Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Page 42
fimmtudagur 17. maí 200742 Helgarblað DV HÖRPUSLÁTTUR OGhuldumál V eðurguðirnir vissu ekki alveg hvernig þeir ættu að haga sér þegar Helgi Tómasson, stjórnandi San Francisco-ballettsins heimsótti æsku- stöðvar sínar í Vestmannaeyjum á þriðjudaginn. Dagana áður hafði verið glampandi sólskin og Eyjabú- ar sögðu himininn hafa verið baðað- an appelsínugulum, fjólubláum og silfruðum litum. Grár himinn og hífandi rok gátu hins vegar ekki skyggt á gleði Helga og fjölskyldu hans þennan dag. Helgi Tómasson hafði ekki komið til Vest- mannaeyja í rúm fimmtíu ár þegar hann hélt þangað í för með forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Gríms- syni, Þórunni Sigurðardóttur, fram- kvæmdastjóra Listahátíðar, og fleira góðu fólki eins og Árna Gunnarssyni, forstjóra Flugfélags Íslands. Með í för var auðvitað hin fallega og hlýja eig- inkona hans Marlene og synirnir Eric ljósmyndari og Kristinn bifreiða- hönnuður. Gengið mót vindi Veðrið var eins lífið þennan dag, það skiptust á skin og skúrir, logn og rok. Arnar Sigmundsson var leið- sögumaður í rútunni sem bar gestina víða um Eyjuna. Í Pompei norðurs- ins var uppgröftur skoðaður, á móti vindi gengu gestir upp að Stórhöfða til að heilsa upp á Óskar Sigurðsson, síðasta veðurathugunarmann lands- ins, og í Landakirkju sagði séra Kristj- án Björnsson sögu kirkjunnar. Í Landakirkju hafði Helgi sótt messur með móður sinni þegar hann var barn að aldri og áhugi hans og fjölskyldu hans á frásögn af bæna- stundinni í kirkjunni nóttina sem gos hófst í Eyjum var einlægur. Þar voru saman á bæn presturinn séra Þorsteinn Lúther Jónsson, bæjarbú- ar og hjálparsveitarfólk og Arnar Sig- mundsson sagði okkur frá hættunni sem stafaði af gaskyndingu kirkj- unnar. Þá nótt fóru fjörutíu hús und- ir hraun – en spyrja má hversu mörg hefðu orðið gosinu að bráð hefði ekki verið beðið á sömu stundu? Æskuheimilin Þessi fyrsta ferð Helga á æsku- slóðirnar í rúma hálfa öld var bæj- aryfirvöldum í Vestmannaeyjum til mikils sóma frá upphafi til enda. Á flugvellinum tók bæjarstjórinn í Eyj- um Elliði Vignisson á móti hópnum ásamt formanni bæjarráðs Páleyju Borgþórsdóttur og stúlka færði Helga Tómassyni, fjölskyldu hans og for- seta Íslands blóm. Á ökuferð um bæ- inn stansaði bíllinn við æskuheimili Helga og þar varð Arnari Sigmunds- syni á orði að það hljóti að hafa verið mikil viðbrigði fyrir barn úr tæplega fjögurþúsund manna bæjarfélagi að setjast að í stórborgum Bandaríkj- anna. Steinunn Jóhannesdóttir rit- höfundur var með í för og við stytt- una af Guðríði Símonardóttur sagði hún sögu hennar á sinn skilmerki- lega hátt. Miðaldatónlist í Stafkirkjunni Í Stafkirkjunni fluttu Spilmenn Ríkínis sönglög úr íslenskum hand- ritaarfi frá dögum Tyrkjaránsins og það var greinilegt að Helgi Tómasson og fjölskylda hans voru mjög heill- uð. Þau dvöldu dágóða stund með hópnum eftir að aðrir höfðu lagt leið sína í Byggðasafnið að þiggja kaffi og kleinur. Deginum lauk í Vélasalnum þar sem opnuð var sýningin Tyrkja- ránið – sjóræningar og kristnir þræl- ar, stórmerkileg sýning sem vert er að vekja athygli annarra Íslendinga á. Þar heiðraði Elliði bæjarstjóri Helga Tómasson og færði honum að gjöf ljósmynd af Heimakletti og geisladiskasafn með lögum Oddgeirs Kristjánssonar. Það er ekki ótrúlegt að Helgi og fjölskylda hans hafi upp- lifað þennan þriðjudag eins og kem- ur fram í texta Ása í Bæ við lag Odd- geirs Kristjánssonar - hörpuslátt og huldumál. Synir Helga, Eric og Krist- inn, voru heillaðir af Vestmannaeyj- um sem þeir höfðu heyrt frásagnir af frá unga aldri og ekki minna heilluð var eiginkonan Marlene, sem sagði: „Þetta er arfleifð sona okkar.“ annakristine@dv.is Miðaldatónlist í stafkirkjunni Helgi og fjölskylda hans voru heilluð af flutningi Spilmanna ríkínís og gáfu sér góða stund til að skoða hljóðfærin. tónlistarhópurinn nefnir sig eftir ríkíní, fyrsta tónlistarkennara hins forna Hólaskóla. Í Pompei norðursins Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur, séra Kristján Björnsson, marlene tómasson, herra Ólafur ragnar og Helgi tómasson. Fjölskyldan Synirnir Eric ljósmyndari og Kristinn bifreiðahönnuður nutu dagsins í Vestmannaeyjum. marlene kona Helga var ekki síður heilluð af því að kynnast æskuslóðum eiginmannsins. Eric er ljósmyndarinn sem tekur allar glæsilegu myndirnar af San francisco-ballettflokknum. Kristín Jóhannesdóttir menningarfulltrúi sýndi þeim kort af staðnum. Það er ekki ótrúlegt að Helgi og fjölskylda hans hafi upplifað þennan þriðjudag eins og kemur fram í texta Ása í Bæ við lag Odd- geirs Kristjánssonar - hörpuslátt og huldu- mál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.