Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 39
DV Helgarblað fimmtudagur 17. maí 2007 39
hæft fæði og takmarkað úrval er leiði-
gjarnt til lengdar og dregur jafnvel úr
matarlystinni þannig að styttri tíma
er varið við matarborðið. Eftirréttur-
inn er enginn og það eru fáir sem geta
endalaust borðað kjöt og sósu ef kart-
öflurnar eru ekki með. Prótein seður
auk þess meira en fita og kolvetni og
próteinríkt fæði ýtir því undir að menn
fari saddir frá borði þrátt fyrir að minni
matur fari í magann. Helstu fylgikvill-
ar kolvetnasnauðustu kúranna eru
höfuðverkur og hægðatregða. Höfuð-
verk, slappleika og minnkaða afkasta-
getu má tengja skorti á kolvetnum þar
sem heilinn og taugakerfið ganga und-
ir eðlilegum kringumstæðum fyrir kol-
vetnum og hægðatregðuna má rekja til
þess hversu trefjasnautt fæðið er þeg-
ar lítið af ávöxtum og grænmeti er í
boði og sneitt er hjá grófu brauði og
kornmeti. Þegar margar fæðutegund-
ir eru útilokaðar verður lítið eftir. Fæð-
ið verður einhæft og um leið skerðist
næringargildi fæðunnar sem svo hef-
ur neikvæð áhrif á heilsuna. Fyrir þá
sem safnað hafa á sig yfirvigt eru kúr-
ar sem byggja á fjölbreyttri en skertri
fæðuinntöku með áherslu á grænmeti
og ávexti ásamt hóflegri fiskneyslu að
mínu mati heppileg þrep í áttina að
breyttum og betri lífsstíl. Mikilvæg er
einnig aukin hreyfing í hvaða formi
sem er.“
Grænt te og þaratöflur
Þegar Örn er spurður hvort hann
hafi orðið var við það þegar hann var
í Heilsuhúsinu að fólk óskaði eftir
megrun á mettíma svarar hann:
„Á löngum ferli í veröld hollustu-
vara sá ég að fólk vill gjarnan „patent“
lausnir, helst að sleppa við áreynslu
og viljafestu, en geta grennst með því
að taka inn pillu eða megrunardrykk.
Margar af þeim megrunarvörum sem
boðið er upp á eru út af fyrir sig hollar
og næringarríkar. Sem dæmi má nefna
svifþörunginn spirulina, sem er hrein
náttúruafurð hlaðin næringu. Grænt
te og íslenskar þaratöflur eru meðal
jurta sem geta stuðlað milt að hreins-
un líkamans, en gera að sjálfsögðu
engin kraftaverk. Í sjálfu sér er ekkert
nema jákvætt að nota slíkar vörur sem
„hjálpardekk“ til að koma sér á spor-
ið, en það sem skiptir máli er einbeitt-
ur vilji og sjálfsagi í framhaldinu. Ekki
gera ráð fyrir að þú getir losað þig við
kílóin hraðar en þú hlóðst þeim á þig,
leiðrétting á þyngdinni er langtíma-
verkefni, í raun ævistarf.“
Duft og töfratöflur
Anna Sigríður bendir á að nær
óteljandi lausnir hafi boðist í formi
drykkja, dufts og taflna...
„...að ógleymdum armböndum og
innleggjum í skó. Helsti kostur flestra
þessara lausna er að í leiðarvísinum
segir að efnið geri helst gagn ef mað-
ur borðar skynsamlega og hreyfir sig
mikið – og einhvern veginn virðist tafl-
an geta ýtt undir breytt mataræði og
aukið hreyfingu – líklega vegna þess
að hún útheimtir útgjöld sem ekki
mega fara til spillis – „lyfseðlinum“ er
frekar fylgt en almennum ráðum sem
fást frítt. Það er mikil þróun á markaði
fæðubótarefna, sem sum hver hafa
örvandi áhrif á brennslu og auðvelda
fólki þar með að grennast. Gæðin geta
verið misjöfn bæði á milli tegunda og
jafnvel milli framleiðenda svo það er
mikilvægt að neytendur séu gagnrýn-
ir og velti fyrir sér hvað þeir kaupa.
Það er engan veginn hægt að setja allt
undir einn hatt. Það er ekki endilega
gæðastimpill að vara sé náttúruleg,
virkni ýmissa náttúrulyfja getur ver-
ið mikil og hættan á eitrunum er ekki
síður fyrir hendi af náttúruvörum en
verksmiðjuframleiddum vörum. Mik-
ilvægt er því að fylgja vel leiðbeining-
um um skammtastærðir og innbyrða
aldrei meira magn en ráðlagt er á um-
búðum og eins ætti alltaf að spyrja
ráða hjá lækni ef verið er að taka ein-
hver lyf þar sem fæðubótarefnin geta
truflað virkni lyfjanna. Eins er ráðlegt
að forðast alla notkun fæðubótarefna,
annarra en hefðbundinna bætiefna, ef
konur eru að huga að barneignum eða
eru með barn á brjósti. Slík tímabil í lífi
kvenna eru auk þess alls ekki tíminn til
að fara í megrun.“
Grannur að utan,
feitur að innan
Rétt er að hafa í huga við umfjöll-
un greinar sem þessarar, að kjörþyngd
er almennt metin út frá svokölluðum
líkamsþyngdarstuðli eða „body mass
indexi“ (BMI).
„Á kjörþyngdarbilinu eru lífslík-
ur mestar og minnst hætta á ýmsum
sjúkdómum sem geta fylgt því að vera
vannærður eða ofalinn,“ segir Anna
Sigríður. „Margir hafa áhyggjur af því
að þyngjast og telja að hvert kíló nið-
ur á við hljóti að vera til góðs. Það er
ekki skrýtið eins oft og er hamrað á
þeim mikla vanda sem offitan er orð-
in í þjóðfélaginu. Það er þó ekki síður
tilefni til að varast það að léttast um
of. Neikvæðu áhrifanna af því að fara
niður fyrir kjörþyngdarbilið fer fyrr
að gæta en af örfáum kílóum upp fyr-
ir kjörþyngd. Það er heilbrigðara að
falla í flokkinn ofþyngd en að flokkast
í hóp þeirra sem þjást af vannæringu
eða offitu. Það er hæglega hægt að
vera grannur að utan en feitur að inn-
an vegna óheilbrigðs lífernis sem oft
tengist því að stöðugt er borðað minna
en líkaminn þarf og hreyfing ekki
stunduð reglulega. Slíkir einstakling-
ar hafa oft aukna sjúkdómshættu eins
og um fylgikvilla offitu væri að ræða.
Margir hafa kynnst því af eigin raun að
þegar byrjað er að stunda líkamsrækt
af einhverju tagi minnkar mittismálið
og maður grennist án þess þó að nál-
in á vigtinni færist. Þess vegna er það
lykilatriði að hugsa ekki bara um vigt-
ina heldur fyrst og fremst að móta lík-
amann með reglulegri hreyfingu og
hæfilegu magni af fjölbreyttum, holl-
um mat.“
Heilbrigð líkamsþyngd
mest heillandi
Í tilefni þess að nýlega var haldinn
árlegur megrunarlaus dagur, er ágætt
að velta fyrir sér hvers vegna megrun-
arkúrar eigi enn upp á pallborðið hjá
svo mörgum þrátt fyrir takmarkað-
an árangur með tilliti til holdafars og
heilsu. Anna Sigríður bendir á að mun
oftar heyrist fólk kvarta undan þyngd-
inni vegna þess að því finnst það ekki
líta nógu vel út í þessari eða hinni flík-
inni heldur en að það hafi verulegar
áhyggjur af heilsunni.
„Það er staðreynd að offita er sjúk-
dómur ef við hugsum um allan þann
fjölda heilsufarskvilla sem fylgja. Hins
vegar er markmið þess að ná niður lík-
amsþyngd einmitt falið í því að bæta
heilsu og lífsgæði fólks en ekki að ná
fram breyttu útliti – það fylgir bara
með. Hér er auðvitað heilmikillar hug-
arfarsbreytingar þörf, en það er samt
ólíklegt að við hættum nokkurn tím-
ann að tengja holdafarið útlitinu. Fyrir
nokkrum árum voru gerðar rannsókn-
ir á því hvaða vaxtarlag og holdafar
þykir mest aðlaðandi. Þegar karlmenn
gáfu myndum af konum (án höfuðs)
einkunn kom í ljós að þeir vildu helst
konur sem voru í kjörþyngd, en ekki
léttari! Mjótt mitti, stór barmur eða
langir fótleggir skiptu mun minna
máli en heilbrigð líkamsþyngd. Vís-
indamennirnir drógu þá ályktun að
þetta stafaði einfaldlega af því að kon-
ur eru frjósamastar ef þær eru í kjör-
þyngd – og innra eðli mannsins segir
honum að það sé það sem hann vill.
Þegar konur fengu að meta karlmenn í
sams konar rannsókn kom hins vegar í
ljós að konur velja karlmenn með öðru
hugarfari. Þeir þurfa að vera sterkir og
vöðvastæltir – til að draga björg í bú.
Breiðar herðar og grannt mitti, eða
þríhyrningslaga efri hluti, skipti þar
mun meira máli en líkamsþyngdar-
stuðullinn.“
Spirulina, Metasys
og fleira gott
Þeir sem reynt hafa að grenn-
ast með inntöku lyfja gefa marg-
ir hverjir jákvæða sögu. Það nýjasta
á markaðnum eru Metasys-hylkin
sem konur fullyrða að þær grennist
af. Nýjasta æðið er svokallaður LR
Hennig kúr, sem felst í því að taka inn
Reductil-töflur sem lækka sýrustig
líkamans, drekka orkudrykk og mik-
ið vatn, auk þess að borða ávexti og
grænmeti. Þær konur sem reynt hafa
þennan kúr hafa misst hátt í tíu kíló
á tveimur vikum, en vert er að vekja
athygli á því að hjá Lyfjastofnun er
hægt að sækja sér upplýsingar um
lyfið Reductil. Þar er það skilgreint
sem viðbótarmeðferð í megrunar-
áætlun hjá offitusjúklingum sem eru
of feitir vegna fæðuneyslu, þyngdar-
stuðull er of hár og aðrir offitutengd-
ir áhættuþættir eins og insúlínóháð
sykursýki eða blóðfituvandamál eru
fyrir hendi. Tekið er fram að Reduct-
il megi eingöngu ávísa sjúklingum
sem hafa ekki náð nægilegum ár-
angri í viðeigandi megrunarkúr ein-
um saman.
Ókunnug kona á spjalli.
Örn í Heilsuhúsinu segist ekki
muna eftir neinu sérstöku spaugilegu
sem tengist megrunarkúrum, en man
þó eitt atvik.
„Ég var alla tíð frekar skeptískur út í
þessa kúra og lagði yfirleitt ekki mikla
áherslu á slíkar vörur. Þó kemur upp
í huga mér atvik þegar kona ein kom
á kontórinn, heilsaði kumpánlega og
fór að spjalla. Ég þekkti þessa konu
bara alls ekki neitt. Svo kom í ljós að
þetta var viðskiptavinur sem ég kann-
aðist ágætlega við. Hún hafði notað
spirulina-kúr sem við vorum með og
grennst svona hressilega að ég þekkti
hana ekki aftur. Í dag hef ég tapað
sambandi við þessa konu, en meðan
ég þekkti hana eftir þetta hélt hún sér
í formi.
annakristine@dv.is
Töfralausnir
feitt kjöt, smjör og rjómi
atkinskúrinn er ólíkur því sem flestir eiga að venjast sem
megrunarfæði, enda brjóta ráðleggingarnar í bága við flest
þau ráð sem fræðimenn á sviði heilbrigðisvísinda geta með
góðri samvisku gefið eftir að hafa vegið og metið niðurstöður
rannsókna. Hvernig í ósköpunum getur verið æskilegt að
borða feitt kjöt, smjör og rjóma á meðan ekki má borða korn
og kartöflur og úrvalið af ávöxtum og grænmeti er skorið við
nögl? Ef fólk kýs kolvetnasnauða kúra, þá ætti að gæta þess
að leggja áherslu á að fitan sé mjúk, svo sem olía úr jurtum
ásamt lýsi. með því að velja fisk og baunir auk fituminna kjöts
og magurra, sykursnauðra mjólkurvara er auðvelt að fá nóg
af próteini án þess að mikil mettuð fita fylgi. með því að velja
til viðbótar réttu kolvetnagjafana, svo sem gróft kornmeti,
grænmeti og ávexti, má auðveldlega auka næringargildið og
fjölbreytnina og samt verða saddur af hæfilega miklum mat.
Svo má ekki gleyma að hafa hreyfinguna með, því með
hæfilegri hreyfingu í minnst 30 mínútur á dag má auka
brennsluna og ekki síst almenna vellíðan á heilbrigðan máta.
Áfengiskúrar
Það gefur auðvitað augaleið að kúrar á borð við hvítvíns- og
kampavínskúrinn geta tæpast falið í sér breyttan lífsstíl og
með heilbrigðissjónarmið í huga eru þeir með öllu óskiljan-
legir. Kannski helst að ógleði og lystarleysi í kjölfar of mikils
vínanda hafi átt að létta fólk?
reykt til grenningar
Hver kannast til dæmis ekki við mýtuna um að reykingar
haldi fólki grönnu og þess vegna sé erfitt eða borgi sig
jafnvel ekki að hætta? Staðreyndin er hins vegar að þeir sem
reykja eru almennt ekki grennri en þeir reyklausu. Hins vegar
getur þurft meiri aðstoð til að koma í veg fyrir þyngdaraukn-
ingu í kjölfar þess að hætt er að reykja, meðal annars vegna
þess að margir sækja þá í mat í staðinn.
Mikið græn- og grófmeti
Kúrar á borð við fit-for-life sem var vinsæll áður fyrr og danski
kúrinn núna eru öllu heilbrigðari nálgun þótt þeir séu ef til
vill svolítið ýktir og rök fyrir virkni þess fyrrnefnda séu ekki í
samræmi við vísindalega þekkingu. Þessir og fleiri kúrar eru
hins vegar gæddir þeim kosti að lögð er mikil áhersla á að
borða hvers kyns grófmeti, svo sem heilkorna vörur,
grænmeti, ávexti og belgjurtir og er það vel, enda er það sá
matur sem helst er af skornum skammti í daglegu fæði
margra. trefjarnar úr þessum fæðutegundum hafa þann
ótvíræða kost að veita fyllingu og seddu til langs tíma sem
gerir mönnum auðveldara að hafa stjórn á mataræðinu fyrir
utan öll hollefnin sem fylgja.
Detox
Það má kannski segja að nú séu kúrarnir nefndir öðrum
nöfnum, eins og til dæmis detox sem hefur verið svolítið í
tísku síðustu ár. detox orðið er notað yfir nokkrar mismun-
andi leiðir sem eiga að hreinsa eða „afeitra“ líkamann. detox
getur falið í sér algera föstu, sérfæði, náttúrulyf, notkun
hægðalosandi efna – eða blöndu af þessu. detox-kúrar eru í
raun óþarfir þótt þeir séu almennt ekki skaðlegir. Hins vegar
er það einu sinni svo að ef við trúum því að eitthvað geri
okkur gott þá líður okkur oft vel af því. Helsti kosturinn við
detox-fæði er hversu mikil áhersla er lögð á að borða mikið af
ávöxtum og grænmeti en draga úr, eða sleppa, neyslu á
koffíni, nikótíni, áfengi, viðbættum sykri og feitum mat. Það
er líklegt að vellíðanin sem skapast í kjölfar svona kúrs stafi
einmitt af því að fólk leggur sig fram við að velja meira af
hollum mat og sleppir ruslfæðinu. Það er hins vegar ekki nóg
að borða bara ávexti og grænmeti eða lifa á eintómum
söfum. fjölbreytni í fæðuvali er í raun lykillinn að hollustu og
engin ein fæðutegund er svo holl að hægt sé að lifa á henni
einni saman. meltingarfærunum er heldur ekki ætlað að
hvílast dögum saman. Það gerir þau aðeins veikari og það
verður erfiðara að koma starfseminni aftur í gang þegar farið
er að borða venjulega aftur. Betra er að velja trefjaríkan mat
til að halda meltingunni gangandi. Sem betur fer erum við
ekki að eitra fyrir líkamanum þegar við nærumst á hefðbund-
inn hátt. Það er okkur náttúrulegt og lífsnauðsynlegt að
nærast – og það mjög reglulega. Við getum ekki verið án
matar í marga daga, frekar en án svefns. Það er heldur ekkert
vísindalegt sem styður hugmyndina um að líkaminn þurfi á
„afeitrun“ að halda, þvert á móti. Það skiptir hins vegar heilm-
iklu máli fyrir heilsu og vellíðan að huga að mataræðinu.
Skynsamlegast væri auðvitað að borða alltaf vel af ávöxtum
og grænmeti en minnka í staðinn sykurinn og fituna. En það
ætti að vera markmiðið hvern einasta dag – ekki bara þegar
tímabundin „hreinsun“ stendur yfir.
um flesta megrunarkúra
gildir:
Kostir
Það þarf að hugsa um hvað er
borðað
Erfiðara er að nálgast mat
Útilokun ákveðinna matvæla
dregur úr matarmagni
Gallar
Óeðlileg samsetning
Næringarsnauðir og einhæfir
Ekki áhersla á breytta hegðun
tengda matarvenjum
Engin framtíðarlausn
Oft áhrif á lund og líðan
Einblínt á matinn á meðan
hreyfingin vill gleymast
Töfralausnin er:
fyrir þá sem safnað hafa á sig yfirvigt
er best að byggja á góðum grunni
með fjölbreyttri fæðuneyslu með
áherslu á grænmeti og ávexti og
gæta þess að hafa rétta samsetningu
á fæðu. aukin hreyfing er alltaf
mikilvæg.
og töff útlit
Atkinskúrinn sá lífseigasti Bækur
um atkins megrunarkúrinn hafa selst
í yfir 45 milljónum eintaka. annar
læknir fetaði í fótspor atkins og bjó
til South Beach kúrinn...
Daewoo lyftarar
Partur-Spyrnan-Lyftarar • Eldshöfða 10 • 110 Reykjavík • Sími: 585-2500 • Fax: 567-9557
Gæði á góðu verði