Læknablaðið - 15.11.1996, Blaðsíða 14
766
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Gæðastjórnun lækna á íslandi
Aöferðir og stefnumótun
Högni Óskarsson, Páll Torfi Önundarson, Vilhelmína Haraldsdóttir
Óskarsson H, Önundarson PT, Haraldsdóttir V
Quality management by physicians in Iceland
Læknablaðið 1996; 82: 766-70
The Icelandic Medical Association appointed a
committee in 1993 with the task of recommending
how to introduce the concept of Total Quality Man-
agement into the Icelandic healthcare system.
The first task was to conduct a mail survey of the
current status of quality assurance. Heads of depart-
ments at the five major hospitals in Iceland were
contacted as well as the chairmen of all the specialist
societies. The response rate was only 37%, but com-
pensated by two ameliorating facts; responses were
obtained from most of the major departments, and
there was a considerable overlap between hospital
departments and specialty societies as well as be-
tween subspecialty societies.
The results indicate that quality assurance is an in-
grained part of Icelandic hospitals, mostly in the
form of standards and retrospective audits, not pro-
spective actions. Methods used are further detailed.
Outside hospitals, the Icelandic Society of Family
Physicians stands out amongst the specialty societies
represented, by having organized and carried out
several projects in quality assurance.
It is recommended that more emphasis shall be put
on prospective methods, the setting of practice gui-
delines, outcome studies and research in quality as-
surance. The lack of quality assurance in specialty
practice outside hospitals needs to be addressed
with vigour.
Keywords: Quality Management, Methods, Recommen-
dations.
Frá nefnd um gæðastjórnunarmál lækna, skipaðri af stjórn
Læknafélags Islands. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Högni Ósk-
arsson, Þerapeia, Suðurgötu 12,101, Reykjavík.
Lykilorð: Gæðastjórnun lækna, aðferðir, stefnumótun.
Ágrip
Stjórn Læknafélags Islands skipaði nefnd
haustið 1993 til að fjalla um á hvern hátt mætti
beita aðferðum altækrar gæðastjórnunar í ís-
lenska heilbrigðiskerfinu. Fyrsta verk nefndar-
innar var að kanna stöðu gæðastjórnunar með-
al lækna. Voru forstöðulæknar á fimm stærstu
sjúkrahúsum landsins beðnir bréflega um upp-
lýsingar um aðferðir sem beitt væri til gæða-
stjórnunar. Sömuleiðis var beðið um upplýs-
ingar frá sérgreinafélögum.
Svörun var 37%. Tvennt bætti upp litla svör-
un, annars vegar bárust svör frá flestum stærri
deildum og hins vegar reyndist skörun milli
sérgreinafélaga og einstakra deilda og sömu-
leiðis milli sérgreina og undirsérgreina. Auk
þess fengu höfundar vitneskju um þessa starf-
semi eftir öðrum leiðum. Má því draga nokkr-
ar ályktanir af niðurstöðum.
Læknar beita gæðastjórnunaraðferðum víða
innan sjúkrahúsa. Oftast er um að ræða staðla,
gátlista og afturskyggnar athuganir. Eru að-
ferðir nánar flokkaðar í greininni. Sjaldan er
beitt framskyggnum aðgerðum.
Utan sjúkrahúsa sker Félag íslenskra heimil-
islækna sig úr, en á vegum þess hefur gæða-
stjórnun verið stunduð verulega á undanförn-
um árum.
Lagt er til að meiri áhersla verði lögð á fram-
skyggnar gæðastjórnunaraðferðir, samráðs-
leiðbeiningar, árangurskannanir og rannsóknir
á sviði gæðastjórnunar. Sérstaklega þarf að
efla gæðastjórnun við rekstur sérfræðistofa ut-
an sjúkrastofnana.
Inngangur
Gæði í heilbrigðisþjónustu má skilgreina á
ýmsan hátt, meðal annars eins og Donabedian,