærum stuðli að aukinni tíðni ofnæmis. Arið 1979 var greint frá athugunum á áhrifum sýkinga á byrjun ofnæmis hjá bömum. í fjögur ár var fylgst nákvæmlega með 13 börnum úr ofnæmisfjölskyldum, þar sem báðir foreldrarnir höfðu ofnæmi, en að þeim tíma liðnum höfðu 11 barnanna fengið ofnæmi. Ofnæmisbömin fengu öll sýkingar í efri öndunarvegi einum til tveimur mánuðum áður en ofnæmiseinkenni komu í ljós. Hjá tíu börnum fannst mótefnasvörun fyrir veirum (parainflúensu, RSV og CMV) um svipað leyti og ofnæmið kom fram (17). Dýratilraunir benda einnig til sambands á milli sýkinga og ofnæmis. Mýs, sýktar með RS veirum, voru látnar anda að sér frjóum ragweedplöntu. Mótefnasvörunin við ragweedfrjóum var mæld og reyndist meiri en ef ósýktar mýs önduðu að sér ragweedfrjóum (18). Ahrif af þessu tagi á ónæmiskerfið eru ekki eingöngu bundin við veirur. Með kíghóstasýklinum (Bordetella pertussis) hefur tekist að glæða sértæka mótefnasvörun hjá rottum (19). Reykingar: Reykingar er sú tegund mengunar sem flestir verða fyrir. Reykingar stuðla að aukningu á IgE-mótefnum í sermi reykingamanna (20-22), og þær auka líkumar á sértækri ónæmissvörun fyrir ofnæmisvökum í svifryki (23,24). Reykingar virðast líka geta stuðlað að atvinnuofnæmi (23). Tengsl óbeinna reykinga við astma og ofnæmi hafa líka verið rannsökuð. Árið 1981 var rannsakað samband óbeinna reykinga og astma hjá bömum í Bandaríkjunum. Heilsufarssaga 4330 bama á aldrinum 0-5 ára var könnuð með spumingalistum og einnig reykingar foreldra. Ef móðir reykti meira en hálfan pakka af vindlingum á dag voru líkur á að bam hennar fengi astma rúmlega tvöfalt meiri en ef hún reykti ekki. Hættan var samt mest þegar móðirin reykti á fyrsta aldursári bams, eða 2.6 föld miðað við það að hún reykti ekki. Reykingar feðra reyndust hafa minni áhrif á heilsu barnanna (25). Aðrar rannsóknir hafa sýnt að reykingar gera astma og viðkvæmni í öndunarfærum verri en ella (26-28).

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.