Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 12
fimmtudagur 17. maí 200712 Helgarblað DV Hlaða fíkniefnum af netinu Á netinu eru til boða hljóðskrár sem sagðar eru valda vímuefnaein- kennum. Hægt er að hlaða niður skrám sem líkja eftir mismunandi vímum eftir fíkniefnategundum. Sífellt vinsælla er meðal ung- menna hér á landi að hlaða niður hljóðskrám af netinu sem líkja eftir ýmis konar vímuefnaáhrif- um. Þannig er hægt að hlaða niður skrám sem eiga að veita vímueinkenni, til dæmis eftir kannabisefni, kókaín, e-pillur og heróín. Áhrifunum er náð með því að hljóðskráin hefur áhrif á skilningarvit þeirra sem á hlusta. Á spjallsvæðum á netinu má sjá að íslensk ungmenni eru töluvert að prófa þetta og deila reynslu sinni af mismunandi áhrifum. Á síðustu Hróarskelduhátíð var sérstakt tjald á svæðinu þar sem hægt var að hlusta á slíkar hljóð- skrár sem valda vímuefnaein- kennum. Ef marka má reynslu unglinga á spjallrásum lýsa þeir ýmsum of- skynjunareinkennum og vellíðan eftir að hafa hlustað á hljóðskrárn- ar. Þannig lýsa þeir upplifun sinni ýmist sem rússíbanareið, vellíðan eða róandi áhrifum. Margir þeirra töluðu um að losna undan þreytu og töldu sig ekki þurfa á neinum svefni að halda. Í sumum tilvik- um mátti sjá að ungmennin próf- uðu vægari útgáfur í upphafi en voru sum hver staðráðin í að prófa „sterkari“ efni næst. Er í umferð Teitur Björgvinsson, aðstoðar- forstöðumaður félagsmiðstöðvar- innar Bólið í Mosfellsbæ, kannast við vaxandi vinsældir þess að ung- menni sæki sér slíkar hljóðskrár á netinu. Hann segir unglinga í félagsmiðstöðinni tala um þessa nýjung. „Við þekkjum þetta og heyrum um þetta í umferð meðal unglinganna. Einhverjir sýndu mér þetta um daginn og hlógu að þessu. Krakkarnir vita klárlega af þessu því þau eru ótrúlega fljót að finna hluti á netinu. Ég hef ekki heyrt af krökkum sem eru að prófa þetta daglega. Ég er afar hissa á því að þetta er til og líst mjög illa á þá staðreynd. Það er aldrei gott að vera að rugla í skynfærunum,“ segir Teitur. „Maður þekkir ekki hvort þetta geti haft einhver áhrif til langtíma,“ segir Teitur. „Auðvitað er þetta ömurlegt því enginn vímugjafi er sniðugur. Mitt persónulega mat er að sjálfsagt sé betra að þau prófi þetta frekar en venjuleg efni. Það er hins vegar spurning í framhaldinu hvort þau vilji prófa alvöru efni. Af því hef ég mestar áhyggjur.“ Alveg mögulegt Þór Eysteinsson, dósent í líf- eðlisfræði við Háskóla Íslands, segir mögulegt að hafa áhrif á heilastarfsemi með hljóðbylgj- um. Hann ítrekar að hann hafi ekki kynnt sér þetta mál sérstak- lega. „Í þessu máli kem ég alveg af fjöllum því ég hef ekki kynnt mér þetta. Annars er hægt að hafa áhrif á heilastarfsemi með hljóðbylgj- um á ákveðnum tíðnum. Þannig er hægt að hafa áhrif á heilabylgj- ur eða virkni í heilaberkinum með sljóvgandi eða örvandi áhrifum,“ segir Þór. „Þetta er alveg mögulegt. Með því að hafa áhrif á heilabylgj- ur er hægt að komast á mismun- andi vitundarstig. Hið sama er hægt að gera með ákveðinni ljós- tíðni, sérstökum alpha-bylgjum. Það er því mjög líklegt að þetta geti haft þessi áhrif. Það er hægt að virkja þetta þannig að það verði of mikið og þannig getur orðið varanleg breyting taugafrumanna sem kallar á endurtekningu örv- unar. Ég legg áherslu á að ég hef ekki kynnt mér þetta sérstaklega en að mínu mati getur þetta ekki verið uppbyggilegt.“ Nauðsynlegt að rannsaka Díana Ósk Óskarsdóttir, áfeng- is- og vímuefnaráðgjafi hjá Vímu- lausri æsku - foreldrahúsi, tel- ur brýnt að rannsaka áhrifin hið fyrsta. „Mér finnst þetta ógnvæn- legt. Að mínu mati tel ég mikilvægt að láta rannsaka þetta og finna út hvernig áhrif þetta hefur. Í fljótu bragði sé ég ekki hvernig þetta virkar en auðvitað ætti að geta ver- ið hægt að líkja eftir ýmsum áhrif- um. Ef þetta er eitthvað sem virk- ar þá er það skelfileg þróun,“ segir Díana Ósk. „Nú þegar höfum við mikl- ar áhyggjur af vaxandi hóp ung- menna sem hafa engin önnur áhugamál en tölvuna. Ef sá hópur, og fleiri, geta nú setið fyrir fram- an tölvuna og hlaðið niður vímu þá líst mér illa á,“ segir Díana Ósk. Þar að auki getur þetta vakið frek- ari forvitni hjá unglingunum. Þeir þora líklega frekar að prófa þetta fyrst og síðan alvöru efni. Þannig getur þetta opnað dyrnar fyrir vímuefnanotkun“. Guðrún Bjarnadóttir, barnasál- fræðingur hjá Miðstöð heilsuvernd- ar barna, tekur undir mikilvægi þess að rannsóknir þurfi að gera á þessu til að vita nánar um áhrifin. Hún kannast við umræðu um þetta. „Ég þekki almennt slíka hluti sem geta haft áhrif á boðefni heilans, sérstak- lega hef ég heyrt af slíku sem notað hefur verið til að hafa áhrif við æf- ingar. Þarna getur verið á ferðinni einhver tenging. Ég þekki ekki rann- sóknir á þessu en sé alveg mögu- leika á samskiptum umhverfis og boðefna til stað- ar. Hvaða afleiðing- ar það hefur á líf barna hefur hins vegar ekki verið rannsakað,“ seg- ir Guðrún. Slæm þróun Gísli Stefánsson, vímuefnaráð- gjafi og dagskrárstjóri SÁÁ, hefur áhyggjur af því að þessi þróun geti leitt til aukinnar fíkniefnanotkun- ar hjá ungu fólki. Hann segir ekki á það bætandi því fíkniefnavandi ungmenna hefur verið vaxandi á undanförnum árum. „Mér líst engan veginn á þessa þróun. Vímuefnavandi meðal ung- menna hefur farið vaxandi og því ekki á það bætandi að þessi viðbót komi til. Að upplagi er unga fólkið forvitið og ég trúi vel að þetta geti verið spennandi í huga margra til TrAuSTi hAfSTEiNSSoN blaðamaður skrifar: trausti@dv.is „Við þekkjum þetta og heyrum um þetta í umferð meðal unglinganna. Einhverjir sýndu mér þetta um daginn og hlógu að þessu. Krakkarnir vita klárlega af þessu því þau eru ótrúlega fljót að finna hluti á netinu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.