Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 13
DV Helgarblað fimmtudagur 17. maí 2007 13
Hlaða fíkniefnum af netinu
að
prófa. Ég
get vel ímyndað
mér það að þetta geti skapað
aukna hættu á að ungmennin freist�
ist til að prófa raunveruleg efni,“
segir Gísli. „Í grunninn á ég erfitt
með að sjá hvernig hægt er að búa
til slík áhrif með hjóði. Hins vegar
tel ég það slæma þróun að reyna að
líkja eftir áhrifum ýmissa fíkniefna
og getur slíkt aukið hættuna á auk�
inni fíkniefnanotkun í framhaldinu.
Ég hef ákveðnar áhyggjur af þessu.“
Óttast bylgju
Ösp Árnadóttir, framkvæmda�
stjóri Jafningjafræðslu Hins hússins,
hefur heyrt á þessum hljóðskrám.
Hún tekur undir áhyggjur þess efnis
að unglingar geti leiðst út í að prófa
alvöru efni í kjölfarið. „Ég held að
stærsti markhópurinn séu aðallega
þeir sem eru forvitnir. Ég veit ekki
almennilega hversu mikið þetta dyn�
ur á ungu fólki í dag. Það er auðvit�
að ekki gott ef svona bylgja myndi
ríða yfir því það myndi enn frekar
ýta undir þá umræðu sem lofar fíkni�
efni. Að svo komnu hef ég ekki heyrt
af mikilli útbreiðslu,“ segir Ösp. „Ég
tel mjög mikilvægt að finna út úr því
hvað þetta sé. Þannig þarf að finna
útúr því hver áhrifin eru raunveru�
lega og hvort þetta valdi skaða. Þó
svo að þetta komi þá er hættulegt
að hugsa að þetta komi að einhverju
leyti í staðinn fyrir alvöru efni. Þeir
sem eru að prófa svona eru í grunn�
inn spenntir fyrir því og geta í kjölfar�
ið viljað prófa önnur efni.“
Tekið af spjallrásum á neTinu:
n loloolol , tók 2 french toast eða
hvað sem etta heitir og mér líður
ekkert sem best í maganum og á
tíma hélt ég væri svífandi í rúmminu
mínu og bara var fljúgandi og vesen
hahah
---
n Ég var geðveikt þreyttur og ég
prófaði french toast og ég lagðist í
stólinn og hélt með höndunum yfir
headphonin og lokaði bara
augunum og ekkert truflaði mig
nema einu sinni og þetta virkaði.
Síðan er það að testa eitthvað
sterkara í kvöld
---
n Ég notaði Ecstasy og fékk bara
rússíbanatilfinningu, svo eins og ég
var standandi (var liggjandi) og
eitthvað var alltaf að toga mig „upp“.
---
n Ok ég prufaðu a-BOmB.. byrjaði
voða rólega, fannst eins ég víbraði
mjúklega svo þegar þetta var
rúmlega hálfnað fékk ég alveg feita
innilokunarkennd og átti erfitt með
að anda og varð að hætta í svona 10
sek og byrjaði þá aftur að hlusta og
þá fann ég svona hjarslátt í hausnum
á mér. Þá fannst mér ég fjlúga.
---
n Sjitt maður...ég hefði átt að prófa
eikkað róandi fyrst! þetta svínvirkar!
---
n En VÁ .. þetta virkar .. ég setti a-
Bomb1 á stað og lá í rúminu með
lokuð augu .,,, þetta er rosasniðugt ..
fyrst var etta eins og að vera í
rússíbana svo eins og andlitið sé að
bráðna og munnurinn stækkar
ekkert smá !!
---
n Þetta sem er Very Strong ættuð þið
ekki að nota í akstri eða nokkrum
mínútum áður en þið farið að aka. „.
haha
---
n Vitiði hvort þetta gæti verið
skaðlegt á einhvern hátt?
---
n Er að virka frábærlega ég finn varla
fyrir æfingum ef ég er búinn að nota
það þakka þér kærlega fyrir.
---
n Wtf! ég downloadaði eikkerju
alcahol og ég er fullur af engu!!!!
þetta er það skríttnasta sem ég hef
gert !! þetta shit er SNiLLLLLLd!!!
---
n Hmm.. þetta gæti hljómað
asnalega en.. getur maður ekki orðið
háður þessu or some??
---
n Shit, þetta er sveiiikenlich.... úff, ég
er bara eftir mig
---
n Cokaine virkar á mig og félaga
minn, ég hlutaði á þetta í 4 hátölum
og 1 bad ass bassa boxi og við
vorum dofnir í allveg 2 tíma eftir á
eins og það væri búið að sjúga alla
orku úr okkur. fáránlegt, ég bjóst
ekki við að þetta myndi virka.
---
n Heilagur hundaskítur. „tók“
marijuana í gærkveldi, varð soldið
fucked en ekkert alvöru, var að prófa
french roast. Shitt. Þetta er enginn
fokking lyfleysa. Shiiiiitt.
„Ef sá hópur, og
fleiri, geta nú setið
fyrir framan tölvuna
og hlaðið niður vímu
þá líst mér illa á.“
„Ég get vel ímynd-
að mér það að
þetta geti
skapað
aukna
hættu á að ung-
mennin freistist til að
prófa raunveruleg
efni.“
Lýsa vellíðan Víða á spjallrásum má
finna þræði þar sem ungmenni lýsa
upplifun sinni. í flestum tilvikum má sjá
að þau telja þetta hafa jákvæð áhrif.