Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 40
fimmtudagur 17. maí 200740 Ættfræði DV Merkir Íslendingar: ættfræði U m s j ó n : K j a r t a n G u n n a r K j a r t a n s s o n N e t f a n g k g k @ s i m n e t . i s Reykjavík fyrr og nú: Nýtt hlutverk Austurbakkans Það er vel við hæfi að rifja upp eitt og annað frá hafnarsvæði Aust- urbakkans sem um þessar mund- ir gengur í endurnýjun lífdaga. Frá Ingólfsgarði að Tryggvagötu eru nú öll mannvirki horfin sem þar stóðu og settu sinn svip á höfnina. Austur- bakkinn bíður þess hins vegar að þar rísi glæsilegt tónlistarhús, ráðstefnu- hús, Reykjatorg, hótel og aðrar ný- byggingar, ásamt glæsilegum göngu- stíg frá Lækjartorgi að Reykjatorgi. Göngustígurinn verður að hluta til úr gleri en þar undir verða víðfeðm og upplýst bílastæði svo stígurinn kem- ur til með að minna á læk sem hef- ur lagt. Hér er augljóslega verið að vísa í Lækinn sem rennur frá Tjörn- inni undir Lækjargötu og niður í sjó. Og ekki þarf að bíða lengi því fram- kvæmdir eru hafnar af miklum krafti eins og sjá má á risastórum grunni sem nú þegar er búið að taka suð- vestan við Ingólfsgarð. Kolakraninn Það sem fyrst vekur athygli á mynd Gunnars Rúnars er Kolakran- inn eða Hegrinn, eins og hann var nefndur við hátíðleg tækifæri. Kola- kraninn var meiriháttar mannvirki, stórfenglegur og stílhreinn, nokkurs konar Eiffelturn Reykjavíkurhafn- ar. Hann veitti gjarnan listmálurum innblástur og var í rúma fjóra ára- tugi nokkurs konar tákn Reykjavík- urhafnar. Þá hafði Kolakraninn sterka sögulega skírskotun í fleiri en einum skilningi. Hann skírskotaði til tækni- væðingar, aukinnar framleiðslugetu og þess fjölbreytta athafnalífs sem blómstraði við höfnina í áratugi. En hann var jafnframt tákn um liðna og gjörólíka tíma þegar fjöl- skyldur og fyrirtæki notuðu kol til þess að hita upp hjá sér og elda mat og eimskip voru knúin kolum. Hann var tákn um Reykjavík áður en hita- veitan kom til sögunnar á stríðsár- unum, tákn um þá tíma þegar svört kolaslæða lá yfir bænum og byrgði stundum fyrir sólu. Við sem ekki munum þessa tíma eigum erfitt með að ímynda okkur þau þáttaskil sem urðu með hitaveitunni sem reyndar var fyrsta almenna hitaveita í heimi. Kol og salt hf Stórfyrirtækið Kol og salt hf, stofn- að 1914, bar höfuð og herðar yfir aðra kolainnflytjendur hér á landi. Fyrirtækið hafði alla tíð aðsetur á Austurbakkanum þar sem síðar kom Faxaskálinn. Eins og nærri má geta var kolainnflutningur umfangsmikill og setti sinn svip á hafnarstarfsem- ina. Upphaflega var kolum mokað úr kolaskipum með skóflum og upp á hestvagna og kolunum síðan ekið í stóran bing þar sem nú er bílastæði Seðlabankans. Árið 1926 réðst Kol og salt í það stórvirki að kaupa Kolakranann en hann var þá einhver fullkomn- asti uppskipunarkrani sinnar teg- undar. Uppskipun á kolum fór þar fram sem kraninn stendur á mynd- inni, en hann sat á sporteinum sem glögglega sjást á myndinni, svo hægt væri að færa hann í norður og suð- ur eftir því sem þurfa þótti. Fremsti hluti hans var á „hjörum“ og mátti því hafa hann uppréttan eins og sést á myndinni, þegar ekki var verið að skipa upp. Þá sést stjórnkofi kran- ans vel á myndinni. Afturhluti kran- ans sést hins vegar því miður ekki og þar með ekki einu sinni helmingur af lengd hans. Þegar verið var að skipa upp kol- um færðist stjórnklefinn eftir braut- um í vestur og austur, að og frá hafn- arbakkanum. Kraninn var í einhverri notkun fram yfir 1960 er allri kola- notkun var nánast hætt. Við sem þá vorum krakkar og renndum okkur á sleðum á Arnarhólnum á kyrrlátum vetrarkvöldum, munum enn eftir skröltinu sem kraninn gaf frá sér og neistafluginu sem myndaðist þegar stjórnhýsið rann þar á járnhjólum eftir sínum föstu brautum. Kraninn var svo rifinn árið 1968 og hefur farið í brotajárn. Auðvitað orti Tómas Guðmunds- son um mannlífið við höfnina og þar á Kolakraninn sinn sess. Látum hann hafa síðasta orðið um þetta magnaða mannvirki: En hátt yfir umferð hafnar og bryggju. Og hátt yfir báta og skip, Sfinxi líkur rís kolakraninn með kaldan musterissvip. Hann mokar kolum og mokar kolum frá morgni til sólarlags. Raust hans flytur um borg og bryggjur boðskap hins nýja dags. Milli bakkans og Kalkofnsvegar Þegar lokið var við umgerð hafn- arinnar 1917, það er að segja við Ing- ólfsgarð og Norðurgarð sem mynda hafnarmynnið og Grandagarðinn, varð svæðið frá Faxagarði og hafnar- bökkunum og að Kalkofnsvegi helg- að hafnarstarfsemi. Svæðinu var lengi skipt í þrjá hluta af tveimur göt- um sem þarna lágu, Faxagötu, sem lá frá Kalkofnsvegi og niður á hafnar- bakkann á móts við togarabryggjuna, og Geirsgötu, sem lá frá Kalkofns- vegi og skáhallt niður að norðaust- urhorni A-skálans og þaðan niður að hafnarbakkanum með norðurgafli A-skálans. Milli Faxagötu og Geirs- götu var einmitt athafnasvæði Kol og salt hf. Geirsgatan var lögð af á þess- um slóðum er Faxaskálinn var reist- ur og Eimskip stækkaði vöruport sitt á bak við skálana tvo, en Faxagatan er nú nýhorfin, eins og reyndar öll mannvirki á svæðinu. Fyrir norðan Geirsgötu var meðal annars opin- bert pissuskýli sem enginn hætti sér inn í síðustu árin, Togaraafgreiðslan og samnefnd ævintýraleg kaffibúlla fyrir togarajaxla þar sem afgreiddi mikill kvensvarkur. Hún kallaði ekki allt ömmu sína og vakti aðdáun okk- ar strákanna með því að gefa körlun- um ekkert eftir með klámfengnum athugasemdum. Nyrsti og austasti hluti þessa svæðis er á þeim slóðum þar sem Batteríið stóð forðum, og þar risu snemma óhrjálegar vöruskemm- ur sem nú hafa nýverið týnt töl- unni. Syðsti hluti Austurbakkans var hins vegar lengi óuppfylltur eða fram í stríðsbyrjun og náði því sjór- inn langleiðina að Varðarhúsinu við Kalkofnsveg og að Verkamannaskýl- inu þar sem nú eru gatnamót Kalk- ofnsvegar og Tryggvagötu. Eftir að þar kom uppfylling varð svæðið at- hafnasvæði Eimskipafélagsins. Þar var A-skálinn reistur. Faxaskálinn sem nú er nýhorfinn var hins vegar ekki reistur fyrr en 1968-1969. En þá voru líka framkvæmdir langt komn- ar í Sundahöfn og farið að styttast í að öll vöruflutningaskip og vöruupp- skipun færðust úr Austurhöfninni í hinni gömlu Reykjavíkurhöfn og inn í Sundahöfn. Mannlífið við höfnina Erfitt er að lýsa fyrir yngri kyn- slóðum því fjölbreytilega mann- lífi og athafnalífi sem átti sér stað við Reykjavíkurhöfn á árum áður. Við Ingólfsgarð voru varðskip- in, stolt þjóðarinnar í viðsjárverð- um þorskastríðum. Þá kom tog- arabryggjan sem oft var þétt setin og uppskipun þar á togarafiski. Þá uppskipun á kolum og sementi þar fyrir sunnan, síðan athafnasvæði Eimskipa í krikanum milli Aust- urbakkans og Miðbakkans, en þar kom einmitt Gullfoss að bryggju með siglda merkismenn og kon- ur, meðal annars Halldór Laxness 1955. Þá kom Ríkisskip með sína strandflutninga sem nú er verið að bollaleggja að hefja aftur, síðan Grófarbryggjan, svæði fyrir Magna og dráttarbátana, þá bátabryggj- urnar og loks Ægisgarður sem skiptir höfninni í Austur- og Vest- urhöfn. Í Vesturhöfninni var Slipp- urinn og síðan fiskibátar og togarar. Auk þess var Eimskip með uppskip- un úti í Eyju á tímabili. Þarna ægði því öllu saman, borða- lögðum skipherrrum Gæslunnar, hröktum, ungum togarasjómönn- um sem kepptust við að lifa lífinu þær klukkustundir sem þeir voru í landi, áhöfnum á „Fossunum“, far- þegum af Gullfossi, Eyrarköllum sem mynduðu kjarnann í verkalýðs- félaginu Dagsbrún, ungum stúlkum á vafasömum stefnumótaslóðum, óreglumönnum í leit að múruðum togarasjómönnum og strákum að kaupa veiðarfæri í Ellingsen og veiða marhnút. Það væri gaman að gefa þessu horfna mannlífi meiri gaum. Von- andi tekst Víkinni, hinu nýja sjó- minjasafni, að endurvekja þessa horfnu hafnarstemmingu. Gunnar Gunnarsson f. 18. maí 1889, d. 21. nóvember 1975 Gunnar Gunnarsson rithöfundur fæddist á Valþjófsstað í Fljótsdal, son- ur hjónanna Gunnars Helga Gunnars- sonar, bónda og hreppstjóra, og fyrri konu hans, Katrínar Þórarinsdóttur húsfreyju. Gunnar var á sjöunda ári er fjölskyldan flutti að Ljótsstöðum í Vopnafirði en ári síðar lést móðir hans úr lungnabólgu. Hafði móður- missirinn djúpstæð og varanleg áhrif á hann. Barnaskólanám Gunnars var stop- ult, einungis farkennsla í nokkrar vik- ur og nám í eitt misseri við barnaskóla á Vopnafirði auk þess sem séra Sig- urður P. Sívertsen á Hofi sagði honum til í einn vetur. Hann stundaði síðan nám við Lýðháskólann í Askov á Jót- landi 1907-1909. Segja má að ævi Gunnars lýsi óbil- andi kjarki og fádæma eljusemi. Strax að námi loknu ákvað hann að setjast að í Danmörku og gerast rithöfund- ur á danska tungu. Í nokkur ár lifði hann við stopul ritlaun og kröpp kjör en hafði óbilandi trú á sjálfum sér og sínum framtíðardraumum. Í ársbyrjun 1912 gaf Gyldend- als forlagið út fyrsta bindið af Sögu Borgarættarinnar. Vakti bókin strax mikla athygli og varð metsölubók. Með næstu bindum varð Gunnar einn vinsælasti rithöfundur í Dan- mörku. Í kjölfarið var sagan þýdd á önnur tungumál og var afbragðs vel tekið víðar í Skandinavíu og í Þýska- landi. Þar urðu ritverk Gunnars feiki- lega vinsæl, enda er hann líklega eini Íslendingurinn sem boðið var á sér- stakan fund með Hitler. Saga Borgar- ættarinnar var kvikmynduð hér á landi 1919 og er fyrsta íslenska sagan sem kvikmynduð var á Íslandi. Gunnar bjó og starfaði í Danmörku til 1938. Hugur hans var þó bund- inn Íslandi og söguefni hans gjarnan sótt þangað. Hann var mikill aðdá- andi Íslendingasagna, þýddi sjálfur Grettissögu á dönsku og sá um útgáfu hennar þar. Þá fjallar Fóstbræðrasaga Gunnars um samskipti þeirra land- námsmannanna Ingólfs Arnarsonar og Hjör-Leifs Hróðmarssonar. Er Gunnar flutti heim 1938 byggði hann sér glæsilegt hús að Skriðu- klaustri þar sem nú er Gunnarsstofn- un. Þar stundaði hann búskap til 1948 er hann flutti til Reykjavíkur. Gunnar var mjög afkastamikill rit- höfundur. Verk hans spanna raunsæ- isstíl, rómantík og taka jafnvel sum mið af tilvistarspeki. Þekktasta og viðamesta verk hans er Fjallkirkjan, sjálfsævisaga höfundar í skáldlegri útfærslu. Svartfugl er hins vegar sú skáldsaga hans sem mest hefur verið rómuð í seinni tíð. Hún byggir á Sjö- undaármorðunum frá 1802. Flest verk Gunnars voru þýdd á ís- lensku af Halldóri Laxness og honum sjálfum. Gunnar var fjórum sinnum útnefndur til bókmenntaverðlauna Nóbels, 1918, 1921 og 1922 en Aka- demíunni þótti hann ekki hafa tekið út fullan þroska þá. Hann var einnig útnefndur 1955 er Halldór Laxness fékk verðlaunin. Gunnar lést 1975 og var að eigin ósk jarðsettur í graf- reitnum í Viðey. Tæpu ári síðar lést eiginkona hans, Franzisca Antonia Josephine Jörgensen frá Fredericia á Jótlandi, og var hún lögð til hinstu hvílu við hlið hans í Viðey. Ættfræði DV Kjartan gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk� dv.is Austurbakkinn Hér gefur að líta eina af mörgum bráðskemmtilegum ljósmyndum gunnars rúnars Ólafssonar sem teknar voru í reykjavík um og eftir miðja síðustu öld. myndin er líklega tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Eina kennimarkið á myndinni sem enn er við lýði er Eimskipafélagshúsið sem guðjón Samúelsson teiknaði og reist var 1920-1921. myndin er tekin í suður á austurbakkanum í gömlu reykjavíkurhöfn, rétt sunnan við togarabryggjuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.