Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Side 59
Í fyrstu ráns- og morðferð nor-
rænna víkinga til N.-Ameríku
verður ungur strákur eftir og elst
upp hjá indjánum eftir það. Þeg-
ar víkingarnir snúa aftur til fleiri
óþverraverka ver hann hið raun-
verulega fólk sitt, indjánana. Þessi
mynd hefur marga snertifleti við
Íslendinga. Hún er m.a. byggð á
samnefndri norskri mynd sem
Nils Gaup skrifaði og skartaði hún
íslenskum leikurum. Þessi mynd
gerir það líka því Vestur-Íslend-
ingar, að því er virðist, leika nokkra
víkingaóþverra sem birtast ekki
ósvipaðir Orkunum úr Hringa-
dróttinssögu. Það þarf enginn
að efast um að íslenskir víkingar
hafi verið viðbjóðir sem komu illa
fram. Hér er samt fullmikil „Hrafn
Gunnlaugs sagnfræði“ á ferð sem
sést á undarlegum búningum,
vopnum og öðru. Myndin er unn-
in að hluta úr teiknimyndasögu
eins og sagnfræðibrenglunin 300
en er ekki jafn grafískt flott og sú.
Bardagasenur eru síðan óskýrar
og myndin er full af hallærislegum
bregðisenum úr smiðju leikstjór-
ans sem einnig ber ábyrgð á endur-
gerð Keðjusagarmorðanna í Texas.
Hollywood-klisjur eru hér áþreif-
anlega til staðar í þessum indjána-
og víkingahasar sem sparar ekki
slowmo-effekta og kastar síðan
inn fjarstæðukenndum senum á
borð við sleðaeltingaleik á skildi.
Þrátt fyrir allt er gaman að horfa
á þessi ósköp en af öðrum ástæð-
um en sjálfum gæðum myndar-
innar. Til dæmis eru bestu atrið-
in þegar víkingarnir rymja út heilu
senurnar á óskiljanlegu íslensku-
hrafli með kanahreim. Þegar síð-
an eini víkingurinn sem talar al-
vöru íslensku dettur inn með sína
línu fær hann öxi í hausinn áður
en hann nær að klára setninguna.
Það ætti að kenna honum.
ErpurÞ.Eyvindarson
Leikur pólska
frelsishetju
Daniel Craig mun leika í kvik-
myndinni Defiance eftir leikstjór-
ann Ed Zwick. Myndin gerist í Pól-
landi í seinni heimsstyrjöldinni og
fjallar um fjóra bræður sem ásamt
hópi gyðinga flýja frá Póllandi til
Hvíta-Rússlands, þar sem þeir slást
í hóp rússneskra uppreisnarmanna.
Áður hefur Zwick gert myndir á
borð við The Last Samurai, Glory,
The Siege og nú síðast Blood Dia-
mond. Þegar upptökur á Defiance
eru búnar, mun svo Craig snúa sér
að næstu Bond-mynd.
Pathfinder Undarleg upplifun.
Óskiljanlegt íslenskuhrafl með kanahreim
„Ég er búin að vera að hanna og
sauma hettupeysurnar síðan í byrj-
un árs,“ segir Klara Ósk Elíasdóttir
söngkona og hettupeysuhönnuður.
„Þetta kviknaði eiginlega bara sem
hugmynd áður en ég fór að sofa eitt
kvöldið,“ segir Klara og bætir við:
„Ég elska svona síða, þægilega boli
eins og eru svo mikið í tísku í dag. Í
kjölfarið fór ég þá að hugsa út í það
hversu gott væri að eiga eina kósí,
þykkari flík eins og hettupeysu sem
væri nógu síð til að vera í við legg-
ings.“ Klara hefur alltaf verið dugleg
við að sauma og hanna föt en það
var ekki fyrr en hún mætti í peysu
sem hún sjálf hafði saumað í sum-
arbústaðarferð með saumaklúbb-
num að vinkonurnar vildu ólmar
eignast eina slíka sjálfar. „Ég hef
svo gaman af því að gera þetta og
var full af hugmyndum svo ég fór
bara beint í gang með að sauma fyr-
ir stelpurnar. Þegar ég ákvað svo að
stofna MySpace-síðu með peysun-
um fór ég að fá fyrirspurnir frá fólki
sem ég þekkti ekki neitt og hafði
varla undan við að sauma.“
Fígúra á Skólavörðustíg
Klara hefur hins vegar sett fyrir-
spurnir í gegnum netið á pásu því
hún hyggst nú selja hettupeysurn-
ar í versluninni Fígúru sem opnar á
Skólavörðustíg eftir helgi. „Bekkjar-
systir mín úr Verzló hafði samband
við mig því kærastinn hennar Gaui
hafði þá tekið upp á því að leigja
æðislegt lítið húsnæði á Skóla-
vörðustíg og vildi opna þar verslun
og gallerí með hönnun eftir ungt
íslenskt fólk. Hugmyndin fannst
mér alveg frábær því auk þess að
vera fataverslun kemur einn vegg-
urinn til með að vera notaður sem
listagallerí þar sem listamenn geta
fengið að sýna verk sín.“ Klara segir
alltaf fleiri og fleiri vera að bætast
í hópinn og komi verslunin til með
að selja allt milli himins og jarðar.
„Gaui er mjög opinn fyrir nýjum og
skemmtilegum hugmyndum svo ég
hvet þá sem hafa áhuga á að selja
eitthvað skemmtilegt að hafa sam-
band við hann.“ Klara segir að versl-
unin komi líka til með að vera ólík
flestum öðrum verslunum á Íslandi
í dag. „Ég mun til dæmis koma til
með að planta saumavélinni minni
á búðarborðið og við sem skipt-
um með okkur afgreiðslustörfun-
um í sumar ætlum að sauma bara í
miðri verslun inni á milli þess sem
við afgreiðum. Útlit verslunarinn-
ar er líka orðið þrælskemmtilegt og
spes.“
Pallíettur og blúndur
Aðaláherslan sem Klara leggur í
hönnun sína er að peysurnar séu fal-
legar og skemmtilegar. „Ég er mik-
ið fyrir að krydda þær svolítið með
blúndum og pallíettum svo maður
geti verið sæmilega fínn þrátt fyr-
ir að vera í hettupeysu. Það er ein
stelpa líka að sauma og selja legg-
ings í öllum litum og úr hrikalega
flottu efni í búðinni sem hægt verð-
ur að nota við peysurnar.“ Klara seg-
ir að það sé aldrei að vita nema hún
saumi peysur á stráka í framtíðinni.
„Ég á pottþétt eftir að hanna peysur
fyrir strákana líka. Margir af stráka-
vinum mínum hafa verið að biðja
mig um að gera peysur og ég ætla að
byrja að fikra mig áfram í að sauma
á þá og svo vonandi kem ég til með
að selja strákapeysur í Fígúru seinna
í sumar.“
Bíódómur
pathfinder
Stórundarlegvíkingamynd
semfærmannþótilað
brosaviðogvið.
Leikstjóri: Marcus Nispel
Leikarar: Karl Urban, Moon Bloodgood,
Niðurstaða: HHHHH
Russell Means, Clancy Brown, Jay Tavare, Nathaniel Arcand
og Ralf Moeller
Frá föstudegi
til sunnudags
Rapparinn Ice Cube er með nýja
kvikmynd í startholunum, Sunday.
Myndin fjallar
um tvo þrjóta
sem reyna að
stela peningum
úr kirkjusjóði.
Ásamt Ice Cube
leika í myndinni
Katt Williams,
Tracy Morgan,
Malinda Willi-
ams, Regina Hall, Chi McBride og
Loretta Devine. Upptökur hefjast í
næstu viku og verður myndin frum-
sýnd snemma á næsta ári. Áður
hefur Ice Cube gert Friday-mynd-
irnar margfrægu, en það voru þær
sem komu honum á kortið sem
leikara.
SAUMAR OG SELUR PEYSUR
Litagleði Skemmtilegheit.
Ný verslun sem ber heitið
Fígúra kemur til með að
opna á Skólavörðustíg eftir
helgi. Nokkrir ungir íslensk-
ir hönnuðir selja þar föt og
listaverk og er söngkonan
Klara Ósk Elíasdóttir ein
þeirra en hún saumar flottar
hettupeysur fyrir stelpur.
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIÐASALA Á
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
STÆRSTA ORRUSTAN
ER INNRI BARÁTTAN
B.I. 14 ÁRA
B.I. 10 ÁRA
B.I. 14 ÁRA
B.I. 10 ÁRA
B.I. 16 ÁRA
B.I. 7 ÁRA
B.I. 10 ÁRA
B.I. 16 ÁRA
FRACTURE kl. 8 - 10.10
IT´S A BOY GIRL THING kl. 6
SPIDERMAN 3 kl. 6 - 9
FRACTURE kl. 5.30 - 8 - 10.30
IT´S A BOY GIRL THING kl. 1.30 - 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
SPIDERMAN 3 kl. 2 - 5 - 8 - 10.50
SPIDERMAN 3 SÝND Í LÚXUS kl. 2 - 5 - 8 - 10.50
PATHFINDER kl. 8 - 10.15
TMNT kl. 2 - 4 - 6
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 2 - 3.45
THE PAINTED VEIL kl. 3 - 5.30 - 8 - 10.30
IT´S A BOY GIRL THING kl. 3 - 5.50 - 8 - 10.10
SPIDERMAN 3 kl. 3 - 6 - 9
INLAND EMPIRE kl. 5.45 - 9
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3
Ef þú rýnir nógu djúpt sérðu
að allir hafa veikan blett.
MAGNAÐUR SÁLFRÆÐITRYLLIR