Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1996, Page 12

Læknablaðið - 15.11.1996, Page 12
764 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 eða 55 og því næst op á milli gátta (atrial septal defect, ASD) eða 46. Mun fleiri stúlkur en drengir gengust undir aðgerð vegna ops á milli gátta og opinnar fósturæðar, en fleiri drengir fóru í aðgerð vegna þrengsla í ósæð og víxlunar á stóru slagæðunum (mynd 3). Ekki var hægt að sjá hvort aðgerðartíðni vegna einstakra galla jókst eða minnkaði með tímanum nema þegar um op á milli gátta var að ræða. Helm- ings aukning varð milli áranna 1974-1983 og 1984-1993 og er það marktækur munur (p<0,05) (mynd 4). Samsvarandi munur fannst ekki á fjölda aðgerða vegna annarra galla. 5. Dánartölur: Af 299 börnum lést 31 (10,4%), 14 drengir og 17 stúlkur. Sextán barn- anna létust í aðgerð og er þá miðað við 30 daga eftir sjálfa aðgerðina, 14 létust vegna hjarta- sjúkdóms og eitt af öðrum orsökum. Prettán barnanna létust erlendis. Kannað var hvort marktækur munur væri milli tímabila, en svo reyndist ekki vera, enda fáir sem létust á hverju tímabili. Flestir hinna látnu voru með víxlun á stóru slagæðunum eða sjö af 31 og létust fimm þeirra á fyrstu 15 árum rannsóknar- innar, þrír voru með þrengsli í ósæð og op á milli slegla, en færri með aðra galla. Umræða í rannsókn okkar kemur fram að 2,75 af hverjum 1000 lifandi fæddum börnum gengust undir skurðaðgerð vegna meðfæddra hjarta- galla á 25 ára tímabili frá 1969 til 1994. Á rann- sóknartímabilinu fór aldur við aðgerð stöðugt lækkandi. Á síðari hluta tímabilsins fjölgaði aðgerðum vegna ops á milli gátta. Rétt er að benda á að hlutfallið í yngri aldurshópunum á eftir að hækka þar sem vitað er að nokkur börn fædd á árunum 1984-1993 eiga eftir að gangast undir aðgerð. Nokkuð er af erlendum rann- sóknum um nýgengi meðfæddra hjartagalla (1-4) en aftur á móti mun minna um fjölda aðgerða hjá þessum börnum. Rannsókn frá Uppsölum er náði yfir 11 ára tímabil sýndi fram á að 2,15 af 1000 lifandi fæddum börnum þurftu á aðgerð að halda (7) og er það talsvert lægra en hér, enda 20 árum eldri rannnsókn. Rann- sókn sem gerð var í Liverpool á börnum sem fædd voru á árunum 1960-1969 leiddi í ljós að 1,86 af 1000 lifandi fæddum börnum fóru í að- gerð á þeim tíma. Gögn um börn sem fædd voru á þessu árabili en létust vegna meðfædds hjartagalla án aðgerðar, voru endurmetin 1981. Fig. 3. The number of patients male and female, and the various types of heart defects. Abbreviations are as follows: VSD = Ventricular Septal Defect; ASD = Atrial Septal De- fect; PDA = Patent Ductus Arteriosus; CoA = Coarctation of theAorta; TOF = Tetralogy of Fallot; TGA = Transposition of the Great Arteries; CAVC = Common Atrioventricular Canal Defect; PS = Pulmonary Stenosis; AS = Aortic Sten- osis; TR = Truncus Arteriosus; SV = Single Ventricle; TAPVD = Total Anomalous Pulmonary Venous Drainage. Number of patients per 1000 live births 0.8 1969-73 1974-78 1979-83 1984-88 1989-'93 Year of birth Fig. 4. The number of operations on patients with ASD per 1000 live births in the five time periods. Samkvæmt skilmerkjum sem þá viðgengust hefðu 2,96 börn af 1000 lifandi fæddum þurft á aðgerð að halda (8). Þessi niðurstaða sýnir aðeins hærra hlutfall en hér ef miðað er við allt rannsóknartímabilið (2,75 af 1000 lifandi fædd- um hér), en lægra ef einungis er miðað við síðustu 10 árin, en þá var tíðnin 3,04 af hverjum 1000 lifandi fæddum börnum hér á landi. Á rannsóknartímanum lækkaði meðalaldur barnanna í fyrstu aðgerð mjög mikið þrátt fyrir nokkra fjölgun aðgerða og er það í samræmi við erlendar rannsóknir (1,8). Á síðasta tíma- bilinu 1989-1993 fór meira en helmingur barn- anna, eða 2,03 af 1000 lifandi fæddum, í aðgerð

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.