Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.2007, Page 13
DV Morgunstundin þriðjudagur 17. júlí 2007 13
Morgunstundin
Vaknar þú alltaf á sama tíma?
„Á virkum dögum vakna ég alltaf klukkan
5.30.“
Er erfitt að vakna?
„Ég er með skothelda taktík. Ég skil vekjara-
klukkuna eftir 10 metra frá rúminu þannig að
þegar ég er búinn að slökkva nenni ég ekki að
fara að sofa aftur. Ég var alltaf með klukkuna við
rúmið og snúsaði alltaf. Það var erfitt, en eftir að
ég lærði nýju taktíkina er þetta miklu auðveld-
ara.“
Sefur þú nakinn eða í einhverju?
„Ég sef yfirleitt í stuttbuxum. Ég hef nú reyndar
stundum stofnað í stuttbuxum og vaknað ber-
rassaður. Ég veit ekki hver djöfullinn er í gangi
þegar maður er sofandi. Ég kann enga skýringu
á þessu.“
Hvað gerir þú fyrst eftir að þú ferð á
fætur?
„Ég vakna, hleyp að blandaranum og
blanda mér einn próteinsjeik og
drulla mér svo út. Ég byrja að
þjálfa klukkan sex og þetta er
nákvæmlega tíminn sem ég
þarf til að vakna, borða og
koma mér í vinnuna.“
Ferðu í sturtu á
morgnana?
„Nei. Ég æfi yfirleitt um há-
degisbilið og hendi mér í gufuna eða pottinn
eftir það.“
Hvaða morgunmat borðar þú?
„Ég fleygi próteini í blandara, haframjöli og
nokkrum frosnum berjum. Svo tek ég omega
3, 6 og 9. Það er morgunmaturinn.“
Lestu meðan þú borðar?
„Les ég!? Það tekur mig nákvæmlega ellefu og
hálfa sekúndu að þamba sjeikinn. Ég gæti rétt
klárað fyrirsögnina. Ef ég ætlaði að lesa blöð-
in þyrfti ég að vakna klukkan fimm, en þá eru
blöðin ekki komin. Þetta er ákveðið gæða-
vandamál.“
Hlustarðu á útvarp og þá hvaða?
„Já, ég stilli stundum á útvarpið í bílnum en
það eru engir útvarpsþættir byrjaðir svona
snemma. Yfirleitt er bara einhver steratónlist
í spilaranum sem vekur mig.“
Langar þig í laugina eða út að hlaupa
áður en þú ferð til vinnu?
„Nei, veistu, mér finnst ekkert í heiminum
leiðinlegra en að synda. Það er algjör djöfuls-
ins viðbjóður. Ég fer samt yfirleitt í Salarlaug-
ina í Kaupavogi eftir æfingu. Það er langbesta
laugin. Ég er samt með eina reglu. Maður
fer ekki í sund ópumpaður. Það er skylda að
fara á æfingu fyrst og hlaða aðeins í byssurn-
ar. Það er bara regla. Maður lætur ekki sjá sig
ópumpaðan í sundi.“
Sofna í
stuttbuxum
en vakna
berrassaður!
Egill „Gillzenegger“ Einarsson
einkaþjálfari.