Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2007, Blaðsíða 62
fimmtudagur 17. maí 200762 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
föstudagurfimmtudagur
myndaleit í Cannes
Alþjóðleg kvikmyndahátið í Reykja-
vík hefur verið leiðandi afl í kvik-
myndamenn-
ingu landsins. Á
þessu ári hefur
Fjalakötturinn
nýi blómstr-
að undir stjórn
þeirra sömu og
stýra hátíðinni
og er það hið
besta mál. Há-
tíðin verður haldin þann 27. sept-
ember næstkomandi og stendur
til 7. október. Næstu daga munu
svo fulltrúar kvikmyndahátíðar í
Reykjavík halda til Cannes til þess
að kynna sér úrvalið í kvikmynda-
heiminum. Margt er um dýrðir á
hátíðinni í ár og er vonandi að það
helsta skili sér hingað á klakann.
feta í fótspor friðriks
Dóra Takefúsa og Dóra Dúna
Sighvatsdóttir íhuga nú að feta
í fótspor at-
hafnamannsins
Friðriks Weis-
happel og opna
vínveitinga- og
kaffihús í Kaup-
mannahöfn.
Norreport hefur
verið nefnt til
sögunnar sem
hverfið þar sem kaffihúsið verður.
Friðrik hefur gert það gott í veit-
inga- og þvottahúsarekstri í Kaup-
mannahöfn á undanförnum árum
og ljóst að velgengni hans hefur
orðið öðrum Íslendingum hvati til
þess að feta sömu braut.
Við sömdum það
Josh Groban er staddur hér á landi
þar sem hann söng meðal annars
hið gamalkunna íslenska lag You
raise me up í
tvígang fyrir
troðfullri Laug-
ardalshöll. Það
vakti sérstaka at-
hygli að Magnús
Kjartansson for-
maður Stef væri
kominn í málið,
eftir að Jóhann
Helgason höfundur lagsins Sökn-
uður, hélt því staðfastlega fram lag-
ið væri stolið. Vafalaust hafa áhorf-
endur í Laugardalshöll skemmt sér
vel og sungið gamla íslenska text-
ann á meðan Groban söng á ensku.
Spurningin er hvort við Íslending-
ar séum enþá svona tapsárir yfir
Eurovision að við þurfum að fara að
eigna okkur annarra manna lög?
öflugir Íslendingar
True Love, leiksýning útskriftar-
hópsins frá Film/Teaterskolen
Holber í Kaup-
mannahöfn er
sýnd á fjölum
skólans nú um
stundir. Ókeypis
er inn á sýning-
una sem er hvað
merkilegust
fyrir þær sakir
að af níu manna
útskriftarhópi eru fimm íslenskir
nemendur. Þeir Íslendingar sem
eiga leið um Kaupmannahöfn geta
kíkt á lokasýninguna sem fram fer
laugardaginn 19. maí klukkan sjö.
sá grunaði var á sjó
Í DV á þriðjudag birtist sandkorn
þar sem sagt var frá því prakkari í
Hveragerði hafði tekið sig til og flutt
flokksfána á milli kosningaskrif-
stofa. Framsóknarmenn í bæn-
um töldu það ljóst að prakkarinn
væri fyrrum frambjóðandi Vinstri-
grænna sem gengið hafði til liðs við
Frjálslynda flokkinn. Sá sem fram-
sóknarmenn höfðu undir grun sór
af sér allar sakir og benti á að hann
hefði verið úti á sjó. Enn er því á
huldu með hver stóð á bakvið fána-
brenglið í Hveragerði.
Sandkorn Tengsl
... Ellert B. schram á það
sameiginlegt með ...
... Katrínu Jakobsdóttir að vera nýr
þingmaður. Katrín Jakobsdóttir á
það sameiginlegt með...
... guðna
Ágústssyni að
vera varafor-
maður stjórn-
málaflokks.
guðni Ágústs-
son á það
sameiginlegt
með...
... samúel Erni
Erlingssyni að
vilja að
framsóknar-
flokkurinn
verði áfram
við völd...
...samúel örn Erlingsson á það
sameiginlegt með Herði magnús-
syni að vera íþróttafréttamaður.
Hörður magnússon á
það sameiginlegt
með...
.... steingrími
sævarri
Ólafssyni að
vera eldheitur
stuðningsmaður
Liverpool.
steingrímur sævarr á það sameig-
inlegt með...
...ragnheiði Elínu Árnadóttur að
hafa starfað náið með forsætisráð-
herra. ragnheiður Elín Árnadóttir á
það sameiginlegt með...
...Jóhannesi
Jónssyni í Bónus
að vera sjálfstæð-
ismaður. Jóhann-
es í Bónus á það
sameiginlegt
með...
...Ómari ragnars-
syni að vera
gagnrýninn á
sjálfstæðisflokk-
inn. Ómar
ragnarsson á það
sameiginlegt
með...
....Árna Johnsen að vera
söngelskur. Árni
Johnsen á það
sameiginlegt með
Ellerti B. schram
að vera snúinn
aftur á alþingi.
ragnar axelsson mun opna ljósmyndasýningu á laugardag í
ljósmyndagalleríi sem er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Galleríið og verslunin Fótógrafí verða staðstett að Skólavörðu-
stíg 4a. Þar verða eingöngu til sölu ljósmyndir eftir íslenska
ljósmyndara, bæði gamlar og nýjar.
Einn fremsti ljósmyndari Íslands
Ragnar Axelsson opnar sýningu í
ljósmyndagalleríinu Fótógrafí, sem
er hið fyrsta sinnar tegundar hér á
landi, á laugardag. Ragnar lítur ekki
á sig sem listamann, en segir að það
sé að miklu leyti vegna þess hvernig
aðrir líta á þessa starfstétt.
„Ég er að fara að sýna í ljósmynda-
galleríi sem hefur ekki verið til stað-
ar áður hér á landi. Ari Sigvaldason
stendur fyrir þessu galleríi og ég mun
opna það með minni sýningu, en
aðrir munu sýna síðar.
Það má segja að þema sýningar-
innar núna sé snjór og kuldi þar sem
myndirnar eru frá ferðum mínum til
Grænlands og um Ísland. Þemað var
í rauninni bara eitthvað út í bláinn og
þessi sýning er afraksturinn af því,“
segir Ragnar.
sálin í myndunum
„Myndirnar eru allar svart-hvítar
og þar liggur mitt áhugasvið. Al-
mennt reyni ég að láta sál mína end-
urspeglast í myndunun sem eru oft á
tíðum af fólki í venjulegu umhverfi,“
segir hann.
Ragnar er ljósmyndari hjá Morg-
unblaðinu að atvinnu og segir margt
ólíkt með því að taka myndir fyrir
vinnuna og í frístundum. Vanalega
leitist hann eftir því að taka mynd-
ir fyrir sjálfan sig á sumrin og noti
svo veturna til þess að kúldrast inni í
myrkraherbergi og vinna myndirnar.
„Allt sem maður gerir fyrir sjálf-
an sig gerist hægar og auðvitað vildi
maður geta gert eins og sumir ljós-
myndarar úti í heimi sem hafa aðra
til þess að vinna myndirnar fyrir sig.
En eins og staðan er á Íslandi er bara
ekki grundvöllur fyrir því. Land-
ið er lítið og of lítill áhugi, þekking
og virðing fyrir ljósmyndun. Ég hef
aldrei litið á mig sem listamann sem
er að miklu leyti vegna þess að það er
innprentað í mann að það sé ekkert
merkilegt að vera góður ljósmyndari.
Hins vegar njóta góðir ljósmyndarar
víða annars staðar mikillar virðing-
ar. Til að mynda þekki ég til í Frakk-
landi og þar eru ljósmyndir settar á
allt annan stall en hér,“ segir Ragnar.
Ekki hrifinn af stafrænum
myndum
„Ég á mér marga ljósmyndara
sem ég lít til bæði innanland og er-
lendis. Hér á landi eru margir ung-
ir og góðir ljósmyndarar sem eru
í þessu af ástríðu en eru ekkert að
græða á þessu.
Þessir ungu eru mikið í digital-
tækninni en mín skoðun er sú að
filman veiti betri gæði og sjarma. Mín
tilfinning er sú að filman muni þykja
mun flottari í framtíðinni. Það er eins
og það vanti eitthvað í digital-myndir
sem erfitt er að útskýra. Dýrustu ljós-
myndir í heiminum eru til að mynda
flestar svart-hvítar.
Gallinn við filmuna er þó sá að
maður er mun lengur að framkalla
myndirnar og ég þarf að gera það
sjálfur. Það eru að vísu líka kostir sem
fylgja því að framkalla þetta sjálfur.
Þá getur maður náð því andrúmslofti
í myndina sem maður vill.“
mynd er ekki bara mynd
„Stundum bíður maður heillengi
eftir góðri mynd og ég tel það vera
lykilatriði að fanga rétta augnablik-
ið þegar maður er að mynda fólk.
En ég tel mig samt engan listamann.
Listheimurinn er svolítið skrítinn
heimur og nýju fötin keisarans ná
stundum nýjum hæðum. Maður
spyr sig stundum af hverju eitthvað
þykir merkilegt, en annað ekki. Það
er að vísu svolítið okkur ljósmynd-
urunum að kenna að ljósmyndun
þykir ekki merkilegri því við gerum
ekki mikið úr þessu,“ segir Ragnar
að lokum.
ALDREI LITIÐ Á MIG
SEM LISTAMANN
7
45
7
4
75
7
23
7 7
7
4
6
7
7
4
6
3
6
12
4
7
4
4
4
3 7
4
197
7
9 4
5
7
10
9
7
4
Sumar, sumar hvar ertu?
„Um þetta leyti í fyrra, þ.e. um
miðjan maí voru afar miklar svipting-
ar í veðrinu,“ segir Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur. „Óvenjuleg
hlýindi og hitamet féllu fram und-
ir miðjan mánuð, en síðan kólnaði
hastarlega og upp úr 20. gerði nokk-
uð óvenjulegt hret. Þá snjóaði mikið
sums staðar fyrir norðan og hitinn í
Reykjavík hafði ekki mælst jafn lágur
þetta seint vorsins í yfir 70 ár.“
„Nú er hins vegar að sjá þó nokkr-
ar sviptingar í veðrinu eftir tiltölulega
rólega en fremur kalda daga. Atgang-
ur lægða verður meiri. Um helgina,
einkum þó á laugardag er spáð nokk-
uð hvassri N- og NA-átt á mest
öllu landinu með slyddu-
hragglanda í byggð fyrir
norðan og eins á Vestfjörð-
um, en sjókomu til fjalla.
Eftir helgina er síðan ekki
annað að sjá en að áfram
verði heldur svalt í veðri
miðað við árstímann. Á með-
an það frystir á nóttunni
fer gróðri alls ekk-
ert fram, en jafnvel
þó ekki frysti sjást litlar breytingar á
gróðurframvindunni á meðan þetta
svalt er í veðri.“
En við verðum að sjálfsögðu að
vona það besta og að ekki seinna
en um hvítasunnuhelgina berist
úr suðri alvöru hlýtt loft hingað
til okkar. Það verður þá bara að
hafa það þótt hann rigni sam-
fara slíkri breytingu. Tek þó fram
að þetta er ekki spá, frek-
ar óskhyggja veður-
fræðings um mildari
og sumarlegri tíð!
ragnar axelsson Er einn
fremsti ljósmyndari landsins
en telur sig ekki vera
listamann.