Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 6
fimmtudagur 17. maí 20076 Fréttir DV erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Efnahagur Kína hefur tekið undraverðum breytingum á tiltölulega skömmum tíma. Orkuþörf þjóðarinnar hefur aukist samfara mikilli uppbyggingu. Margir efast um hei- lindi Kína gagnvart Afríku, þrátt fyrir aukinn áhuga kínverskra ráðamanna á álfunni: AUKINN ÁHUGI Á AFRÍKU Aukinn áhugi kínverskra ráðamanna á Afríku hefur vakið upp spurning- ar. Kínverjar hafa meðal annars verið sakaðir um hræsni; að áhugi þeirra sé eingöngu til kominn vegna gífurlegra auðlinda sem Afríka hefur yfir að ráða. Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, hafnar þessum áburði og ítrekaði á fundi hjá Afríska þróunarbankanum, sem fram fór í Sjanghæ að markmið Kína væri að hjálpa Afríku til að þró- ast þjóðfélags- og efnahagslega. Hann höfðaði til auðugra þjóða að auka að- stoð sína við álfuna með auknum við- skiptum og niðurfellingu skulda. Aukin viðskipti Á síðasta ári ferðaðist Wen Jiabao í fleirgang til Afríku ásamt Hu Jintao, forseta landsins, og heimsóttu þeir ótal ríki. Þessar heimsóknir fengu mikla umfjöllun, ekki síst vegna þess að viðskipti Kínverja við Afríku jukust úr tíu milljörðum dollara, árið 2000 í fjörutíu milljarða árið 2006. Stjórn- málaskýrendur segja þá staðreynd að árlegur aðalfundur Afríska þróunar- bankans var haldinn í Asíu staðfesta aukið mikilvægi Afríku gagnvart Kína. „Við erum einlægir í þeim ásetningi að aðstoða Afríku við að hraða efna- hags- og samfélagslegum endurbót- um, “ sagði Wen Jiabao. En hann telur að Afríka þarfnist aðstoðar alþjóða- samfélagsins svo hún geti á sjálfstæð- an hátt viðhaldið þróuninni. Kínversk fyrirtæki í Afríku Einn þriðji af innfluttri olíu til Kína kemur frá ríkjum Afríku, auk annars hráefnis og hefur þessi inn- flutningur átt sinn þátt í þeirri öru uppbyggingu sem einkennt hefur kínverskt efnahagslíf. Um það bil sjöhundruð kínversk fyrirtæki eru starfandi víðsvegar í Afríku og við- skiptin hafa fjórfaldast á síðastliðn- um sex árum. Sumir vilja meina að tilgangur Kína sé að tryggja sér öryggi í orku- málum, sem séu forsenda þeirr- ar miklu uppbyggingar sem á sér stað í Kína. Kína hefur lagt áherslu á viðskipti við Nígeríu og Angóla og í seinni tíð Súdan. En stór hluti útflutnings þessara ríkja er einmitt olía. Kína sætti nýlega ásökunum um að brjóta gegn samþykkt Sam- einuðu þjóðanna, með vopnasölu til Darfur í Súdan. Frá fátækt til farsældar Kína var lengi vel land fátæktar. Hin síðari ár hefur kínverskur efna- hagur breyst ört og því ekki undar- legt að afrísk ríki séu reiðubúin til viðskipta við Kína. Það gæti einmitt verið leið Afríkuríkja frá fátækt til farsældar, því útlit er fyrir að kín- verskra áhrifa muni í auknum mæli gæta í þar. Mörg ríki Afríku telja að hægt sé að læra á samvinnu við Kína hvern- ig Kína þróaðist svo hratt og í stað olíu og annarra hráefna flytja Afr- íkuríkin inn ódýra kínverska fram- leiðslu. Kolbeinn þorsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is olíuvinnslustöð í nígeríu Kína flytur inn mikið af olíu frá Nígeríu. Wen Jiabao forsætisráð- herra Kína Heimsótti afríku í fleirgang á síðasta ári. Pólverjar sækja til Danmerkur Einn af hverjum fjórum inn- flytjendum til Danmerkur fyrstu þrjá mánuði ársins kemur frá Póllandi. Mikill skortur á vinnuafli í Danmörku hefur laðað Pólverja til landsins og í janúar, febrúar og mars komu 1.176 Pólverjar til landsins. Pólverjar í Danmörku eru nú 15.885 og eru þeir fimmti stærsti innflytjendahópurinn þar. Aðeins Þjóðverjar, Frakkar, Úkraínumenn og Filippseyingar eru fjölmennari. Samtals eru í Danmörku 483.390 innflytjend- ur og afkomendur þeirra, eða sem samsvarar 8,9 prósentum dönsku þjóðarinnar. Mótmæli á Uppstigningardag Í dag fara fram mótmæli í þorpi í frönsku Pyrenafjöllun- um. Tilefnið er brottrekstur þorpsprestsins. Hann var sviptur hempu af rómversk - kaþólsku kirkjunni vegna sambands hans við ekkju í bænum. Presturinn hafði ögrað regl- um kirkjunnar og verið í opin- beru sambandi við hollenska hjúkrunarkonu sem hann kynntist fyrir tuttugu og tveimur árum síðan. Presturinn, Léon Laclau, nýtur mikillar virðingar í þorpinu og höfðu þorpsbúar lagt blessun sína yfir sambandið. Þrátt fyrir ávítur og „bróðurleg ráð“ af hálfu yfirboðara sinna, var Laclau ekki reiðubúinn að binda endi á samband sitt og hjúkrunarkonunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.