Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Qupperneq 34
fimmtudagur 17. maí 200734 Sport DV U m miðjan október- mánuð í fyrra gekk varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson til liðs við IFK Gauta- borg og skrifaði hann undir þriggja ára samning. Ragnar er á 21. aldursári og var ekki lengi að vinna sér sæti í byrjunarliði Gauta- borgar. Hann hefur verið í byrjunar- liðinu í öllum sex leikjum liðsins til þessa í sænsku deildinni. „Þetta hefur verið alveg frábært, þetta er algjör snilld. Ég er vel stað- settur, bý fimm mínútur frá æfinga- svæðinu og einnig er stutt í bæinn. Ég er með bíl svo það er ekki hægt að biðja um þetta betra,“ segir Ragn- ar sem er mjög ánægður með lífið í Svíþjóð og ber borginn Gautaborg vel söguna. „Þetta er mjög falleg borg og veðr- ið er búið að vera gott. Svo er alltaf fullt að gerast hérna. Það eru allt- af einhverjir tónleikar og allskonar uppákomur sem maður getur sótt í. Ég er bara ástfanginn af Gautaborg.” Ragnar er því ekki kominn með neina heimþrá. „Ég sakna kannski helst Serranos enda býr hún Silvía sem þar vinnur til ótrúlega góðan mat,” segir Ragnar og hlær. Þægilegt stökk Margir Íslendingar eru búsett- ir í Gautaborg og þá fer íslenskum fótboltamönnum í sænsku deild- inni fjölgandi. Hjálmar Jónsson leik- ur með Ragnari hjá IFK Gautaborg og þá er liðið GAIS einnig staðsett í borginni en með því liði leika Jóhann B. Guðmundsson og Eyjólfur Héð- insson. Sá síðastnefndi lék einmitt með Ragnari hjá Fylki síðasta sumar. „Ég hef ekki hitt Jóa mjög mikið en ég hitti Hjalla og Eyjó mjög oft. Svo hef ég X-Box hérna og er að spila á netinu við vini mína heima, ég spila mikið við Albert Brynjar Inga- son og fleiri. Svo gerir MSN-ið það að verkum að það er ekki mikið mál að halda sambandi við alla heima,“ seg- ir Ragnar. Í Landsbankadeildinni síðasta sumar var Ragnar meðal bestu leik- manna Fylkis. Hann lék alla átj- án leiki Árbæjarliðsins í deildinni og skoraði eitt mark. Hann segir að stökkið til Gautaborgar sé þónokk- uð en þó hæfilega mikið. „Það er mikið litið til sænsku deildarinnar af stærri liðum í Evrópu. Svo er fótbolt- inn náttúrulega betri en ekkert allt- of mikið. Stökkið hvað það varðar er eiginlega bara þægilegt ef svo má að orði komast. Spilið er vissulega betra og maður sér oftar menn gera flotta hluti með boltann hér,“ sagði Ragn- ar. Gautaborg á toppnum Ragnar segir að undirbúnings- tímabilið hafi verið býsna stremb- ið en allt er komið í fastari skorður í dag. „Undirbúningstímabilið var mjög erfitt. Það voru tvær æfingar á dag og mikið púl. Núna er aðeins ein æfing á dag nema einu sinni í viku eru tvær. Svo fer maður bara heim að hanga, horfa á 24 eða spila tölvuleiki eða niður í bæ að finna sér eitthvað að gera,“ segir Ragnar. Sænska deildin hefur farið mjög vel af stað og nú þegar sex umferð- ir eru búnar er Gautaborg á toppi deildarinnar með ellefu stig eins og Hammarby og Malmö. „Byrjunin á deildinni er eiginlega bara ótrúleg. Það eru örfá stig milli efstu og neðstu liða og allir virðast geta unnið alla,“ segir Ragnar en hann er sannfærður um að hans lið hafi það sem þarf til að berjast um sænska meistaratitil- inn allt til loka. „Alveg klárlega. Við vorum óheppnir að tapa fyrir AIK á heima- velli. Við vorum að spila mjög vel í leiknum en heppnin var ekki með okkur. Við gerðum sjálfsmark og þetta féll bara eins og það átti að gera. Svo höfum við unnið leiki þar sem við höfum verið slakari. Það vantar smá stöðugleika í okkur en annars höfum við þrusugott lið,“ segir Ragnar. Gautaborg er skemmtilegt félag og ríkir þar mikil samheldni. „Það má segja að þetta sé fjölskyldu- klúbbur. Það er alltaf mikið af krökk- um við æfingasvæðið og svo er skrif- stofufólkið í húsi þar við hliðina. Það borða allir saman og stemningin er bara róleg og góð,“ segir Ragnar. Eins og áður sagði hefur Ragn- ar vakið athygli í Svíþjóð fyrir góða spilamennsku og hefur hann feng- ið góða dóma í sænsku blöðunum. Hann er á sínu fyrsta tímabili með liðinu en virðist smellpassa inn í það. „Það hefur gengið rosalega vel hjá mér, betur en ég þorði að vona. Ég spila í miðri vörninni og hafsent- inn sem er við hlið mér heitir Matti- Fylgist núna betur með boltanum heima Varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína með sænska liðinu IFK Gautaborg. Hann kom til félagsins fyrir tímabilið frá Fylki í Árbænum og hefur strax fund- ið sig vel í Svíþjóð. Traustur ragnar Sigurðsson hefur verið feykilega traustur í vörn gautaborgar. Fjölskyldufélag Samheldnin er mikil hjá ifK gautaborg að sögn ragnars.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.