Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Side 10
Ellert B. Schram, alþingismaður og fulltrúi Íslands í laga- og mannrétt- indanefnd Evrópuráðsins, segir að aðildaríki NATO hafi gefið samþykki sitt fyrir fangaflutningum banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA. Ísland er þeirra á meðal. Jóhanna K. Eyj- ólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslands- deildar Amnesty International, fagnar því að utanríkisráðherra vilji láta rann- saka tengsl Íslands við þau mannrétt- indabrot sem þarna áttu sér stað. Á fundi Evrópuráðsins í lok júní kynnti svissneski þingmaðurinn Dick Marty skýrslu sína þar sem hann dregur fram hlutverk NATO í fanga- flugi CIA. Fyrir liggur að flugvélar sem tengjast fangaflugi lentu hér á landi. Í skýrslunni kemur fram að fangaflug var rætt á fundi NATO í október 2001 en bandalagið hefur flokkað skjölin sem tengjast þeim fundi sem trúnað- armál. Ellert B. Schram var einn þriggja íslenskra þingmanna sem sátu fund Evrópuráðsins. Hann segir að í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar 11. september 2001 hafi Bandaríkjamenn réttlætt ýmsa framgöngu sína í hinu svokallaða stríði gegn hryðjuverkum með því að líkt skuli gjalda með líku. Fangar pyntaðir á vegum NATO Íslensk stjórnvöld hafa borið af sér að hafa vitað um fangaflutningana. „Það þarf hins vegar að krefjast upp- lýsinga um hvort Ísland hafi verið mis- notað í þessum aðgerðum,“ segir Ell- ert. „Fulltrúar okkar í NATO þurfa að svara því hvort full vitneskja um fram- haldið hafi verið til staðar þegar menn gáfu samþykkti sitt.“ Hann bendir á að þar sem um leynilegar aðgerðir hafi verið að ræða geti verið að fyrrverandi utanríkisráðherra hafi ekki áttað sig á stöðunni. „Ég geri alveg ráð fyrir að svo sé. Mögulega hafa fulltrúar okkar í sakleysi sínu haldið að þetta væri allt í réttum farvegi.“ Ellert segir að þegar Bandaríkja- menn handtaka fólk í tengslum við meint hryðjuverk eða samstarf við hryðjuverkamenn sé það flutt ólög- lega í leynileg fangelsi sem eru með- al annars í Rúmeníu og Póllandi. „Þar er föngunum haldið í einangrun og þeir pyntaðir. Þetta á sér stað án þess að réttarhöld fari fram, án þess að mál þeirra fari fyrir dómstóla og þar með án þess að sekt sé sönnuð. Þetta er gert með samþykki NATO og viðkomandi ríkisstjórna, þar á meðal Íslands.“ Hann segir greinilegt að uppi sé samkomulag um að þessar flugferð- ir séu hafnar yfir sérstakt eftirlit. „Þær njóta þagnargildis og þurfa ekki að sæta eftirliti með sama hætti og al- mennt flug. Þetta er upplýst í skýrsl- unni. Evrópuráðið samþykkti ályktun sem fordæmdi þessar aðgerðir.“ Eftir að skýrslan kom fram kallaði Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra eftir svörum við því hvort þátttaka Ís- lands hefði verið fólgin í því að leyfa hér millilendingar flugvéla sem fluttu fanga. Enn hafa þær upplýsingar ekki komið fram. Ellert segir að erfitt sé að segja til um hver viðbrögðin verði ef í ljós kem- ur að Íslendingar hafi tekið þátt í þess- um aðgerðum með fullri vitund ráða- manna. „Þetta er auðvitað búið og gert. Ef í ljós kæmi að þátttaka okkar í mannréttindabrotum hefði verið með vilja gerð þyrftum við að taka til við að hreinsa mannorð okkar. Það þyrfti að taka af öll tvímæli að íslenska þjóðin vill ekki taka þátt í svona framferði.“ Ólöglegir fangaflutningar Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, fram- kvæmdastjóri Íslandsdeildar Am- nesty International, bendir á að það sé ólöglegt og í andstöðu við alla mann- réttindasamninga að fangar séu flutt- ir leynilega milli landa án dóms og laga. „Það er fullkomið ábyrgðarleysi af íslenskum yfirvöld- um að ýta því til hliðar þegar upp komst að flugvél- ar sem talið var að hefðu verið notaðar til ólöglegra fanga- flutninga hafi milli- lent á Íslandi. Við hjá Amnesty Int- ernational fögnum því að utanríkisráð- herra hafi ákveðið að rannsókn á þessu fari fram.“ Að sögn Jóhönnu er vitað til þess að flugvélar sem notaðar hafi verið til fangaflugs hafi lent á her- stöðinni í Keflavík. „Á ár- unum 2002 til 2005 flaug vél af tegundinni Gulfstream IV að minnsta kosti tíu sinnum á milli Keflavíkur og herstöðvar- innar í Kaíró. Við vitum þó ekki enn hvort þá voru fangar um borð en full ástæða er til að rannsaka það.“ Íslandsdeild Amnesty Internation- al hefur farið fram á það við ríkis- stjórnina að hún krefji Bandaríkja- menn um fjölda og staðsetningu allra leynilegra fangelsa og varð- haldsstöðva. Jóhanna segir að vitað sé til þess að fólk hafi beinlínis horfið eftir handtöku. „Í þessu svokallaða stríði gegn hryðjuverkum hafa Banda- ríkjamenn handtekið fólk og haldið föngnu án dóms og laga. Það er brotið á öllum mannréttindum þessa fólks. CIA hefur haft þann háttinn á að í stað þess að nota herflugvélar til fanga- flutninga eru leigðar vél- ar sem síður er hægt að tengja við leyniþjónust- una,“ segir Jóhanna. „Það er afar mikilvægt að ís- lensk yfirvöld geri það sem í þeirra valdi stend- ur til að komast til botns í þessu og stuðla að því að endi verði bundinn á þessi grófu mannrétt- indabrot.“ Við vinnslu frétta- rinnar náðist ekki í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utan- ríkisráðherra. ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 200710 Fréttir DV „Föngunum er ����i�� �� ein�ngrun og þeir pynt- ���ir. Þett� á sér st��� án þess ��� rétt�r�ö�� f�ri fr�m, án þess ��� má� þeirr� f�ri fyrir �óm- stó�� og þ�r me�� án þess ��� sekt sé sönnu��. Þett� er gert me�� s�m- þykki NATO og vi��kom- �n�i r��kisstjórn�, þ�r á me���� Ís��n�s.“ Ellert B. Schram segir fanga hafa verið pyntaða og þeim haldið í ein- angrun án dóms og laga með fullu samþykki NATO: ÍSLAND AÐILI AÐ PYNTINGUM OG FANGAFLUGI ErlA HlyNSdÓTTir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Jóhanna K. Eyjólfsdóttir Fram- kvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International fagnar því að Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra vilji láta rannsaka tengsl Íslands við fangaflug Bandaríkjamanna. Í gervi fanga Ellert B. Schram segir að þegar Bandaríkja- menn handtaka fólk í tengslum við meint hryðjuverk eða samstarf við hryðjuverkamenn sé það flutt í ólöglega í leynileg fangelsi sem eru meðal annars í Rúmeníu og Póllandi. Þar séu fangarnir síðan pyntaðir og haldið í einangrun án dóms og laga. Ellert B. Schram Ellert segir nauðsynlegt að fá upplýsingar um hvort Ísland hafi verið misnotað í fangaflutningum Bandaríkjamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.