Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Blaðsíða 6
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 20076 Fréttir DV
Miklar framkvæmdir standa nú yfir á
Einholt/Þverholt-reitnum og í vestur-
enda Brautarholtsins þar sem vinnu-
vélar keppast við að rífa niður bygg-
ingar. Mörg þúsund tonn af steypu og
járnabindingum eru á víð og dreif á
reitnum í Þverholti þar sem Hampiðj-
an stóð meðal annars, en húsið hefur
löngum verið kennt við hana. Hamp-
iðjan er nú með starfsemi í Flatahrauni
í Hafnarfirði. Í vestari endanum á
Brautarholtinu stendur hálfniðurrif-
ið hús þar sem steypuklumpar dreifa
sér um viðamikið svæði. Töluverðr-
ar óánægju hefur gætt vegna fram-
kvæmdanna á báðum stöðunum og
þá sérstaklega í Þverholtinu þar sem
íbúabyggð er í næsta nágrenni við
framkvæmdasvæðið.
Mikið átakamál
Jóhannes Kjarval, arkitekt hjá
Reykjavíkurborg, segir að fram-
kvæmdirnar í Þverholti hafi valdið
miklum og háværum deilum og þarna
sé mikið átakamál á ferðinni. „Það
eru fimm ár síðan þetta mál fór af
stað en nú er málið komið á fulla ferð.
Það er búið að samþykkja að byggja
þarna íbúðir sem að stærstu eða öllu
leyti munu verða til leigu fyrir náms-
menn. Þetta eru miklar framkvæmd-
ir og það stendur til að reisa tiltölu-
lega háar byggingar, líklega fjórar til
sex hæðir og í sumum tilfellum hærri.
Íbúar hafa verið mjög ósáttir við þessa
framkvæmd, því þessu fylgja spreng-
ingar og annað áreiti sem fólk kærir
sig ekki um. Þetta er því búið að vera
mjög streitusamt verkefni fyrir okk-
ur að klára. Það verður engin kaka til
nema með því að brjóta egg.“
Það er Byggingarfélag náms-
manna sem sér um að reisa íbúðirnar
á þessu umdeilda svæði. Það fékk út-
hlutað um sjötíu prósentum af reitn-
um og munu byggingarnar ná út að
Háteigsveginum. Niðurrif á reitnum
í Einholti og Þverholti hófst í lok síð-
asta árs en auk Hampiðjunnar höfðu
Klink og Bank og Fréttablaðið starf-
semi sína þar um tíma. Þegar farið var
að rífa húsið kom ýmislegt í leitirnar.
Börn í nágrenninu flykktust á svæðið
til að verða sér úti um fótboltaspilið
Spark en alls voru fimm hundruð spil
sem lágu á víð og dreif um húsið auk
ógrynnis af öðru dóti. Núna stendur
til að blokk rísi á svæðinu sem mun
fara í almenna sölu.
Langt ferli
Íbúar í kringum byggingarreit-
inn eru margir hverjir óánægðir með
framkvæmdirnar sem þarna standa
yfir. Fyrir utan að valda mikilli sjón-
mengun fylgir niðurrifinu mikill há-
vaði. Þegar þurrt er í veðri eins og búið
er að vera undanfarnar vikur verður
verkið enn erfiðara viðfangs því rykið
sem fylgir niðurrifinu er umtalsvert.
Niðurrifið á reitnum í Einholti og
Þverholti á upphaf sitt að rekja aftur
til ársins 2001. Þá vöru lögð fram drög
að forsögn að deiliskipulagi lóðanna
að Einholti 1 og Þverholti 17 til 19.
Lítið gerðist í málinu næstu þrjú árin
eða þar til lagðar voru fram fjórar mis-
munandi tillögur að skipulagi reitsins
árið 2004. Síðan þá hefur málið ver-
ið í löngu og ströngu ferli hjá skipu-
lagsráði Reykjavíkurborgar. Þeir Gísli
Gíslason og Friðrik O. Friðriksson frá
Arkís kynntu svo drög að nýrri tillögu á
síðasta ári og var samþykkt að auglýsa
þá tillögu. Málinu var þó ekki lokið því
íbúar áttu þess kost að senda inn skrif-
lega umsögn um tillöguna og óskuðu
þeir eftir því að fá frestinn framlengd-
an og rann sá frestur út í mars.
Jóhannes segir að þessi skipulags-
tillaga hafi verið samþykkt fyrr á þessu
ári en málið eigi eftir að fara síðasta
spölinn í svokallaðri B-deild Stjórnar-
tíðinda sem staðfestir þessa uppbygg-
ingu. Jóhannes segir líklegt að reitur-
inn í Einholti og Þverholti verði næstu
þrjú til fjögur árin í uppbyggingu.
500 stúdentaíbúðir
„Við gerum ráð fyrir að þetta verði
hátt í fimm hundruð stúdentaíbúðir,“
segir Þórhalli Einarsson, aðalverk-
taki á reitnum í Þverholti. Þórhalli
segir að málið sé enn að fara í gegn-
um deiliskipulag og niðurstaðan úr
því muni ráða hvenær framkvæmdir
hefjist. Því sé erfitt að setja nákvæma
dagsetningu á hvenær farið verði í
að byggja íbúðirnar. „Við vonum að
íbúðirnar verði fullkláraðar árið 2011.
Mikil þörf hefur verið á íbúðum fyrir
háskólanema og munu þessar íbúðir
anna stórum hluta þeirrar miklu eft-
irspurnar sem verið hefur. „Að öllum
líkindum verða þetta að mestu leyti
herbergi en að einhverju leyti íbúðir.
Það liggur samt ekki alveg fyrir vegna
þess að þetta er enn í deiliskipulagi.
Aðspurður um steypuna og
spýtnabrakið sem kemur frá niður-
rifinu segir Þórhalli að hann búist
við því að það fari í fyllingu þar sem
vantar. „Þetta er allt saman flokkað
og fer á fyrirfram ákveðna staði. Við
Einar Þór SigurðSSon
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Þetta er því búið að
vera mjög streitusamt
verkefni fyrir okkur að
klára. Það verður engin
kaka til nema með því
að brjóta egg.“
MÖRG ÞÚSUND TONN AF STEYPU
Miklar framkvæmdir standa yfir á gamla Hampiðju-
reitnum í Þverholti og í vesturenda Brautarholtsins
þar sem verið er að rífa gömul hús. Í Þverholtinu á
að byggja hátt í fimm hundruð íbúða stúdentagarða.
Jóhannes Kjarval, arkitekt hjá Reykjavíkurborg,
segir að á Hampiðjureitnum sé um mikið átakamál
að ræða. Þórhallur Einarsson aðalverktaki segist
vona að íbúðirnar verði tilbúnar árið 2011.
Eyjan í niðurrifinu
Þetta hús stendur eins
og eyland þar sem áður
var húsaþyrping.