Læknablaðið - 15.11.1996, Page 81
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
821
Iðgjald til Lífeyrissjóðs lækna
Eitt stig fyrir árið 1996 er kr. 204.000 - þannig að lágmarksiðgjald til að viðhalda
réttindum, það er 1/3 úr stigi, er kr. 68.000.-
Þau sem borga iðgjaldið beint til sjóðsins, eru beðin að inna það af hendi sem
fyrst.
Háskóli íslands
Endurmenntunarstofnun
Sjálfsvígsfræði með sérstöku tilliti til sjálfsvíga ungs fólks
Tími: 29. nóvember kl. 9:00-17:00 og 30. nóvember kl. 9:00-13:00.
Verð: 9.800 kr.
Einn mikilvægasti þáttur fyrirbyggjandi aögeröa gegn sjálfsvígum er endurmenntun
fagfólks. Hér er í fyrsta skipti boðið upp á námskeið sem sérstaklega fjallar um sjálfsvíg
ungs fólks. Sjálfsvíg hafa lengi verið alvarlegt samfélagslegt vandamál en dauðsföll
vegna sjálfsvíga eru fjórðungi fleiri en dauðsföll vegna umferðarslysa. Námskeiðið bygg-
ist á fyrirlestrum og umræðum í umræðuhópum.
Kennarar: Wilhelm Norðfjörð og Hugo Þórisson, sálfræðingar.
Forvarnarstarf í heilsugæslu
Hlutverk sjúkraþjálfara
Tími: 22. nóvember kl. 9:00-16:00 og 23. nóvember kl. 9:00-13:00.
Verð: 9.800 kr.
Námskeiðið er einkum ætlað sjúkraþjálfurum, hjúkrunarfræðingum, læknum og öðrum er
starfa í heilsugæslu en er einnig opið öðrum heilbrigðisstéttum.
Efni: Álagseinkenni - eru pillur eina lausnin? Lestrar- og skriftarvandamál, hegðunar-
vandamál. Má hafa áhrif á hreyfigetu aldraðra? Er þörf á að sjúkraþjálfari komi inn í
þroskamat ungbarna á heilsugæslustöðvunum? Er hægt að hafa áhrif á meðgönguein-
kenni.
Kennarar: Nanna Þórunn Hauksdóttir, Ágústa Guðmarsdóttir og Ella B. Bjarnason
sjúkraþjálfarar.
Upplýsingar og skráning í símum 525 4923 og 525 4924, bréfsíma 525 4080 og
tölvupósti endurm@rhi.hi.is.