Læknablaðið - 15.11.1991, Síða 36
358
LÆKNABLAÐIÐ
voru allir í hópi bólusettra. Niðurstöður
þessarar rannsóknar benda því til þess að
engin gagnsemi sé af pneumokokkabóluefni
meðal sjúklinga með langvinna sjúkdóma
svo að vægt sé til orða tekið. Þá hefur
ekki tekist að sýna fram á gagnsemi af
pneumokokkabólusetningu meðal bama (10).
Gerðar hafa verið rannsóknir á pöruðum
hópum (case-control) bæði meðal heilbrigðs
eldra fólks og sjúklinga, þannig að menn finna
hóp sjúklinga með staðfesta sýkingu og velja
síðan viðmiðunarhóp af svipaðri samsetningu
og bera saman, hve margir eru bólusettir í
hvorum hópi. Sumar þessara rannsókna benda
til gagnsemi (11,12) og aðrar ekki (9), en
slíkar rannsóknir eru ekki eins áreiðanlegar
og slembaðar framvirkar rannsóknir og inn
í þær getur auðveldlega komist valskekkja
(selections bias). Það er þó á grundvelli
þessara rannsókna, sem ráðleggingar um
bólusetningu stórra hópa heilbrigðs og sjúks
eldra fólks eru byggðar.
í Læknablaðinu/Fréttabréfi lækna 5/1991
birtist dreifibréf frá landlækni, þar sem
mælt er með því, að hafin verði á Islandi
skipuleg bólusetning fullorðinni geng
pneumokokkasýkingum (13). Gert er ráð
fyrir því, að heilbrigðu fólki eldra en 60 ára
verði ráðlögð bólusetning og eins ýmsum
hópum sjúklinga, sem vitað er að eiga á
hættu að sýkjast. I dreifibréfinu kemur fram,
að landlæknir hefur stuðst við ráðleggingar
farsóttanefndar ríkisins. Einnig er vitnað í
nokkrar greinar, sem sagðar eru sýna fram
á gagnsemi bólusetningar, en ekki er vitnað
í þær fjölmörgu greinar sem draga slíka
gagnsemi í efa. Þessar ráðleggingar og sá
rökstuðningur, sem fyrir liggur í dreifibréfinu
bera ekki vott um hlutlausa túlkun upplýsinga
um pneumokokkabóluefni og notagildi þess.
Við venjulegar aðstæður í vestrænum
þjóðfélögum er tíðni pneumokokkasýkinga
mjög lág meðal ungra heilbrigðra og eina
ótvíræða ábendingin fyrir bólusetningu á
því aldursskeiði er miltistaka eða miltisleysi.
Mögulegt er að pneumokokkabólusetning
sé gagnleg meðal heilbrigðs eldra fólks, en
það er þó ósannað og þörf fyrir framvirka
rannsókn í þeim hópi, sem enn hefur ekki
verið gerð. Þá benda rannsóknir til þess að
fjölsykrungabóluefni gegn pneumokokkum
sé ekki virkt meðal áhættuhópa og
ónæmisbældra. Framtíð bóluefnis gegn
pneumokokkum er því óviss, en á síðustu
árum hefur tekist að framkalla mun betri
mótefnasvörun með því að tengya fjölsykrunga
pneumokokka við protín (14-17) og lofa
þær rannsókir góðu um að virkara bóluefni
verði fáanlegt innan fárra ára. Má í því
sambandi benda á að sams konar protín
tengt bóluefni gegn Haemophilus influenzae
hefur þegar sannað ágæti sitt við að verja
böm gegn heilahimnubólgu þar sem eldra
fjölsykrungabóluefni hafði haft umdeilanleg
áhrif (18,19). Því virðist skynsamlegt að
bíða um sinn eftir betra bóluefni, áður
en fjöldabólusetning verður ráðlögð. Stór
framvirk rannsókn á notagildi Pneumovax
meðal heilbrigðs eldra fólks væri hins vegar
þarft verkefni.
HEIMILDIR
1. Hook EW III, Horton CA, Schaberg DR. Failure of
intensive care unit support to influence mortality
from pneumococcal bacteremia. JAMA 1983; 249:
1055-7.
2. Austrian R, Gold J. Pneumococcal bacteremia
with special reference to bacteremic pneumococcal
pneumonia. Ann Intem Med 1964; 60: 759-76.
3. Hilleman MR, Carlsson AJ, Mc Lean AA, Vella
PP, Weibel RE, Woodhour AF. Streptococcus
pneumoniae Polysaccharide Vaccine: Age and
Dose Response, Safety, Persistence of Antibody,
Revaccination and Simultaneous Administration of
Pneumococcal and Influenza Vaccines. Rev Infect Dis
1981; 3: S31-S42.
4. Jonsson S, Musher DM, Chapman AJ, Goree A,
Lawrence EC. Phagocytosis and Killing of Common
Bacterial Pathogens of the Lung by Human Alveolar
Macrophages. J Infecl Dis 1985; 152: 4-13.
5. Musher DM, Chapman AJ, Goree A, Jonsson S,
Briles D, Baughn RE. Natural and Vaccine Related
Immunity to Streptococcus pneumoniae. J Infect Dis
1986; 154: 245-55.
6. Riley ID, Tarr PI, Andrews M, et al. Immunization
with a polyvalent pneumococcal vaccine: Reduction
of Adult Respiratory Mortality in a New Guinea
Highlands Community. Lancet 1977; I: 1338-41.
7. Austrian R, Douglas RM, Schiffman G, Coetzee
AM, Koomhof HJ, Hayden-Smith S, Reid RDW.
Prevention of Pneumococcal Pneumonia by
Vaccination. Trans Assoc Am Physicians 1976; 89:
184-94.
8. Simberkoff MS, Cross AP, AL-Ibrahim M, et al.
Efficacy of pneumococcal vaccine in high-risk
patients. N Engl J Med 1986; 315: 1318-27.
9. Forrester HL, Jahnigen DW, La Force FM. Inefficacy
of pneumococcal vaccine in a high-risk population.
Am J Med 1987; 83: 425-30.
10. Douglas RM, Miles HB. Vaccination Against
Streptococcus Pneumoniae in Childhood: Lack of
Demonstrable Benefit in Young Australian Children.
J Infect Dis; 1984: 151: 861-9.
11. Shapiro ED, Clemens JD. A controlled evaluation