Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2007, Page 37
Menning
Ljósmyndir
í Þjóðminjasafni
@Tvær ljósmyndasýning-
ar verða opnaðar á morgun kl.
15 í Þjóðminjasafni Íslands. Í
Myndasalnum má sjá sýning-
una Auga gestsins með ljós-
myndum frá Íslandsferðum
norska útgerðarmannsins Hans
Wiingaard Friis og á Veggnum
er sýningin Send í sveit. Inga
Lára Baldvinsdóttir fagstjóri
Ljósmyndasafns Íslands í Þjóð-
minjasafninu opnar sýning-
arnar og KK spilar og syngur.
Myndasyrpa Friis frá Íslandi er
um margt merkileg, en hann
sver sig í ætt við aðra áhuga-
menn í persónulegri og frjáls-
legri nálgun við myndatökurn-
ar. Á sýningunni Send í sveit
má sjá myndir úr söfnum Ingi-
mundar Magnússonar, Guðna
Þórðarsonar, Gísla Gestssonar,
Þorvaldar Ágústssonar og Ara
Kárasonar.
Tveggja manna tal
@Áhugafólk um bókmenntir ætti að leggja leið sína í Hátíðarsal Háskóla-
bíós í dag kl. 16, því þá munu vera þar á tveggja manna tali franski
rithöfundurinn, fræðimaðurinn og ljóðskáldið Edouard Glissant og Thor
Vilhjálmsson rithöfundur. Thor er einn þekktasti rithöfundur Íslands og
Glissant, sem hefur verið kallaður rödd blökkumanna í frönskum
bókmenntum, hefur verið talinn helsta von Frakka til nóbelsverðlauna.
list
bækur
DV Menning föstudagur 4. maí 2007 37
Um helgina verður opnuð yfirlitssýning á þáttum í umhverfislistaverki Andrew Rogers:
Lífstakturinn á Akureyri
Á morgun verður opnuð í Lista-
safninu á Akureyri yfirlitssýning á
jarðlistaverkefni ástralska skúlpt-
úristans Andrews Rogers, Lífstakt-
inum. Rogers hefur und-
anfarið unnið að stórum
grjótgörðum (e. geog-
lyphs) sem koma til með að mynda
keðju umhverfis jörðina. Sjö verk af
þeim tólf sem hann hyggst skapa í
þessum tilgangi hafa þegar verið
reist, þar af eitt á Akureyri. Verk-
efnið hófst í Arava-eyðimörkinni
í Ísrael árið 1999, þar sem Rogers
reisti fjögur útilistaverk. Næsta verk
reis í Atacama-eyðimörkin í Chile.
Fljótlega á eftir fylgdu Cerro Rico-
fjallahéruðin í Bólivíu, Sri Lanka,
You Yangs-þjóðgarðurinn í Ástral-
íu, Akureyri og nágrenni (septemb-
er 2006) og mánuði síðar Góbí-
eyðimörkin í Kína við vesturenda
Kínamúrsins. Rogers hyggst enn-
fremur reisa steingarða á Indlandi, í
Bandaríkjunum, Bretlandi og Aust-
ur-Evrópu. Andrew Rogers hafði
haft augastað á Íslandi fyrir verkefni
sitt þegar hann komst í samband
við Hannes Sigurðsson forstöðu-
mann Listasafnins á Akureyri, sem
átti mestan þátt í staðarvali og þró-
un hugmynda. Listasafnið á Akur-
eyri hefur einnig gefið út glæsilega
140 síðna bók um jarðlistaverkefn-
ið Lífstaktinn og framkvæmd þess
í Ísrael, Chile, Bólivíu, Sri Lanka,
Ástralíu, Akureyri og Kína. Bókinni
verður dreift á alþjóðavísu og enn-
fremur verður sýnd heimildamynd
um verkefnið í Ríkissjónvarpinu 17.
maí næstkomandi.
Eiríkur Örn Norðdahl og Ingólfur Gíslason hafa sent frá sér bók með ljóða-
þýðingum undir merkjum bókaútgáfunnar Nýhils. Bókin geymir verk 19 þekktra
höfunda sem eiga pólitíkina sameiginlega.
Útgáfufélagið Nýhil gaf þann 1. maí síðastlið-
inn út ljóðabókina Handsprengja í morgunsár-
ið. Bókin ber undirtitilinn „baráttukvæði“ og í
henni birtast ljóð 19 höfunda. Í fyrri hluta bók-
arinnar eru birtar þýðingar Eiríks Arnar Norð-
dahl og Ingólfs Gíslasonar á ljóðum eftir er-
lenda pólitíska áhrifamenn á borð við Osama
bin Laden, Radovan Karadzic, Silvio Berlus-
coni, Ronald Reagan og fleiri. Í seinni hlutan-
um birtast hinsvegar svokallaðar „róttækar
ljóðaþýðingar“ á textum íslenskra áhrifamanna
í stjórnmálum og fjölmiðlum, á borð við Björn
Bjarnason, Halldór Ásgrímsson, Hannes Hólm-
stein Gissurarson, Egil Helgason og fleiri. Í
þeim þýðingum setja þýðendurnir margvíslega
texta höfundanna fram í ljóði.
Höfundar frumtextanna eiga það allir sam-
eiginlegt að hafa komið að stjórnmálum á ein-
hvern hátt - ýmist sem beinir þátttakendur, eða
sem álitsgjafar. Pólitík er að sama skapi áber-
andi efnisþáttur ljóðanna eins og titlar þeirra
gefa til kynna: Dragðu Sverðið, Eldklerkur
dögunar, Þjónn það er hakakross á Nasistaf-
ánanum mínum - og svo framvegis. Þýðend-
urnir eru líka sammála um að bókin sé ramm-
pólitísk. „Já þetta er pólitískt verk, svolítið í
tilefni komandi kosninga,“ segir Ingólfur. „Við
ætlum að vekja fólk til byltingar og þetta er
fyrsta útkall.“ Eiríkur Örn tekur í sama streng.
„Þetta endurspeglar kannski að einhverju leyti
viðleitni okkar til að sýna fram á það að list-
in getur verið magnað pólitískt tæki. Það hefur
verið svolítið í umræðunni undanfarið að rit-
höfundar taki þátt í pólitík - þeir hafa þá farið
í pólitíkina í stað þess að taka pólitíkina inn til
sín,“ segir Eiríkur og nefnir Draumalandið sem
dæmi. „Hugmynd mín er sú að í staðinn fyrir
að stunda pólitík í listinni, þá sé listin stunduð
sem pólitík.“
Tími rúmbunnar (Tempo di Rumba)
- eftir Silvio Berlusconi.
Nú er tími fyrir rúmbu
undir kóralstjörnum himnafestingarinnar.
Blævængir kæla mig ég horfi á þig.
Við förum frá öllu
frá þér
yfirgefðu sjálfa þig
yfirgefðu sjónvarpið.
Skiljum þá eftir í plágum þrungnu loftinu
og ferðumst til afskekktrar eyju...
í öðrum heimshluta.
Listin
sem pólitík
Ekkert áhyggjuefni
- eftir Hannes Hólmstein Gissurarson.
Tekjuskattar á fyrirtæki
og einstaklinga
og erfðaskattur
hafa verið lækkaðir
og eignaskattur
felldur niður:
atvinnulífið
hefur blómgast
dafnað
greitt hærri laun
skilað meiri tekjum.
Allir hafa notið góðs af.
Ég get sofið á næturnar, þótt öðrum gangi vel.
Eríkur Örn
Norðdahl
„Listin getur verið
magnað pólitískt
tæki.“
Ingólfur Gíslason
„Við ætlum að vekja
fólk til byltingar.“
Fornþjóðirnar (The Ancients)
90 metra langur steingarður í Chile.
Kópavogsdagar
@Setningarhátíð Kópa-
vogsdaga, menningardaga
Kópavogs, verður í Smára-
lind á morgun kl. 14, en há-
tíðin stendur til 11. maí. Að
þessu sinni er lögð áhersla
á menningu barna og ungl-
inga. Í Smáralind verður opn-
uð ljósmyndasýningin „Frá
háaloftinu“, með ljósmynd-
um af börnum frá 1950-1970.
Tíbrártónleikar með skólakór
Kársness og Emilíönu Torrini
verða í Salnum kl. 16 og lista-
menn í Kópavogi eru með opn-
ar vinnustofur um helgina frá
14-17 þar sem vel verður tekið
á móti gestum. Öll vikan er
þéttsetin af viðburðum og yfir
fimmtíu stofnanir og fyrirtæki
taka þátt í hátíðinni.
Ágúst í
Gerðubergi
@Alþýðulistamaðurinn Ág-
úst Jónsson opnar málverka-
sýningu í
Boganum í
Gerðubergi
laugardag-
inn 5. maí kl.
16. Tján-
ingarþörf,
skaphiti og
óbeisluð lita-
notkun þykja
einkenna verk Ágústs en á sýn-
ingunni má sjá bæði abstrakt-
verk og landslagsmyndir. Eftir
veikindi sem hófust 1996 var
Ágúst frá vinnu í 3 ár. Á þeim
tíma voru sýndir í sjónvarpi
kennsluþættir í umsjón banda-
ríska listmálarans Bob Ross,
en Ágúst heillaðist af því sem
hann sá og ákvað að hefja eigin
tilraunir við listmálun. Síðan
þá hefur hann notað frístundir
sínar til listiðkunar.