Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 22
Menning
Tónamínútur
Tónamínútur, verk Atla
Heimis Sveinssonar, verð-
ur flutt í Laugarborg kl.15 á
laugardaginn. Flytjendur eru
Áshildur Haraldsdóttir flauta,
Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanó og Atli Heimir Sveinsson
píanó. Atli Heimir hefur verið
leiðandi afl í íslensku tónlist-
arlífi í áratugi og samið fjölda
tónverka. Verk fyrir flautu eru
áberandi á verkaskrá hans enda
gjörþekkir hann hljóðfærið,
möguleika þess og takmarkanir.
Hvorostovsky í Háskólabíói
Einn fremsti barítónsöngvari heims, Dmitri Hvorostovsky frá Síberíu,
heldur tónleika í Háskólabíói á sunnudaginn kl. 17. Efnisskrá tónleik-
anna er helguð sönglögum eftir helstu meistara rússneska sönglagsins,
ssem eru meðal annarra Tchaikovsky, Mussorgsky, Glinka,
Rachmaninoff og Borodin.
djass
sýning
Það er mikið um að vera hjá latíndjassaranum Tómasi R. um þessar mundir:
Lukkulegur í teknóbransanum
Tómas R. Einarsson fór í fyrsta skipti
á kaupstefnuna Midem í Cannes í
janúar síðastliðnum til að kynna tón-
listina sína, en Midem er ein helsta
kaupstefna tónlistariðnaðarins.
Þar komst hann í samband við full-
trúa hljómplötuútgáfunnar Putu-
mayo World Music, sem sömdu við
hann í kjölfarið um út-
gáfu lagsins Rumdrum
á safndiski með latín-
djasstónlist sem kemur út víðsveg-
ar um heiminn í næsta mánuði. „Ég
er þarna í góðum félagsskap,“ seg-
ir Tómas. „Ég fékk sent prufueintak
og mér brá svolítið þegar ég sá fólkið
sem ég er með á þessari plötu. Ég er
þarna á milli Ponchos Sanchez og Tit-
os Puente og það kom mér þægilega
á óvart,“ segir hann, en lagið Títóm-
as sem kom út á plötunni Kúbanska
vísar einmitt í Tómas sjálfan og Tito
Puente. „Mig hafði nú ekki dreymt
um það að ég myndi lenda með hon-
um á bandarískum safndiski,“ segir
hann. Frekari útgáfa á tónlist Tómas-
ar er fyrirhuguð á næstunni og í sum-
ar verður lag frá honum á kólumb-
ískri safnplötu. Einnig er von á plötu
í haust með endurhljóðblönduðum
lögum Tómasar. „Ég fékk fyrsta rím-
ixið í gær og það lá við að ég dytti af
stólnum, mér brá svo – en er búinn
að spila það mikið síðan og er bara
ansi lukkulegur með að vera kominn
í teknóbransann,“ segir hann. Tóm-
as kemur fram á tónleikum á NASA í
kvöld en þeir eru hluti af dagskrá tón-
listarhátíðarinnar Vorblóts. Þar mun
hann ásamt sex manna hljómsveit
flytja úrval þeirra tónlistar sem kom-
ið hefur út á þremur síðustu latínd-
iskum hans. Sama kvöld kemur einn-
ig fram malíska söngkonan Oumou
Sangare, sem Tómas er spenntur að
fá að heyra í. „Ég hleyp allavega ekki
út úr húsinu þegar hún byrjar – það
er á hreinu,“ segir Tómas.
Í gömlu kartöflugeymslunum í Ár-
túnsbrekku stendur nú yfir sýning
útskriftarnema við Listaháskóla
Íslands, en þar getur að líta verk
nemenda úr myndlistardeild og
hönnunar- og arkitektúrdeild skól-
ans. Undanfarin ár hefur útskrift-
arsýningin verið sett upp í Lista-
safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu,
en að þessu sinni var farin sú ný-
stárlega leið að útbúa jarðhýsin,
sem áður geymdu bandarískar
sprengjur og síðar kartöflur Reyk-
víkinga, sem sýningarrými. Nem-
endur við hönnunar- og arkitekt-
úrdeild sýna verk sín í bröggunum
sem sjást frá Ártúnsbrekkunni og
flestir kannast við, en nemend-
ur myndlistardeildar í einu stóru
neðanjarðarrými sem þeir innrétt-
uðu sjálfir. Húsnæðið var nýlega
gert upp í því skyni að hýsa lista-
og hönnunarmiðstöð.
Sýning hönnunar- og arkitekt-
úrdeildar skiptist í fjóra hluta;
fatahönnun, vöruhönnun, graf-
íska hönnun og arkitektúr – en
hver hluti hefur yfir einum bragga
að ráða, þar sem verkin eru sýnd.
Jóhann Einar Jónsson sýningar-
stjóri hönnunar- og arkitektúr-
deildar segir að verkin séu nokk-
uð mismunandi. „Við reyndum að
skipuleggja þetta þannig að hver
fengi að njóta sín á eigin forsend-
um,“ segir hann. „Arkitektarnir eru
til dæmis allir að vinna að sama
verkefninu, sem er hönnun nýrrar
Vesturbæjarlaugar, á meðan nem-
endur í vöruhönnun eru eiginlega
hver að gera sitt. Til dæmis sýnir
einn nemandi klukku og einn gerði
stóla – svo það er svolítið eins og
að koma inn á lítið heimili. Nem-
endur í fatahönnun gera svo hver
sína eigin fatalínu og það er eins
og að koma inn í flottustu fatabúð-
irnar í bænum að skoða sýninguna
þeirra. Í grafískri hönnun eru svo
aftur sumir að gera plaköt og sum-
ir vídeó,“ segir hann og það er ljóst
að sýningin er afar fjölbreytt.
Nemendur í myndlistardeild
hafa komið verkum sínum fyr-
ir í stóru neðanjarðarrými. Þar er
að finna allt frá vídeóverkum til
haganlega útfærðra pípulagna og
skúlptúra. Verkin njóta sín vel í
rúmgóðum neðanjarðarsal sem
stúkaður hefur verið niður eft-
ir þörfum. Það er því nokkuð sér-
stök upplifun að skoða útskrift-
arsýningu nemenda Listaháskóla
Íslands í ár og óhætt að mæla með
því að fólk líti þar við - til dæm-
is á leiðinni heim í úthverfin eftir
vinnu eða á leiðinni út úr bænum
um helgina.
Árleg útskriftarsýning nemenda við Listaháskóla Íslands stendur yfir í jarðhýsunum
við Ártúnsbrekku. Þar má skoða lokaverkefni nemenda við hönnunar- og arki-
tektúrdeild og myndlistardeild Listaháskólans.
Viröld fláa
Óperan Viröld fláa (Die
Wält der Zwischenfälle) eftir
Hafliða Hallgrímsson verður
flutt í Háskólabíói annað kvöld.
Þegar óperan var frumsýnd í
borgarleikhúsinu í Lübeck í
febrúar 2004 var henni fagnað
af gagnrýnendum sem veiga-
miklu listaverki sem: „...gæti
orðið á óperusviðinu það sem
Beðið eftir Godot er í leikhús-
heiminum – sígilt absúrdverk“.
Óperan hefur einnig verið sýnd
í Vín við góðar undirtektir. Nú fá
Íslendingar loks tækifæri til að
kynnast verkinu í tónleikaflutn-
ingi Sinfóníuhljómsveitarinnar
og átta einsöngvara.
Kvartettar
Jóns Leifs
Strengjakvartett Kamm-
ersveitar Reykjavíkur flytur
strengjakvartetta Jóns Leifs í
Listasafni Íslands í kvöld kl. 20.
Jón Leifs er án efa mesti frum-
kvöðull í íslenskri tónsköpun.
Strengjakvartettar hans lýsa í
senn sérstæðum stíl tónskálds-
ins og endurspegla hugar-
ástand hans þegar hann samdi
þá. Þrjú verk verða flutt á tón-
leikunum: Mors et vita, Dauði
og líf frá1939, Vita et mors, Líf
og dauði frá 1951 og El Greco
frá 1965. Þetta er í fyrsta sinn
sem allir þrír kvartettarnir eru
fluttir á einum tónleikum.
Sprengjur, kartöflur og listir
Sérstakt sýningarrými
Það er nokkuð sérstök
upplifun að skoða
útskriftarsýninguna.
Fjölbreytt verk Á sýningu
myndlistardeildar má til dæmis sjá
risavaxinn kúreka á hesti sínum.
Raunhæf lokaverkefni
Nemendur í arkitektúr
hönnuðu nýja Vesturbæjar-
laug í lokaverkefnum sínum.
fimmtudagur 17. maí 200722 Helgarblað DV