Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Side 10
föstudagur 4. maí 200710 Fréttir DV
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, var í Héraðsdómi Reykjavík-
ur, dæmdur í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir þátt sinn
í Baugsmálinu. Tryggvi Jónsson,
fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs,
var dæmdur í níu mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir sinn hluta
málsins. Dómar þeirra Jóns Ásgeirs
og Tryggva eru skilorðsbundir til
tveggja ára. Ákæru á hendur Jóni
Gerald Sullenberger, upphafs-
manni málsins, var vísað frá
dómi.
„Þegar litið er til þess að
aðeins er sakfellt fyrir hluta
ákæruatriða, lengdar aðal-
meðferðar, sem var ekki að
öllu leyti í samræmi við um-
fang málsins og þess að lagt
var í kostnað vegna vitna
sem ekki verður séð að þörf
hafi verið á að leiða,“ seg-
ir í niðurlagi dómsins þeg-
ar kemur að því að ákvarða
sakarkostnað sem sakborn-
ingum er gert að greiða.
Tíu liðum ákærunnar af
átján var vísað frá dómi að
þessu sinni en á síðasta ári
var fyrsta ákærulið þessarar
ákæru einnig vísað frá.
Jón Ásgeir sem ákærð-
ur var fyrir sautján af átj-
án ákæruliðum er sakfelld-
ur fyrir einn þeirra eða lið
númer fimmtán. Þar eru
hann og Tryggvi Jónsson
fundnir sekir um meirihátt-
ar bókhaldsbrot með því
hafa látið rangfæra bókhald Baugs
með þeim hætti að láta útbúa gögn
sem ekki áttu sér stoð í viðskiptum
fyrirtækisins og þannig gefið ranga
mynd af viðskiptum og notkun fjár-
muna. Þeir eru fundnir sekir um að
hafa útbúið tilhæfulausan kredit-
reikning frá Nordica upp á 62 millj-
ónir króna. Jón Gerald Sullenber-
ger var ákærður varðandi þennan
lið ákærunnar eða fyrir að hafa að-
stoðað Jón Ásgeir og Tryggva við að
rangfæra bókhaldið. Ákærunni á
hendur honum var aftur á móti vís-
að frá dómi.
Ætlar að áfrýja
„Megin fréttin er sú að í sextán af
sautján ákæruliðum er sýknað eða
þeim vísað frá dómi og það er stóra
málið. Það breytir ekki því að Jón Ás-
geir gerði ráð fyrir sýknu og telur sig
saklausan og mun þar af leiðandi vísa
málinu til Hæstaréttar,“ segir Gestur
Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs.
Gestur minnir á að níutíu prósent
af kostnaði er viðkemur Jóni Ásgeiri
er lagður á ríkissjóð. Hann segir það
segja sína sögu eins og fram kemur í
ákvörðun héraðsdóms sem segir að
málatilbúnaður hafi að langstærstum
hluta ekki haft grundvöll. Gestur telur
hlut saksóknara rýrar þar sem hans
skjólstæðingur hafi aðeins verið sak-
fellur fyrir einn lið en hann hafi verið
ákærður, samtals í 58 liðum. „Þar sem
ákæruvaldið á ekki að ákæra nema
taldar séu meiri líkur en minni á sak-
fellingu er ljóst að þar hafi ákæruvald-
inu skjátlast varðandi málsgrundvöll,“
segir Gestur. Hann segir málið búið
að kosta skattgreiðendur hundruð
milljóna króna því í þessu máli einu
hafi kostnaður ríkisins verið um eitt
hundrað milljónir króna.
Í hlutafélagalögum segir að stjórn-
armenn og framkvæmdastjórar megi
ekki misnota aðstöðu sína í viðskipt-
um með hluti í félaginu eða félögum
innan sömu samstæðu. Aðspurð-
ur varðandi þetta svara Gestur því til
að ákveðið hafi verið að áfrýja dóm-
unum og því hafi hann engin áhrif á
stöðu Jóns Ásgeirs nema hann fáist
staðfestur.
Sakfelling óþolandi
„Ákæruvaldið hefur fjarri því haft
erindi sem erfiði. Saksóknari hefur
lýst þessu máli sem stærsta efnahags-
brotamáli Íslandssögunnar og nið-
urstaðan sú að Jón Ás-
geir sem hefur í
heildina verið
ákærðu í 58
ákæru- lið-
um er sak-
felldur fyr- ir einn
þeirra.
Tryggvi
Jónsson
hefur
verið
LANGT UMFRAM TILEFNI
Jón Ásgeir Jóhannesson var sakfelldur fyrir einn
ákærulið Baugsmálsins og Tryggvi Jónsson fyrir fjóra. Í
niðurlagi dómsins segir að miklu hafi verið tjaldað fyrir
lítið og lagt út í kostnað við vitni sem ekki hafi verið þörf
fyrir að leiða fyrir dóminn. Dómnum verður áfrýjað.
Verjendur segja að kostnaðurinn upp á nærri hundrað
milljónir sem fellur á ríkissjóð segi sína sögu.