Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Side 12
Menning þriðjudagur 17. júlí 200712 Menning DV Tónleikar í Þingvallakirkju Einar Jóhannesson klarin- ettuleikari, Valgerður Andrés- dóttir harmonium og Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran koma fram á tónleikum í Þingvalla- kirkju í kvöld kl. 20. Á efnis- skránni er tónlist sem tengist Þingvöllum. Sú nýbreytni er í starfi Þingvallakirkju þetta sumarið að þrjú þriðjudags- kvöld í júlí eru tónleikar í kirkjunni og eru þessir aðrir í röðinni. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi kirkjunnar og Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum en sjóðurinn er ætlaður til efling- ar tónlistarstarfs við kirkjuna. Aðgangur er ókeypis en tekið er við framlögum í minningar- sjóðinn við kirkjudyr. Tónleikar í Bláu kirkjunni Annað kvöld kl. 20.30 heldur söngkvartettinn Vallagerðisbræður tónleika ásamt píanóleikara í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði. Kvartettinn er skipaður ungum mönnum úr Kópavogi sem allir hlutu tónlistarlegt uppeldi í Skólakór Kársness. Tónleikarnir eru hluti af lista- og menning- arhátíðinni Á Seyði. Djass tónlist Aðrir sumartónleikar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar fara fram í kvöld: Sönglandi lög og rokk-grúv „Við ætlum bæði að leika lög sem hafa ver- ið gefin út á diskunum mínum og nokkur ný lög,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari sem spilar ásamt tríói sínu á Listasafni Sigur- jóns við Laugarnestanga í kvöld. Tónleikarnir eru hluti af sumar- tónleikaröð safnsins sem fer fram alla þriðjudaga næstu vikurnar. „Við erum eina djassbandið í sumar. Öll önnur atriði eru klass- ísk að ég held,“ segir Sunna. Lögin á efnisskránni eru flest eftir Sunnu. Í tilkynningu um tónleikana segir að tónlistin felli saman þokka evrópsks djass og eldmóð hins bandaríska. Sunna segist alveg geta kvittað fyrir það. „Ég held að þetta sé bara mjög vel að orði komist. Það var gagnrýnandi hjá All About Jazz sem sagði þetta en hann var þá sérstaklega að tala um diskinn Live in Europe. Evrópski djass- inn er oft mjög lýrískur en svo erum við líka með þetta „drive“ sem bandaríski djassinn hefur; það geta verið svolítil læti í okkur,“ segir Sunna. Aðspurð hvort tónleikarnir geti höfðað til þeirra sem hafi ekki endilega hlustað mikið á djass í gegnum tíðina segist Sunna halda það. „Þetta eru mjög lýrískar tónsmíðar og við erum að reyna að vera með svolítið fjölbreytt prógram, bæði lög sem söngla og þau sem sækja meira í rokk-grúv.“ Tríóið hefur verið starfandi í um ár en auk Sunnu er það skipað Þorgrími Jónssyni á bassa og Scott McLemore á trommur en hann er jafn- framt eiginmaður forsprakkans. Og Sunna ber hljómsveitarfélögum sínum vel söguna. „Þeir eru rosalega fínir strákar. Við erum líka öll mátu- lega hrekkjótt þannig að þetta er skemmtilegt.“ Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 20.30 og er að- gangseyrir 1.500 krónur. kristjanh@dv.is „Við erum að forma dagskrána þessa dagana,“ segir Pétur Grétars- son, framkvæmdastjóri Jazzhátíð- ar Reykjavíkur, sem haldin verður dagana 29. ágúst til 1. september næstkomandi. Nokkur nöfn eru þó komin á lista, íslensk og erlend, en hátíðin er sú átjánda í röðinni. Fjölbreytt dagskrá „Við byrjum á bandaríska pían- istanum Uri Caine,“ segir Pétur, en segja má að hann sé stærsta nafn- ið á hátíðinni. „Caine hefur gefið út hjá þýsku útgáfunni Winter&Winter og fyrir utan að vera frábær djass- píanisti hefur hann búið til sínar útgáfur af tónlist klassísku meist- aranna - nú síðast Mozarts. Hann kemur hingað með tríó sem spil- ar nokkuð hefðbundinn djass, en það er aldrei að vita hverju þeir taka upp á.“ Pétur nefnir einnig tónleika með Eivöru Pálsdóttur, þar sem hún syngur ásamt Stórsveit Reykjavík- ur. Björn Thoroddsen leikur einnig á hátíðinni ásamt Larry Coryell og bandaríski saxófónleikarinn Jerry Bergonzy spilar með hljómsveit sem Eyþór Gunnarsson píanóleik- ari setur saman. „Samúel Jón Sam- úelsson verður líklega gestgjafi á lokakvöldi hátíðarinnar og Sigurður Flosason heldur stóra tónleika með sinni tónlist og margt fleira. Þetta á þó allt eftir að skýrast á næstunni,“ segir hann. Þverskurður íslensks tónlistarlífs Markmið hátíðarinnar segir Pét- ur einkum vera það að njóta góðrar tónlistar og eiga skemmtilega daga. „Við reynum að sýna þverskurðinn af íslensku tónlistarlífi á hátíðinni og ætlum að gæða bæinn lífi þessa daga sem hátíðin stendur yfir. Við höfum reynt að skýra markmið há- tíðarinnar undanfarið, en hún hefur farið í ýmsar áttir síðustu árin og ver- ið ýmist stór eða lítil á víxl. Við höf- um velt því fyrir okkur hvort við ætt- um að beina hátíðinni í farveg sem er í líkingu við Airwaves-hátíðina og sinna þar með útrásarþörfinni, þótt ég geri mér ekki grein fyrir því hversu mikil sú þörf er. Þessi bransi er svolítið ólíkur poppbransanum, það eru ekki eins miklir „meik- möguleikar“. Þótt menn geti notið velgengni er þetta allt miklu smærra í sniðum. Það er samt vilji til þess að sinna þeirri hlið, þannig að ef til vill verður hátíðin meiri stökkpallur fyr- ir tónlistarmenn til að stækka mark- aðssvæði sitt í framtíðinni.“ Stór hátíð fyrir litla þjóð Pétur stýrir nú hátíðinni öðru sinni, en hann var framkvæmda- stjóri hennar árið 1991. „Þá var há- tíðin haldin í samvinnu við Ríkis- útvarpið, en árið þar á undan voru haldnir svokallaðir Útvarpsdjass- dagar, sem mörkuðu eiginlega upp- hafið að Jazzhátíð Reykjavíkur. Það var mikil sprengja og mjög eftir- minnileg hátíð.“ Djassdeild FÍH stendur fyrir hátíðinni með fulltingi Reykjavíkurborgar auk þess sem há- tíðin nýtur velvildar fyrirtækja eins og Icelandair og fleiri. Pétur segir stuðninginn nauðsynlegan. „Í okk- ar fámenni er ekki hægt að halda svona hátíð án þess að einkaaðilar, ríki og borg komi að. Við þyrftum í rauninni að vera 30 milljóna manna þjóð, en ekki 300 þúsund til að geta haldið svona hátíðir,“ segir Pétur. gudmundurp@dv.is Jazzhátíð Reykjavíkur verður haldin í átjánda sinn í lok ágúst. Pétur Grétarsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, stendur í ströngu um þessar mundir við undirbúning hátíðarinnar, þar sem fram kemur fjöldi innlendra og erlendra tónlistarmanna. Sound Orb í DaLí Gallery Helgi Kristinsson opnaði sýningu sína Sound Orb í DaLí Gallery á Akureyri um nýliðna helgi. Um er að ræða innsetn- ingu og hljóðverk í viðkvæm- um gifskúlum sem áhorfandi/ hlustandi getur handfjatlað og heyrt hljóð hverrar kúlu fyrir sig. Listamaðurinn setur fram spurningar um sýningarrýmið og tilvist þess og skapar í leið- inni ákveðið andrúmsloft fyllt hljóðum. Helgi er fæddur og uppalinn í Reykjavík en býr og starfar í Hollandi. Hann lærði í KABK Royal Academy of Art þar í landi og er einnig gull- smiður að mennt. Sýningar- stjóri sýnir Sýningarnefnd Skaftfells á Seyðisfirði ákvað nýlega að velja framvegis utanaðkom- andi aðila til að stýra sumar- sýningunni og gefa þeim al- gerlega frjálsar hendur innan ákveðins tímaramma. Með þessu er vonast til að fá sýn- ingu sem kemur með ferska vinda inn í sýningardagskrána og fer lengra með sýningar- mörkin en sýningarnefndina órar fyrir, samkvæmt því sem segir á vefsíðu Skaftfells. Í ár var Tuma Magnússyni boðið að hafa frjálsar hendur með sumarsýninguna og eftir mikl- ar vangaveltur afréð hann að sýna sjálfur stóra myndbands- innsetningu sem hann hefur nýverið unnið. Tríó Sunnu Gunnlaugs „það geta verið svolítil læti í okkur.“ DJASSINN gæðir bæinn lífi Erlendir gestir Bandaríski píanistinn uri Caine leikur ásamt tríói sínu á hátíðinni. Pétur Grétarsson Framkvæmda- stjóri jazzhátíðar reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.