Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 4
„Bæjarfélagið er að kaupa fyrirtæki
í bænum og leggja það svo niður,
þetta er bara út í hött,“ segir Snorri
Finnlaugsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í Árborg. Bæjarstjórn
keypti rekstur skemmtistaðarins
Pakkhússins og Pizza 67 ásamt
húsnæði. Kaupverð hefur ekki ver-
ið gefið upp. Þá er ekki ljóst hvort
húsið verður rifið en í fundargerð-
um segir að húsið hafi verið keypt
vegna deiliskipulags sem á eftir að
samþykkja.
Kaupverðið trúnaðarmál
Bæjarfélagið keypti skemmti-
staðinn Pakkhúsið og matsölu-
staðinn Pizza 69 í síðustu viku. Í
frétt um málið sem birtist á heima-
síðunni sunnlenska.is sagði Elvar
Gunnarsson, annar eigandi húss-
ins, kaupverðið vera trúnaðarmál.
Samkvæmt heimildum mun það
þó vera yfir sextíu milljónir króna.
Sjálft húsið er metið á 57 milljónir
samkvæmt Fasteignamati ríkisins
en þá er ekki talið með verðgildi
rekstrarins í húsinu.
Skemmtistaðurinn Pakkhúsið
verður opinn fram í júlí en þá verð-
ur hann lagður niður. Þar með
leggja bæjaryfirvöld niður eina
skemmtistaðinn á Selfossi.
Viðskiptalíf hrakið á brott
„Þessi gjörningur er bara al-
gjörlega út í hött,“ segir Snorri
Finnlaugsson, bæjarfulltrúi sjálf-
stæðismanna. Hann hefur ítrek-
að reynt að fá skýr svör innan
bæjarstjórnar um örlög hússins
og ástæður þess að það sé keypt.
Hann segist ekki hafa fengið svör
við þeim aðkallandi spurningum
sem hann hefur borið upp. Þá spyr
hann hvort húsið verði rifið. Snorri
segir það hluta af merkilegri versl-
unarsögu Árborgar og því sé ekki
réttlætanlegt að rífa það. Þá setur
hann spurningarmerki við það að
bæjarfélagið kaupi atvinnurekst-
ur með það eitt að markmiði að
leggja hann niður.
Framtíðardeiliskipulag
Í fundargerð Árborgar má sjá
svar Ragnheiðar Hergeirsdóttur
við fyrirspurn Snorra en þar stend-
ur að gert hafi verið ráð fyrir að
Pakkhúsið myndi víkja. Þar kemur
einnig fram að ástæðan fyrir því að
farið sé í kaup á húsinu nú sé sú að
framtíðardeiliskipulagstillögur að
miðbæjarsvæðinu séu nú á loka-
stigi. Ekki er búið að leggja þær fyr-
ir svo hægt sé að kjósa um tillög-
urnar enn sem komið er. Þá kemur
fram í svar hennar að það sé heppi-
legt fyrir skipulag og uppbyggingu
þessa svæðis að fækka eignarað-
ilum á svæðinu.
Ekkert á hreinu
„Það á enn eftir að vinna
úr samkeppni um deili-
skipulagið og samþykkja
það,“ segir Snorri en hon-
um þykja vinnubrögð bæj-
arstjórnarinnar stórfurðu-
leg. Hann segir að það sé
varla hægt að fara út í slíkar
fjárfestingar þegar ekki ligg-
ur fyrir hvernig svæðið eigi
að vera. Þá sé ekki einu sinni
búið að samþykkja skipulag-
ið og því undarlegt að menn
skuli vera svo vissir að allt muni
ganga eftir í ferlinu.
„Það má spyrja sig
hvort bæjarstjórn
sé að þjónkast
við einhverja
einkaaðila í
þessu máli,“
segir Snorri
að lokum. Þá
er ekki ljóst hvort reksturinn verð-
ur leigður þar til hann verður lagð-
ur niður eða hvort bærinn sjálfur
mun halda rekstrinum úti.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
náðist ekki í Ragnheiði Hergeirs-
dóttur bæjarstjóra en hún kom
þeim skilaboðum
til blaðamanns
að hægt væri
að ná í hana
í símatíma
á þriðju-
dögum og
fimmtu-
dögum.
fimmtudagur 17. maí 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Stýrivextir
háir áfram
Bankastjórar Seðlabankans
lýstu því yfir í gær að stýrivextir
bankans tækju engum breyting-
um núna.
Stýrivextirnir verða því áfram
14,25 prósent sem er það hæsta
sem þeir hafa nokkru sinni verið.
Stýrivextirnir hafa verið í 14,25
prósentum frá því undir lok síð-
asta árs. Þá höfðu þeir hækkað
jafnt og þétt frá í maí 2004 þegar
þeir höfðu verið 5,30 prósent.
Lægri hafa þeir ekki verið.
Greiningardeildir bankanna
gera ekki ráð fyrir að stýrivextir
lækki fyrr en langt er liðið á þetta
ár.
Farandsölumenn
handteknir
Þrír Pólverjar voru í haldi
lögreglunnar á Ísafirði í gær fyrir
að stunda farandsölu. Svo virðist
sem þeir hafi flakkað á milli bæj-
arfélaga og reynt að selja mynd-
listaverk og annað handverk. Það
er ekki löglegt , til þess þarf sér-
stakt söluleyfi.
Lögreglan telur að mönnun-
um verði sleppt að yfirheyrslum
loknum en ekki er ljóst hver af-
drif mannanna verða. Þeir verða
hugsanlega kærðir fyrir brot sín.
Sveitarfélagið Árborg hefur keypt rekstur skemmtistaðarins Pakkhússins á Selfossi.
Þá hefur það einnig keypt veitingastaðinn Pizza 67 og húsnæðið sjálft. Kaupverð mun
vera yfir 60 milljónum króna en það hefur ekki verið gert opinbert. Snorri Finnlaugs-
son bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun bæjaryfirvalda út í hött.
SVEITARSTJÓRN
KAUPIR BALLSTAÐ
Valur grEttiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Þessi gjörningur er bara
algjörlega út í hött.“
Átök á Selfossi
Bæjaryfirvöld hafa ákveðið
að kaupa veitingahúsa-
rekstur og húsnæði vegna
framtíðarskipulags sem
ekki er búið að samþykkja.
Vinnuvélar skemmdar í götustríði:
Milljónatjón hjá Magna
„Þessum aðgerðum er ekki beint
að réttum aðilum,“ segir Hörður
Gauti Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri hjá Magna ehf. Sjö vinnuvél-
ar voru skemmdar aðfaranótt mið-
vikudags. Ástæðan er talin illvíg deila
Varmársamtakanna og Mosfellsbæjar
um lagningu skolplagnar fyrir Helga-
fellshverfi í áður fyrirhuguð vegstæði
Helgafellsbrautar. Samtökin fordæma
verknaðinn og hvetja spellvirkjana til
að gefa sig fram við lögreglu.
Brotnar voru rúður í vinnuvélun-
um en að sögn Harðar Gauta eru fjórar
vinnuvélar ónothæfar eftir skemmd-
arverkin. Einnig var búið að spreyja
með svartri málningu, X-D, á eina rúð-
una í vinnuvél. Þá er ljóst að vinnutap-
ið verður nokkurt og því um talsvert
tjón að ræða.
„Það eina sem við vitum núna er
að tjónið hleypur á milljónum,“ seg-
ir Hörður Gauti. Honum þykir reiði
skemmdarvarganna ómakleg þar
sem fyrirtækið og starfsmenn þess
eru aðeins verktakar á vegum bæjar-
yfirvalda í þessu verki.
Hörður Gauti segir að þeir séu
búnir að kæra verknaðinn til lög-
reglunnar. Þeir hafa einnig heitið tvö
hundruð þúsund krónum til þeirra
sem geta gefið lögreglu upplýsing-
ar sem muni leiða til þess að málið
verði upplýst. Að sögn Harðar Gauta
er málið í sínum farvegi og vonast
hann til þess að það verði upplýst
með hraði.
„Við fordæmum skemmdarverkin
og skorum á viðkomandi að gefa sig
fram,“ segir Gunnlaugur Ólafsson,
varaformaður Varmársamtakanna.
Varmársamtökin komu þar hvergi
nærri að hans sögn.
Gunnlaugur segist telja að bæði
samtökin og bæjaryfirvöld þurfi að
ræða sig saman inn í nýtt ferli vegna
deilunnar sem harðnaði síðastliðinn
mánudag. Sjálfur vill hann skapa sem
mesta sátt um málið. Hann bendir á
að hugsanleg leið til þess sé að kjósa
um mismunandi valkosti inn í nýja
hverfið. valur@dv.is
Barátta í Mosfellsbæ
Spellvirki sem unnin voru á
vinnuvélum magna ehf.
hlaupa á milljónum.
2.500 strikuðu
yfir nafn Björns
Ríflega 18 prósent kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi suð-
ur strikuðu yfir nafn Björns
Bjarnasonar á framboðslista
flokksins í kosningunum um
síðustu helgi.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut
13.841 atkvæði og af þeim
strikuðu 2.514 kjósendur yfir
nafn Björns. Yfirkjörstjórn
kjördæmisins hefur staðfest
þær tölur. Björn var í öðru
sæti listans en færist að öllum
líkindum niður í þriðja sæti
vegna útstrikananna. Fyrir
vikið á hann sætaskipti við Ill-
uga Gunnarsson, þriðja mann
á listanum.
Lýsa einkennileg-
um hugarheimi
„Meira en 80 prósent kjós-
enda flokksins höfðu áskorun
Jóhannesar að engu,“ segir
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra.
Björn er ósáttur við dag-
blaðaauglýsingar Jóhannesar
Jónssonar verslunarmanns
sem hvatti kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi suður til að strika
yfir nafn Björns á framboðs-
lista flokksins. Björn telur
auglýsingarnar lýsa einkenni-
legum hugarheimi auglýsand-
ans og lýsir áhyggjum sínum
yfir því að í krafti auðs geti
einstaklingar ógnað réttar-
kerfinu.
Snorri Finnlaugsson
Segir kaup bæjarfélagsins
á eina skemmtistað Selfoss
stórfurðulega.