Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1996, Síða 61

Læknablaðið - 15.11.1996, Síða 61
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 803 Einar Jóhannesson Fæddur 26. ágúst 1927, dáinn 30. júní 1996 Upp úr 1950 hófust Svíþjóð- arferðir íslenskra lækna. Nú er svo komið að stór hluti stéttar- innar hefur dvalist langdvölum þar í landi og fengið þar fram- haldsmenntun sína. Flestir hafa horfið aftur til íslands en þó nokkur hópur hefur orðið eftir ytra. Þeir elstu úr þessum hópi eru nú eftirlaunamenn og hafa unnið ævistarf sitt austan hafs. Einn þeirra var Einar Jóhannes- son. Hann menntaði sig ræki- lega, var sérfræðingur í almenn- um skurðlækningum með skurðlækningar á meltingarfær- um sem undirgrein en einnig var hann sérfræðingur í kvensjúk- dómum og fæðingarhjálp. Eftir margra ára starf meðal annars á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi flutti hann sig austar til Karls- krona og varð yfirlæknir á hand- lækningadeild aðalsjúkrahúss Blekinge léns og vann þar sitt ævistarf að mestu. Stöðug og náin voru tengsl hans þó ávallt út hingað til Is- lands og hvenær sem færi gafst var hann kominn heim. Hann starfaði sem staðgengill lækna á ýmsum stöðum á land- inu. Árum saman var hann í fríum sínum staðgengill skurð- læknis í Neskaupstað. Víðar kom hann þó við, á ísafirði, Pat- reksfirði, Akranesi og Djúpa- vogi. Hann naut þessara ferða sinna og fannst hann hafa hér sálufélag við menn meira en ytra. Það þykja leiðinlegir menn sem aðeins geta hugsað um eitt. Sá var ekki löstur Einars. Þess- um skurðlækni í erilsömu starfi tókst að stunda það áhugamál sem honum var kærast. Þótt hann væri læknir á sjúkrahúsi í borg stundaði hann búskap lengst af. Fyrst átti hann litla jörð norður af Karlskrona en fyrir nokkrum árum eignaðist hann stóran búgarð, Vabylund, vestar í Blekinge. Þar átti hann meðal annars fjölda íslenskra hesta og stundaði hrossakaup og sölur, eins og honum Skag- firðingnum, voru í blóð borin. Vel tókst þessi klofningur þar sem hann var svo lánsamur að hafa eignast ágæta konu sem var sama sinnis og forkur duglegur. Einar var gamansamur og nokkuð sérstakur á því sviði. Enn hlæjum við félagar hans að ýmsurn tilsvörum hans. Oft var þetta nokkuð óvænt, en sönn gamansemi er að koma flatt upp á menn. Ættfræði manna og hesta voru áhugamál hans og oft sátum við og skeggræddum „hver væri undan hverjum" og skyld málefni. Þessu fylgdu gamansögur af mönnum að þjóðlegum sið. Nú þegar Einar er horfinn stendur eftir minnig um sér- stæðan og skemmtilegan félaga og ágætan skurðlækni. Ekki er þó laust við að sá grunur læðist að manni að Einar hefði þó helst kosið að vera gildur bóndi og hestamaður norður í Skaga- firði. Einar Jóhannesson var sonur hjónanna Jóhannesar bónda á Hofstöðum, síðar verkstjóra í Reykjavík Björnssonar og konu hans Kristrúnar Jósepsdóttur. Stúdent MR 1947, cand. med. HI 1955, almennt lækningaleyfi 1957, í Svíþjóð 1962. Viður- kenndur sérfræðingur í kven- sjúkdómum og fæðingarhjálp 1960 og í almennum skurðlækn- ingum og meltingarsjúkdómum í Sviþjóð 1964 og 1980. Einar var kvæntur Siv Mari- anne, hjúkrunarfræðingi frá Engelholm í Svíþjóð. Börn þeirra eru Jónas bóndi, Váby- lund, Pétur tannlæknir, Olof- ström og Ylva Maria starfsmað- ur á ferðaskrifstofu, búsett á Ítalíu. Fyrir hjónaband sitt eign- aðist Einar dóttur, Ásu Val- gerði hjúkrunarfræðing. Eggert Brekkan
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.